Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2017, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 18.05.2017, Qupperneq 56
Full búð af nýjum vörum! Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34 Síðan 1918 Sigurði Bragasyni er margt til lista lagt en auk þess að vera kunnur fyrir söng bæði hér heima og utan landsteinanna hefur hann einnig samið nokkur tón- verk og fjölda laga fyrir kóra og einsöngvara. Í kvöld kl. 20 verður frumflutt nýtt verk eftir Sigurð á afmælistónleikum Árbæjarkirkju en Sigurður segir að þau hafi pant- að verkið frá honum á sínum tíma. „Þau höfðu verið að flytja Ave Mar- íuna mína á nokkrum tónleikum og af mörgum kórum. Í framhaldi af því hafði Krisztina Kalló Szklenár, stjórnandi og organisti við kirkjuna, samband við mig og bað mig um að semja verk sem væri í svipuðum stíl og Ave María. Hún bað um mjög lagrænt verk og þar sem ég hafði verið að frumflytja annað verk á stórum styrktartónleikum fyrr í vetur þá reyndist þetta verða ansi mikil vinna að vera með bæði þessi verkefni í gangi á sama tíma. En það tókst að klára þetta í tíma.“ Sigurður segir að verkið sé samið við þrjá ljóðabálka eftir Jón Ara- son, biskup á Hólum. „Þetta verður frumflutningur í kvöld og á laugar- daginn kl. 16 verðum við svo í Skál- holti þar sem Jón var reyndar tekinn af lífi blessaður,“ segir Sigurður og víkur að því hvers vegna ljóð eftir Jón Arason hafi orðið fyrir valinu. „Ave Marían er í svona lagrænum og aðeins eldri stíl þó svo að hljóma- samsetningin sé nýleg þannig séð. Gæti verið úr gamalli tónlist rétt eins og úr popptónlist og þá jafn- vel frá Bítlunum. Ég hugsaði með mér að það væri gaman að vera með skáld frá gamla tímanum en vera svo með í verkinu hljóma sem tengjast okkar tímum og þá einkum léttari tónlist. Þannig næst að hafa þetta lagrænt þannig að nánast allir geta sungið þetta en samt er mikið í þetta lagt og vefnaðurinn flókinn. Ég nota mikið kontrapunkt sem er þessi gamla tónsmíðaaðferð og leit- ast við að hafa þetta hljómrænt og gera þetta þannig að fólkinu finnist gaman að syngja þetta og vonandi þá hlustendum gaman að hlusta.“ Auk þess að blanda saman gömlum og nýjum tíma þá nýtir Sigurður einnig kirkjuna sjálfa fyrir verkið. „Já, ég ákvað að semja þetta verk fyrir kór og bergmálskór sem er staðsettur hinum megin í kirkj- unni. Í einum þættinum munu einsöngvararnir svo mynda kross þannig að sópraninn stendur við altarið og tenórinn í hinum enda kirkjunnar, bassinn hægra megin við áhorfendur í kirkjunni en altinn vinstra megin. Þannig mynda þau kross og kallast á hvert við annað. Þannig að ég er svona aðeins að leit- ast við að nota kirkjuna sem hljóð- færi. Árbæjarkirkja er nefnilega góð til tónleikahalds, orgelið er mjög gott og þarna er fallegur hljómur og aðstaða öll til fyrirmyndar. Það verður líka boðið upp á kaffi og konfekt eftir tónleikana en svo eru þau að fara að byggja nýtt safnaðar- heimili þannig að það er heilmikið að gerast í kirkjustarfinu.“ Það er í mörg horn að líta hjá Sigurði þessa dagana en hann hefur verið að taka upp geisladisk að undan förnu en þar er hann í hlut- verki söngvarans. „Ég hef verið við það úti í Düsseldorf og hann er að fara að klárast. Vonandi kem ég með hann fyrir næstu jól en þar er ég að syngja Tsjaíkovskíj, Liszt og líka Pál Ísólfsson, Jón Leifs og Jón Þórarins- son svo einhverjir séu nefndir. Þetta er tónlist frá sex löndum, allt litauð- ug verk og mörg hver viðamikil. Afar skemmtilegt verkefni. En svo er að koma út frá mér þessa dagana bók með fjórtán kór- og einsöngslögum undir titlinum Tært drýpur vatnið. Þannig að það er nóg að gera.