Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 7

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 7
SJÁVARÚTVEGUR ÚTGERÐ: Togskip og togbátar. Netabátar Nótabátar Aðrar veiðar FISKVINNSLA: Frysting Söltun Hersla Síldarsöltun Rækju- og Skelvinnsla Mjöl- og lýsisframleiðsla önnur vinnsla STOÐDEILDIR: Vélaverkstæði Veiðarfæraverkstæði Bifreiðaverkstæði Mötuneyti vegar fryst eða ísuð og seld til fullvinnslu í landi. Birgðir sem meta þarf hjá fiskvinnslufyrirtækjum eru hráefnisbirgðir, rekstrarvörubirgðir, birgðir vöru í vinnslu og birgðir fullunninna afurða. Til hráefnisbirgða telst hvers konar fiskur, t.d. bol- fiskur. rækja og hörpudiskur svo og ýmis hjálparefni eins og t.d. salt, sykur og krydd í söltun og síldarsöltun. Til rekstrarvörubirgða teljast t.d. umbúðir. hreinlæt- isvörur og ýmsir véla-og varahlutir og efnisbirgðir stoð- deilda. Til birgða vöru í vinnslu telst t.d. saltfiskur og saltsfld sem ekki er fullverkuð. Til birgða fullunninna afurða telst ýmis frystur fiskur, fullverkaðar saltaðar afurðir og mjöl svo dæmi séu nefnd. Eins og af framansögðu má ráða getur verið um mik- inn fjölda ólíkra tegunda birgða að ræða í einu meðal- stóru fyrirtæki í sjávarútvegi, en algengt er að innan sama fyrirtækis fari fram bæði útgerð og fiskvinnsla, en vinnslan getur skipst í 4 til 5 megin vinnslugreinar. III. MAT Á HRÁEFNISBIRGÐUM OG REKSTRARVÖRUBIRGÐUM: Svo vikið sé að birgðamati hráefnis, þá ber þess að geta í upphafi að hráefnisbirgðir eru yfirleitt ekki miklar í fyrirtækjum í fiskvinnslu, sem leiðir af eðli starfseminn- ar, en geymsluþol hráefnis er yfirleitt ekki mikið. Þann- ig geymist ísaður fiskur almennt ekki nema 8-12 daga frá því hann er veiddur og þar til hann er kominn á síð- asta dag til vinnslu. Öðru máli gegnir í rækjuvinnslu, en þar er algengt að keypt sé blokkfryst rækja bæði af hér- lendum togurum og bátum, en einnig er þó nokkuð um að rækja sé flutt inn erlendis frá til fullvinnslu í landi og getur því verið um að ræða töluverðar hráefnisbirgðir í rækjuvinnslu. Hráefnisbirgðir í mjölvinnslu geta einnig verið töluverðar. Hráefnisbirgðir á að meta við kostnaðarverði, nema dagverð sé lægra. Til kostnaðarverðs telst síðasta inn- kaupsverð að viðbættum þeim kostnaði sem á hráefnið fellur við að koma því á notkunarstað. Slíkur kostnaður er t.d. kostnaður við löndun og akstur á hráefni frá skipshlið að vinnslustað. Með innkaupsverði er átt við samningsverð að við- bættum hvers konar viðbótarkostnaði, sem fiskvinnslan hefur skuldbindið sig til að taka á sig vegna öflunar hrá- efnisins. Slíkur viðbótarkostnaður er t.d. veiðarfæra- kostnaður sem fiskvinnslufyrirtæki taka á sig vegna veiðarfæra fyrir viðskiptabáta sem afla hráefnis til vinnslunnar. Einnig er þó nokkuð um að fiskvinnslufyr- irtæki sjái viðskiptabátum og -togurum fyrir ís. Framan- greindur kostnaður er beinn kostnaður vegna hráefnis og er því eðlilegt að færa hann sem slíkan hjá vinnsl- unni og meta hann inn birgðamatið. Mat á kostnaðarverði hráefnisbirgða og hvað teljast á hráefniskostnaður hjá fiskvinnslu sem kaupir allt sitt hráefni af óskyldum aðila er ekki mjög flókið mál. Hins 7

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.