Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 4

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 4
 RITSTJORASPJALL Einar H. Einarsson, löggiltur endurskoðandi Ágætu lesendur. Tuttugasti árgangur Tímarits löggiltra endurskoðenda lítur nú dagsins ljós. í þessu tölublaði eru þrjár fræðigreinar á sviði reikningsskila. Greinar þessar eru byggðar á erindum sem höfundar þeirra fluttu á námsstefnu FLE í desember 1989. Auk greinanna eru þýðingar og umfjöllun á fjórum stöðlum alþjóða reikningsskilanefndarinnar, IASC. Tvær greinanna auk staðals nr. 2 fjalla um birgðir í reikningsskilum og ein greinin um sam- stæðureikningsskil. Grein Lárusar Finnbogasonar fjallar um mat á birgðum í sjávarútvegi og grein Arna Tóm- assonar um mat á birgðum í fiskeldi. Birgðamat í þessum atvinnugreinum er sérstakt vanda- mál í reikningsskilum og er því umfjöllun þeirra kærkomið innlegg í umræðuna um þau mál. Þýðing reikningsskilanefndar FLE á alþjóðlegum staðli nr. 2 , „Mat og framsetning á vöru- birgðum samkvæmt kostnaðarverðsreglunni“, fylgir í kjölfar greina þeirra Lárusar og Árna til frekari glöggvunar fyrir lesendur um hvaða reglur gilda um mat vörubirgða. Grein Alexanders G. Eðvardssonar fjallar um samstæðureiknings- skil sem er sú grein reiknigsskila sem hvað minnsta umfjöllun hefur hlotið. Annað efni blaðsins eru þýðingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum nr. 2, 22 og 26 sem fjallað hefur verið um á hádegisverðarfundum FLE. Ritnefnd þakkar öllum sem lagt hafa til efni í blaðið og aðstoð við útgáfu þess og lesend- um óskar hún góðra stunda.

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.