“ magnus@frettabladid.is Vonandi gaman að syngja og þá gaman að hlusta Sigurður Bragason, tónskáld og söngvari. Nýtt verk eftir hann verður frumflutt á 30 ára afmælistónleikum Árbæjarkirkju í kvöld. FréttaBlaðið/GVa TónlisT HHHHH Stórsveit Reykjavíkur flutti nýja íslenska tónlist. Stjórnandi: Snorri Sigurðarson. Kaldalón í Hörpu mánudaginn 15. maí Einu sinni sá ég Gísla Martein taka viðtal við Atla Heimi Sveinsson tón- skáld. Gísli Marteinn sagði að hann og annað venjulegt fólk skildi ekki tónlist Atla. Atli spurði hann þá hvort hann hefði einhvern tímann komið á tón- leika með tónlist sinni. Gísli Marteinn svaraði því neitandi. Þetta var nokkuð undarlegt, því er ekki að neita. Gísla Marteini er þó vorkunn. Ný tónlist í akademíska geiranum var lengi vel litin hornauga, enda komu fáir á slíka tónleika. Tón- listargagnrýnandinn Henry Pleasants (1910-2000) skrifaði á sínum tíma bók sem heitir Serious Music and All That Jazz. Þar hélt hann því fram að djassinn væri rökrétt framhald af sígildri tónlist 19. aldarinnar. Miklu rökréttari en tilraunir til að þróa nýtt tónlistartungumál á borð við það sem Gísli Marteinn skilur ekki. Djassinn er áberandi á Íslandi og á slíkum tónleikum eru ekki bara spilaðir þekktir standardar. Þeir eru líka vettvangur fyrir nýsköpun. Gott dæmi eru hinir árlegu tónleikar Stór- sveitar Reykjavíkur þar sem frumflutt er ný tónlist. Að þessu sinni voru þeir haldnir í Kaldalóni á mánudags- kvöldið. Snorri Sigurðarson stjórnaði og á dagskránni voru nokkur lög eftir hann sjálfan meðal annarra. Þau voru öll skemmtileg, lífleg og flæðandi. Sérstaka athygli vakti lagið Köttur- inn í sekknum. Snorri sagði að það hefði verið samið eftir að nemandi hans (hann kennir á trompet) sýndi honum tónstiga sem væri ættaður frá franska tónskáldinu Messiaen. Tón- list Messiaens byggir á annars konar reglum en þekktastar eru í dag, og tón- stigarnir hans eru dálítið spúkí. Lag Snorra var snilld. Það var skemmti- lega annarlegt og fullt af drifkrafti. Andstæður áleitinna málmblásturs- hendinga og glitrandi píanóhljóma voru einkar áhrifaríkar. Hvílík fegurð! Anna Gréta Sigurðardóttir átti líka tvö flott lög á tónleikunum. Hið síð- ara var sérstaklega glæsilegt, það var margbreytilegt og spannaði vítt svið, allt frá innhverfri, ísmeygilegri stemn- ingu upp í ofsafenginn hápunkt. Lög eftir Hauk Gröndal og Kjartan Valdimarsson voru rólegri, laglín- urnar kannski ekkert það grípandi, en þar voru samt ótal blæbrigði sem sköpuðu mikla stemningu. Hljóðfæraleikurinn á tónleikunum var til fyrirmyndar ef frá er talið býsna falskur málmblástur í fyrstu tveimur lögunum. Hljómsveitin var greini- lega ekki komin í gang þá. Óþarfi er að telja upp alla einleikarana, sem voru margir og aldrei sá sami, en þeir léku ávallt fallega og af nostursemi. Þetta voru magnaðir tónleikar og frá- bært dæmi um þá miklu grósku sem ríkir í djassinum um þessar mundir. Jónas Sen niðursTaða: Líflegir tónleikar með spennandi nýrri tónlist. Kötturinn í sekknum Stórsveit reykjavíkur flutti nýja íslenska tónlist undir stjórn Snorra Sigurðarsonar á mánudagskvöldið. Í tilefni af þrjátíu ára afmæli Ár- bæjarkirkju hefur Sigurður Bragason, söngvari og tón- skáld, samið nýtt verk við ljóð Jóns Arasonar biskups. ég ÁkvAð Að SemJA þettA verk fyrir kór og BergmÁlSkór Sem er StAðSettur hinum megin Í kirkJunni. 1 8 . m a í 2 0 1 7 F i m m T u D a G u r44 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 1 8 -0 5 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C E 2 -1 B D 8 1 C E 2 -1 A 9 C 1 C E 2 -1 9 6 0 1 C E 2 -1 8 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.