Fréttablaðið - 18.05.2017, Page 47
GRAND
HÓTEL
REYKJAVÍK
24.
maí
Ávarp ráðherra, umhverfis- og
auðlindamála
Björt Ólafsdóttir
Fundarstjóri:
Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís
-Stóra myndin-
Lífhagkerfið, tækifæri á tímum
efnahagslegra umbreytinga,
Sigríður Þormóðsdóttir, Innovation
Norway
Græðum við ekki nógu mikið
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður
Lífauðlindir norðurlandanna
Dr. Daði Már Kristófersson, Háskóli Íslands
-ÁSkoranir-
aukaafurðir dýra – reglugerðir á
mannamáli
Guðrún Lind Rúnarsdóttir, Matvælastofnun
Skordýr og rófur
Búi Bjarmar Aðalsteinsson
Játningar skordýrabónda
Gylfi Ólafsson, Víur – Ræktunarfélag
um fóðurskordýr
- HÁdeGiSmatur í boði -
innblástur og vörukynningar frá
nýsköpunaraðilum á sviði sjávarút-
vegs, landbúnaðar, sláturiðnaðar
og matvælaframleiðslu!
-LauSnir oG nýSköpun-
auðlindatorgið – gagnvirk lausn til
að skapa verðmæti
Hildur Harðardóttir, Umhverfisstofnun
bestun á nýtni lífrænna
aukaafurða
ReSource International
Úr úrgangi í úrvalsvöru
Ágúst Torfi Hauksson, Norðlenska
Seyra í sókn
Magnús Jóhannsson, Landgræðsla
ríkisins
Fiskeldi, Getum við minnkað
umhverfisáhrifin?
Ragnheiður Þórarinsdóttir, Samrækt
er geitin illa nýtt og verðmæt
aukaafurð? Framtíð íslensku
geitarinnar: Listaháskóli Íslands
Dagskrá er frá kl. 9:00 – 14:00
Úrgangur í dag
auðlind á morgun
Ráðstefna um nýsköpun og lífrænar aukaafurðir
Skráning er hafin á
audlindatorg.is/radstefna
aðgangur
ókeypis
Í samstarfi við Bændasamtökin,
Fenúr, Landgræðslu ríkisins, Matís,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök
iðnaðarins og Sjávarklasann.
Ráðstefna um bætta nýtingu
lífrænna aukaafurða á Íslandi.
Ráðstefnan er lokaliður í for-
mennskuáætlun Íslands í Norrænu
ráðherranefndinni um Norræna
lífhagkerfið (NordBio). Markmið
NordBio er að gera Norðurlöndin
leiðandi í sjálfbærri framleiðslu
og nýtingu lífauðlinda í því skyni
að draga úr sóun og efla nýsköpun,
grænt atvinnulíf og byggðaþróun.
Handbolti Tveir leikmenn Gróttu,
Aron Dagur Pálsson leikstjórnandi
og Lárus Gunnarsson markvörður,
sömdu í gær við Stjörnuna í Garða-
bæ og leika með liðinu í Olís-deild-
inni á næstu leiktíð. Stjarnan er að
styrkja sig vel fyrir átökin næsta
vetur en liðið var áður búið að ná
samningum við landsliðsmanninn
Bjarka Má Gunnarsson.
Grótta er nú búin að missa þrjá
leikmenn og stendur uppi mark-
varðalaus því Lárus Helgi Ólafsson
er farinn til Aftureldingar. Þá lét
Gunnar Andrésson af störfum sem
þjálfari eftir tímabilið.
Stjarnan hélt sæti sínu í deildinni
þrátt fyrir að lenda í 9. sæti. – tom
Stjarnan bætir
við sig mönnum
Aron Dagur heldur áfram í bláu en í
öðru bæjarfélagi. FréttAblAði/AnDri
Fótbolti FH hefur unnið þrjá síð-
ustu leiki sína í Pepsi-deild kvenna
og er í þriðja sæti deildarinnar eftir
fjóra leiki. Þetta er besta byrjun
kvennaliðs FH í rúma fjóra áratugi.
