Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 11

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 11
ir sínar til sölumeðferðar eða að óheimilt sé að selja af- urðirnar öðrum án heimildar stjórnar sölusamtakanna. Brjóti félagsmenn gegn ákvæði þessu varðar það sekt- um. Sölusamtökunum ber hins vegar að annast sölu af- urða félagsmanna og greiða sama verð fyrir sömu fram- leiðslu, jafna að gæðum og sem seld er á sama tímabili. Þegar um það er að ræða að fiskvinnslufyrirtæki eru félagsaðilar í sölusamtökum eins og þeim sem hér er lýst og að þau selja alla framleiðslu sína fyrir tilstilli þeirra, þá tel ég að heimilt sé að nota skilaverðsaðferð- ina við birgðamatið, þar sem þær forsendur eru fyrir hendi að afurðimar eru seldar á framleiðslustigi og markaðsverð afurðanna er þekkt. Annað atriði sem hefur haft áhrif á að birgðir eru metnar á „netto“ skilaverði er að gera reikningsskilin samanburðarhæfari við framlegðarskýrslur. Stjómend- ur, sem eru helstu notendur reikningsskilanna, gera margir hverjir þá kröfur að birgðir séu metnar við „netto“ skilaverði. Ástæða þess er fyrst og fremst sú að með því móti eru reikningsskilin sambærileg við fram- legðarútreikninga, sem eru gerðir innan fyrirtækjanna. Stjórnendur bera þá saman þá framlegð sem reiknings- skilin sýna og þá framlegð sem reiknuð er út innan fyr- irtækjanna, en algengt er að framlegðarskýrslur séu gerðar vikulega og í stærri fyrirtækjum daglega. Með framlegð er hér átt við skilaverð að frádregnum hráefn- iskostnaði, launakostnaði og umbúðakostnaði. Það sem einnig hefur haft áhrif á það að birgðir eru metnar á „netto“ skilaverði, er sú staðreynd að „netto" skilaverð er í mörgum tilfellum lægra en kostnaðarverð og því er í raun beitt kostnaðarverðsreglunni, þ.e. birgðimar eru metnar á því verði sem lægra er kostnað- arverð eða dagverð. Með því að meta birgðir á „netto" skilaverði, út frá þeirri forsendu að fullvíst sé að afurð sé seld við fram- leiðslu og að markaðsverðið sé þekkt, er verið að flýta tekjufærslunni hjá fyrirtækjum frá því sem venja er. Þannig verða tekjurnar ekki til við það að afhenda af- urðirnar til kaupenda, eins og ein aðalregla reiknings- halds mælir fyrir um, heldur eru tekjumar taldar verða til við framleiðslu. Sú aðferð að meta afurðabirgðir á „netto“ skilaverði er verulega frábrugðin þeim reikningsskilaaðferðum sem almennt viðgangast. Hins vegar er þetta viðtekin venja í mörgum fiskvinnslufyrirtækjum hér á landi, þar sem þau skilyrði eru fyrir hendi að afurðirnar séu seldar við framleiðslu og markaðsverðið sé þekkt. Þetta verð- ur því að teljast góð reikningsskilavenja. Spyija má hvort það samrýmist lögum að eignafæra afurðabirgðirnar á „netto“ skilaverði þegar það er hærra en kostnaðarverð. Því er til að svara að svo er, þ.e. það samrýmist lögum: í 96. gr. hlutafélagalaga er fjallað um mat veltufjár- muna. Greinin er svohljóðandi: „Eignir, sem ekki eru ætlaðar til varanlegrar eignar eða notkunar fyrir félag- ið, þ.e. veltufjármuni, má ekki færa á hærra verði en kostnaðarverði eða raunverði, ef það er lægra. Veltu- fjármuni má þó færa á hærra verði en kostnaðarverði í þeim tilvikum, sem það samræmist góðri reikningsskila- venju“. Af þessu má ráða að hlutafélagalög heimila að meta birgðir á hærra verði en kostnaðarverði eða dag- verði, ef það samræmist góðri reikningsskilavenju. Ákvæði um mat birgða í skattalögum er að finna í 74. gr. 4. tl. og er það svohljóðandi: „Vörubirgðir verslana og framleiðsluaðila, þar með taldar rekstrarvörubirgð- ir, svo sem hráefni, eldsneyti, veiðarfæri og vörur á framleiðslustigi, skal telja til eignar á kostnaðar- eða framleiðsluverði eða dagverði í lok reikningsárs, að frá- dregnum afföllum á gölluðum og úreltum vörum“. Þannig heimila skattalög að telja vörubirgðir til eign- ar á dagverði og skiptir ekki máli í því sambandi hvort það sé hærra en kostnaðarverð. VI. FRAMSETNING í ÁRSREIKNINGI. Þegar birgðir eru metnar á „netto“ skilaverði, sem er hærra en kostnaðarverð, er birgðabreytingin færð uppi á meðal rekstrartekna. Af þeim sökum sýna rekstrar- tekjur ekki eingöngu sölutekjur þess tímabils sem upp- gjör miðast við, heldur koma þar fram framleiðslutekj- ur tímabilsins. Með sama hætti sýnir framleiðslukostnaður í rekstr- arreikningi ekki einungis framleiðslukostnað seldra af- urða, heldur framleiðslukostnað framleiddra afurða. Verðbreytingafærslu vegna birgða á að færa þar sem birgðarbreytingin kemur fram, en ekki á að færa hana á meðal fjármagnsliða í rekstrarreikningi. Með þeim hætti kemur verðleiðréttingin fram þar sem hún á við, þ.e. í framleiðslukostnaði eða rekstrartekjum. Þau atriði sem fram þurfa að koma í skýringum vegna birgða eru eftirfarandi: - Skýra þarf frá þeim aðferðum sem beitt er við verð- mat birgðanna. - Upplýsingar um veðsetningar og aðrar kvaðir vegna birgðanna þurfa að koma fram. - Flokka ætti birgðimar eftir tegundum, þ.e. hréfni, rekstrarvörur, vörur í vinnslu og fullunnar afurðir. - Sé breytt um aðferð við birgðamatið, þá á að skýra frá áhrifum þess og einnig á að upplýsa um afhverju breytt var um aðferð við birgðamatið. Annað atriði sem má benda á varðandi framsetningu tekna og gjalda í ársreikningum fiskvinnslu- og útgerð- arfyrirtækja og er óskylt birgðamati er það að „netta út“ í sameiginlegum rekstrarreikningi, milliviðskipti vinnslu og útgerðar þar sem það á við. Þannig ber að lækka sameiginlegar rekstrartekjur og framleiðslu- kostnað um sem nemur seldum afla af eigin fiskiskipum til eigin vinnslu. Grein þessi er byggð á fyrirlestri sem greinarhöfundur flutti á námskeiði á vegum menntunarnefndar FLE hinn 8. deseber 1989. 11

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.