Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Side 24

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Side 24
SAMSTÆÐUREIKNINGSSKIL Höfundur: Alexander G. Eðvardsson löggiltur endurskoðandi. Skilgreining. Samstæöureikningsskil eru reikningskil þar sem árs- reikningar eins eða fleiri dótturfélags eru lagðir við árs- reikning móðurfélagsins með því að leggja þá saman línu fyrir línu (þ.e. að leggja saman samstæðar eignir, skuldir, tekjur og gjöld). Við gerð samstæðureiknings- skila verður að fella niður innbyrðis viðskiptastöðu og innbyrðis viðskipti og gera grein fyrir hlutdeild minni- hluta í dótturfélögum. Tilgangur með gerð samstæðureikningsskila er að setja fram, til frekari upplýsinga fyrir hluthafa og kröfu- hafa móðurfélagsins, rekstrarniðurstöðu og fjárhags- lega stöðu móðurfélags og dótturfélaga eins og þessi fé- lög væru eitt félag með eina eða fleiri deildir. Talið er að samstæðureikningsskil gefi betri upplýsingar um hina efnahagslegu einingu, sem móðurfélag ásamt dótt- urfélögum er, heldur en sérstök reikningsskil fyrir hvert félag fyrir sig. Einnig eru samstæðureikningsskil talin nauðsynleg til þess að gefa glögga mynd af þeirri efna- hagsiegu einingu þar sem eitt félag hefur á beinan eða óbeinan hátt meirihlutavald í öðrum félögum. Samstæðureikningsskil gefa miklar samanþjappaðar upplýsingar um hina efnahagslegu einingu sem heild. Þó verður að fara varlega þegar lagt er mat á þessar upplýsingar. Meðal atriða sem taka verður tillit til eru: 1. Tölulegar upplýsingar geta verið villandi þar sem hér er um vegin meðaltöl allra félaganna innan sam- stæðunnar að ræða. Veik staða eins félags getur því verið bætt upp með sterkri stöðu annars. 2. Mismunur á flokkun og mati reikninga í bókhaldi fé- laganna getur ruglað niðurstöður samstæðureikn- ings. 3. Peningalegar stærðir varðandi bæði hluthafa og lánadrottna geta verið villandi. Hér má nefna atriði eins og möguleika til arðgreiðslna. 4. Samstæðureikningar sem innifela erlend dótturfélög geta verið villandi ef miklar sveiflur eru í gengis- skráningu. Notendum samstæðureikningsskila eru fengnar í hend- ur yfirgripsmiklar fjárhagslegar upplýsingar varðandi hina efnahagslegu einingu, sem samanstendur af móð- urfélagi og dótturfélögum þess, án tillits til þess að lagalega er um margar einingar að ræða. í Bandaríkjunum og Kanada eru samstæðureiknings- skil álitin gefa bestar upplýsingar og talin mjög mikil- væg. Þeim fylgja sjaldan ársreikningar móðurfélagsins sjálfs eða einstakra dótturfélaga. I Bretlandi, á hinn bóginn; eru ársreikningar móðurfélaga einnig taldir mikilvægir og er þeim dreift til hluthafa með samstæðu- reikningum. í Bretlandi eru ársreikningar móðurfélaga álitnir mikilvægir fyrir kröfuhafa og hluthafa móðurfé- lags, því að þar fá þessir aðilar upplýsingar um þær eignir sem félagið á til þess að mæta kröfum og þar koma fram upplýsingar um ávöxtun fjármagns í móður- félögum. Hvenær ber að semja samstæðureikningsskil. Yfirráð eins félags yfir öðru er mikilvæg forsenda þess að viðkomandi félag sé innifalið í samstæðureiknings- skilum. Móðurfélagið þarf á beinan eða óbeinan hátt að hafa vald til þess að hafa áhrif á stefnu og stjómun félaga sem innifalin eru í samstæðureikningsskilum. Þetta vald og notkun þess gefur til kynna ákveðna sam- tengingu móðurfélags og dótturfélaga í eina efnahags- lega einingu. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að 24

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.