FH hefur aldrei fengið fleiri stig
(9) í fyrstu fjórum leikjunum í
efstu deild kvenna síðan þriggja
stiga reglan var tekin upp 1984.
FH-liðið byrjaði einnig vel í fyrra og
var þá í fjórða sæti á sama tíma með
tvo sigra og 7 stig. FH-stelpurnar
eru hins vegar búnar að skora fimm
fleiri mörk í sumar en á sama tíma
í fyrra og vinna einum leik meira.
Eftir naumt tap á móti Blikum á úti-
velli í fyrsta leik (0-1) hefur FH-liðið
unnið Fylki (2-0), Hauka (3-0) og KR
(2-1). Þetta eru þrjú neðstu lið deild-
arinnar og FH á því enn eftir að ná í
stig á móti betri liðum deildarinnar.
Það þarf að fara alla leið aftur til
ársins 1976 til að finna tímabil í
efstu deild þar sem kvennalið FH
vann þrjá af fyrstu fjórum leikjum
sínum. Þetta tímabil fyrir 41 ári er
einmitt síðasta tímabilið þar sem
FH-konur urðu Íslandsmeistarar.
FH varð fjórum sinnum Íslands-
meistari á árunum 1972 til 1976.
FH-liðið er skemmtileg blanda af
ungum heimastúlkum og sterkum
erlendum leikmönnum og á það
sameiginlegt með toppliði Þórs/KA.
Hin sextán ára gamla Guðný
Árnadóttir er markahæst hjá FH-
liðinu með tvö mörk en þau hafa
bæði komið með skoti beint úr
aukaspyrnu. Hin fimmtán ára
gamla Karólína Lea Vilhjálms-
dóttir hefur síðan komið að fjórum
mörkum FH-liðsins í sumar með
því að skora (1), gefa stoðsendingu
(1) eða eiga þátt í undirbúningi (2).
– óój
Besta byrjun FH-kvenna í fjóra áratugi
FH-konur fagna hér einu af sjö mörkum FH-liðsins í sumar. FréttAblAðið/Anton
Fótbolti Þrjátíu og tveggja liða
úrslitum Borgunarbikars karla lýkur
í kvöld með þremur leikjum.
Valsmenn, bikarmeistarar síðustu
tveggja ára, fara til Ólafsvíkur og
mæta þar Víkingum. Þessi lið mætt-
ust í 1. umferð Pepsi-deildarinnar
þar sem Valur hafði mikla yfirburði
og vann 2-0. Lið Víkings hefur breyst
talsvert á síðustu tveimur vikum og
Ólsarar náðu í sín fyrstu stig í Pepsi-
deildinni um helgina. Valsmenn eru
hins vegar með sjö stig eftir fyrstu
þrjár umferðirnar í Pepsi-deildinni.
Íslandsmeistarar FH fá Sindra
frá Höfn í Hornafirði í heimsókn í
Kaplakrika. FH er með fimm stig í 5.
sæti Pepsi-deildarinnar en Sindri er
með tvö stig í 6. sæti 2. deildarinnar.
FH varð síðast bikarmeistari 2010.
Magni, topplið 2. deildar, fær
Fjölni í heimsókn á Grenivíkurvöll.
Með sigri á Grafarvogsbúum jafna
Magnamenn sinn besta árangur í
bikarkeppni KSÍ frá upphafi en þeir
komust einnig í 16-liða úrslit fyrir
fjórum árum. – iþs
Annar leikur Vals og Víkings Ó. á
skömmum tíma. FréttAblAðið/AnDri
Bikarvörnin
hefst í Ólafsvík
S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 35F i M M t U d a G U r 1 8 . M a í 2 0 1 7
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
2
-4
D
3
8
1
C
E
2
-4
B
F
C
1
C
E
2
-4
A
C
0
1
C
E
2
-4
9
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K