Fréttablaðið - 18.05.2017, Síða 66
Laugavegur 61 ︲ Kringlan ︲ Smáralind ︲ Sími 552 4910
jonogoskar.is
Glæsileg
útskriftargjöf
Útskriftarhálsmen 2017 eru komin.
Okkar hönnun og smíði.
Gullrós
Verð 21.000 kr.
Silfurstjarna
Verð 7.900 kr.
Gullstjarna
Verð 18.000 kr.
Curcumin
„Gullkryddið“
er margfalt
áhrifameira
en Túrmerik!
HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ
CURCUMIN? Gullkryddið sem hefur reynst þúsundum landsmanna vel.
Bætiefnin innihalda hvorki rotvarnarefni né fylliefni og eru án allra aukaefna.
„Ég mæli tvímæla-
laust með vörunum frá
Natural Health Labs.“
Helga Lind
– Pilateskennari
og einkaþjálfari
Fæst í öllum helstu apótekum,
heilsuverslunum og heilsuhillum stórverslana.
Kynntu þér málið á www.balsam.is
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Rappsveitin Forgotten Lores heiðrar gesti Rappport hátíðar-innar með nærveru sinni nú á laugar-daginn. FL var vafa-
laust ein virtasta rapphljómsveit
landsins allt frá því að hún gaf
út plötuna Týnda hlekkinn árið
2003 – og jafnvel fyrr hjá hiphop
hausum sem voru með á nót-
unum. Platan markaði tímamót
í rappi á íslensku, sem á þeim
tíma var að slíta barnsskónum.
Þeir í Forgotten Lores fjölluðu
um íslenskan veruleika á vand-
aðan hátt og hlutu lof gagnrýn-
enda fyrir. Árið 2006 kom síðan
út platan Frá heimsenda og var
hún tilnefnd til íslensku tón-
listarverðlaunanna sem tryggði
þeim endanlega sess sem ein
besta rapphljómsveit landsins og
setti markið hátt fyrir komandi
kynslóðir rappara á þeim tíma
sem margir tóku rappið sitt ein-
faldlega upp á heimilistölvuna í
lágum gæðum og hentu beint á
netið.
Það má vel fullyrða að mikið
af því rappi sem er gefið út í dag á
Íslandi sé undir áhrifum Forgotten
Lores, bæði beint og óbeint. Þeir
hafa þó ekki látið mikið á sér bera
síðustu ár – þeir spila á tónleikum
við og við eins og það má orða það
svo að þeir séu eins og sannir meist-
arar sem velja sér góð tilefni á tylli-
dögum til að koma „úr skugganum“
til að sýna yngri kynslóðinni hvern-
ig á að gera þetta.
Forgotten Lores upp á sitt besta. Þeir kenna yngri kynslóðinni kúnstina á Kexi hosteli á laugardaginn. FréttabLaðið/VaLLi
„Það er rétt, Forgotten Lores
spilar bara spari þótt við séum alltaf
að sinna gyðjunni hver á sinn hátt
þess á milli. Það er þó svo að þegar
við spilum er það alltaf mikill fögn-
uður. Við höfum þau forréttindi
að hafa verið partur af fyrstu stóru
hiphop bylgjunni á Íslandi. Við og
Forgotten Lores
spila bara spari
Rappsveitin Forgotten Lores kom rappinu á kortið á Íslandi sem tón-
listarstefnu sem bæri að taka alvarlega og á að mörgu leyti heiður-
inn af því hve vönduð íslensk rapptónlist hefur verið síðan. Félag-
arnir munu spila á Rappport tónlistarveislunni á laugardaginn.
týndi Hlekkurinn (200
3)
Frá heimsenda (2006)
Það að ungmenni
höFðu hugrekkið
tiL að standa gegn ráð-
andi giLdum og straumum í
ísLenskum kúLtúr, og
umFram aLLt standa með
sjáLFum sér í að bera út
boðskapinn sem hiphop var
og er, er Það sem geFur svo
mikið.
margir fleiri gerðum tónlistina en
það var senan sem skipti öllu máli,
lífsstíllinn. Það að ungmenni höfðu
hugrekki til að standa gegn ráðandi
gildum og straumum í íslenskum
kúltúr, og umfram allt standa með
sjálfum sér í að bera út boðskapinn
sem hiphop var og er, er það sem
gefur svo mikið. Þess vegna var ein-
mitt auðvelt að segja já við því að
spila fyrir Kex á Rappport. Kex er
velunnari góðrar tónlistar og fáir
venjúar eru duglegri við að bera
út boðskapinn hér á landi. Við
hlökkum til að sjá sem flesta á
Kexi á laugardaginn,“ segir Birkir
Björns Halldórsson, eða Byrkir B
úr Forgotten Lores.
Tónlistarhátíðin Rappport fer
fram á Kexi hosteli á laugardaginn
kemur. Þar spila ásamt Forgotten
Lores: Alvia, Sturla Atlas, GKR,
Cyber og svo hin íranska SEVDA-
LIZA, sem er að spila hér á landi í
annað sinn en hún spilaði á Sónar í
fyrra. stefanthor@frettabladid.is
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R54 l í F I ð ∙ F R É T T a B l a ð I ð
Lífið
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
2
-3
E
6
8
1
C
E
2
-3
D
2
C
1
C
E
2
-3
B
F
0
1
C
E
2
-3
A
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K