Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Blaðsíða 21

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Blaðsíða 21
hans skuli telja kostnað við að koma vörubirgðum á þann stað og í það ástand, sem þær eru og beri því að telja með vinnslukostnaði við ákvörðun kostnaðarverðs vörubirgðanna. 9. Óbeinn framleiðslukostnaður, bæði fastur og breytilegur, sem fellur á framleiðsluna, er venju- lega talinn með vinnslukostnaði. Sú venja byggist á þeirri skoðun, að þetta sé kostnaður við að koma vörubirgðum á þann stað og í það ástand, sem þær eru. Stundum er fastur óbeinn framleiðslukostnað- ur ekki talinn með vinnslukostnaði á þeirri for- sendu að hann er ekki talinn standa í beinu sam- bandi við að koma vörubirgðum á þann stað og í það ástand, sem þær eru. 10. Við skilyrði lítillar framleiðslu eða ónotaðrar af- kastagetu er venjan að ákvarða þann hluta af föst- um óbeinum framleiðslukostnaði, sem telst með vinnslukostnaði hlutfallslega, sem um full afköst væri að ræða en ekki raunverulega framleiðslu. Framleiðslugeta verksmiðju er skilgreind á mis- munandi vegu, t.d. sem eðlilegt framleiðslumagn nokkurra tímabila, eða mesta framleiðsla, sem ná má á raunhæfan hátt. Ávallt skal nota sömu skil- greiningu, sem ákvarða skal fyrirfram og ekki að- laga tímabundnum aðstæðum. 11. Á sama hátt telst ekki til vinnslukostnaðar, kostn- aður vegna óeðlilegrar eyðslu efnis, launa eða ann- ars, þar eð slíkur kostnaður telst ekki standa í beinu sambandi við að koma vörubirgðum í það ástand, sem þær eru. Annar óbeinn kostnaður 12. Auk óbeins framleiðslukostnaðar er stundum um að ræða annan óbeinan kostnað við að koma vöru- birgðum á þann stað og í það ástand, sem þær eru, t.d. útgjöld við að hanna vörur fyrir sérstaka við- skiptavini. Á hinn bóginn er sölukostnaður, stjóm- unarkostnaður, rannsókna og vöruþróunarkostnað- ur svo og vextir yfirleitt ekki talinn kostnaður við að koma vörubirgðum á þann stað og í það ástand, sem þær eru. Kostnaðarverðsaðferð, sem notuð er 13. Við mat vörubirgða er beitt mismunandi aðferðum, sem leiða til ólfkra niðurstaðna, þar á meðal eftir- farandi: a) Fyrst inn/fyrst út (FIFO) b) Veginn meðalkostnaður c) Síðast inn/fyrst út (LIFO) d) Grunnbirgðir e) Sérgreining f) Næst inn/fyrst út (NIFO) g) Síðasta innkaupsverð 14. Matsaðferðimar FIFO, veginn meðalkostnaður LIFO, grunnbirgðir og sérgreining grundvallast á raunverulegum, þegar aföllnum útgjöldum. Mats- aðferðirnar NIFO og síðasta innkaupsverð grund- vallast aftur á móti á útgjöldum, sem ekki eru áfall- in og byggjast því ekki á kostnaðarverði. 15. Sérgreiningaraðferðin tengir ákveðna kostnaðarliði einstökum birgðaeiningum. Þessi aðferð á við þeg- ar um er að ræða vörur, sem hafa verið keyptar eða framleiddar og ætlaðar eru til sérstakra nota. Sé þessari aðferð beitt við birgðaeiningar, sem ekki hafa sérstætt notagildi, er með vali þeirra hægt að hafa ásetningaráhrif á rekstrarniðurstöður. Mat vörubirgða niðurfyrir kostnaðarverð 16. Kostnaðarverð fæst ef til vill ekki við sölu hafi sölu- verð lækkað, vörurnar skemmst eða úrelst. Sú venja að lækka mat vörubirgða frá kostnaðarverði í dagverð samræmist því að veltufjármuni skuli ekki eignfæra á hærra verði en ætla má að fyrir þá fáist. Verðlækkun má reikna út sérstaklega fyrir einstaka liði eða vörubirgðir tengdar ákveðinni starfsgrein ellegar heildarbirgðir fyrirtækisins. Sú venja að af- skrifa vörubirgðir með tilliti til tegundar birgða, tegundar starfsgreinar eða á heildargrundvelli hefur í för með sér að tap, sem orðið hefur, er látið vega á móti óinnleystum hagnaði. 17. í sumum löndum tíðkast annarskonar niðurfærsla vörubirgða en lýst er í 16. grein. Til dæmis mats- verð vörubirgða fært niður fyrir kostnaðarverð með því að draga ákveðinn hundraðshluta frá útreikn- uðu verði eða birgðaverð er lækkað án þess að frá því sé skýrt og þannig myndaður dulinn varasjóður en slíkar niðurfærslur hafa óæskileg áhrif á árs- reikninginn. Framsetning vörubirgða 18. Sundurliðun vörubirgða í ársreikningi gefur til kynna þær fjárhæðir, sem bundnar eru í hinum ýmsu vöruflokkum og breytingar á þeim milli ára. Algeng sundurliðun er hráefni, vörur í vinnslu, full- unnar vörur, verzlunarvörur og hjálparefni. 19. Vörubirgðir í efnahagsreikningi ná venjulega yfir þá liði, sem felast í skilgreiningu vörubirgða í 4. grein. Aðrir liðir eru stundum taldir með vöru- birgðum í efnahagsreikningi t.d. rekstrarvörubirgð- ir o.fl. og birgðir til rannsókna og vöruþróunar. Alþjóðlegur reikningsskilastaðalI nr. 2 Mat og framsetning birgða samkvæmt kost naðar ver ðsregl u nn i Alþjóðlegur reikningsskilastaðall nr. 2 nœr yftr greinar 29-36 í þessum texta. Staðalinn skal lesa í 21

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.