Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 16

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 16
EFNAHAGSREIKNINGUR VELTUFJÁRMUNIR: Handbært fé Skammtímakröfur Birgðir E I G N I R : Kr. ÁR X X XX ÁR X X XX FASTAFJÁRMUNIR: Áhættufjármunir og langtímakröfur Veltuíjármunir alls Kr. XX XX Kr. X X Varanlegir rekstraríjármunir .... _ X X Fastafjármunir alls Kr. XX XX EIGNIR ALLS Kr. XXX XXX KLAKFISKUR: Eins og sjá má í tryggingaskrá er klakfiskur metinn með allt öðrum hætti en aðrar afurðir, eða á kr. 1.775 kílóið (1 SDR = 80 ISK). Mjög varhugavert getur verið að taka slíkar matstölur of bókstaflega til viðmiðunar dag- eða framleiðslukostnaðarverði, án þess að líta á eðli máls. Verður hér á eftir gerð stuttlega grein fyrir helstu atriðum, sem huga þarf að. Klakfiskur er sá fiskur sem notaður er til framleiðslu hrogna. Hann er alinn sem aðrir eldisfiskar í öllum megin atriðum og kreistur að hausti sem „tveggja ára lax“, þ.e. á 4. ári frá hrognastigi og er þá 5 - 8 kg. þungur. Ekki er talið hagkvæmt að kreista hvern fisk oftar en tvisvar. Gera má ráð fyrir að u.þ.b. 20% af lífþyngd klaklax skili sér sem augnhrogn við og eftir kreistingu. Með öðrum orðum, gera má ráð fyrir að úr hverjum klakfiski (5 kg.) fáist u.þ.b. 1 lítri af augn- hrognum. Hafa þarf í huga að svil úr einum hæng nægja fyrir hrogn úr tveimur jafn stórum hrygnum. Að kreistingu lokinni er klakfiskurinn verðlítill en „hleður sig upp“ fyrir kreistingu að ári. Til að flækja málið hefur með nýjum tilraunum tekist að blekkja lax- inn með ljósum, þannig að hann hrygnir tvisvar á ári í stað einu sinni. Allt þetta þarf að hafa til hliðsjónar þegar birgðamat fer fram og einnig þarf að hafa í huga hvers konar stofna um er að ræða og hvort markaður sé til fyrir afurðirnar. HAFBEITARAFURÐIR, - BIRGÐAMAT: Það kann að hljóma undarlega að verðleggja birgðir í hafi, en þannig háttar til um hafbeitarlax. Eðli máls er að sjógönguseiðum er sleppt til sjávar í þeirri von að þau komi aftur að einu ári liðnu sem 3 kg. fiskur, eða að tveimur árum liðnum sem 5-6 kg. fiskur. Sem nærri má geta er þeim sem annast reikningsskil talsverður vandi á höndum við birgðamat og fyllsta varfærnissjón- armið væri væntanlega að gjaldfæra allan tilkostnað við þau seiði sem sleppt er í hafbeit og tekjufæra þegar lax- arnir skila sér aftur og óvissa ríkir ekki lengur um end- urheimtur. . Sú spurning vaknar hvort ofangreind aðferð gefi les- anda ársreikningsins réttasta mynd af stöðu viðkom- andi félags og ljóst má vera að reglunni um jöfnun tekna og gjalda eftir því sem við verður komið innan sama tímabils verður að fórna, sé stuðst við ofan- greinda aðferð. Hafni menn ofangreindri aðferð, verða þeir jafnframt að leggja fram aðra betri, sem uppfyllir grundvallaratriði reikningshalds. Að mínu áliti getur verið réttlætanlegt að eignfæra afurðir í hafbeit, ef til- téknar upplýsingar liggja fyrir og þess sé jafnframt gætt að framsetning í ársreikningi sé greinargóð og skýr. Eftirfarandi upplýsingar verða að liggja til grundvallar birgðamatinu: a) Tveggja ára endurheimtuhlutföll úr marktækum til- raunasleppingum hjá viðkomandi stöð, annars vegar fyrir eins árs lax og hins vegar fyrir tveggja ára lax. Til hliðsjónar er haft landsmeðaltal fyrir lengra tímabil. Varúðarsjónarmið skulu höfð í heiðri. b) Miða skal við sláturþyngd eftir slægingu eins og tveggja ára lax, þ.e. 2,5 kg. og 5,0 kg. c) Miða skal við þekkt skilaverð á eins og tveggja ára 16

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.