Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 41

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 41
aðstæður gáfu ekki tilefni til annars en að gjaldfæra hann strax. Eignfærður þróunarkostnaður er gjaldfærður á kerf- isbundinn hátt á næstu reikningsárum annaðhvort með hliðsjón af sölu eða notkun vörunnar eða yfir ákveðin tíma. Aðstæður sem valda takmörkunum í framleiðslu eða sölu flýta fyrir gjaldfærslu þróunarkostnaðar. Skýringar Sú reikningsskilaaðferð sem hér er tekin upp fyrir rann- sóknar og þróunarkostnað telst til almennt viður- kenndra reikningsskilareglna samanber alþjóðlegan reikningsskilastaðal nr. f. „ disclosure of accounting policies „ Upplýsingar sem veittar eru í ársreikningi um rann- sóknar og þróunarkostnað gefa lesenda upplýsingar um vægi slíkrar starfssemi fyrir fyrirtækið sjálft ásamt möguleika á samanburði við önnur fyrirtæki. Aðrar upplýsingar sem koma að gagni í þessu sambandi fela í sér lýsingu á þeirri rannsóknarvinnu sem unnið er að ásamt áætlun á þeim kostnaði sem þarf til að Ijúka við hana. Alþjóðlegur reikningsskilastaðall nr. 9. Reikningsskil rannsóknar og þróunarstarfssemi Alþjóðlegur reikningsskilastaðall nr. 9 nœr yfir grein- ar 15-25 og skal lesa í samhengi við inngangsorð að al- þjóðlegum reikningsskilastöðlum. 15. Innifalið í rannsóknar og þróunarkostnaði á að vera: a) Laun og launatengd gjöld starfsmanna við rann- sóknar og þróunarstörf. b) Kostnaðarverð efnis og þjónustu sem notað er við rannsóknar og þróunarstarfssemi. c) Afskriftir á tækjum og búnaði sem notaður er við rannsóknar og þróunarstarfssemi. d) Stjórnunarkostnaður sem tengist rannsóknar og þróunarstarfssemi. e) Annar kostnaður sem telst til rannsóknar og þróunarstarfssemi svo sem afskriftir á einka- leyfi. 16. Fjárhæð rannsóknar og þróunarkostnaðar sem fjall- að er um í 15. grein á að gjaldfæra á því tímabili sem hann fellur til á, nema ef hann er eignfærður í samræmi við 17. grein. 17. Þróunarkostnaö við ákveðin verk má eignfæra ef öllum eftirfarandi skilyrðum er fullnægt: a) Verkið er nákvæmlega skilgreint og hægt er að aðgreina kostnað sem er því tengdur. b) Sýnt er fram á tæknilega möguleika vörunnar. c) Stjórnendur eru ákveðnir í því að framleiða og markaðssetja eða nota vöruna. d) Sýnt er fram á markað fyrir vöruna eða nota- gildi ef nota á hana í eigin rekstri. e) Nægjanlegar auðlindir eru fyrir hendi til að fullvinna og markaðssetja vöruna. 18. Þróunarkostnaður sem eignfærður er með hliðsjón af skilyrðum 17. greinar á að takmarkast við þá fjárhæð sem búast má við að skili sér sem tekjur í framtíðinni, að teknu tilliti til sölu og framleiðslu- kostnaðar. 19. Ef tekin er upp ákveðin reikningsskilaaðferð um eignfærslu þróunarkostnaðar þá á að nota þá að- ferð á allar eignfærslur sem falla undir 17. grein. 20. Ef þróunarkostnaður er eignfærður þá á að gjald- færa hann á kerfisbundinn hátt á næstu reikningsár- um með hliðsjón af sölu eða framleiðslu vörunnar eða á þeim tíma sem búist er við að varan verði til sölu á. 21. í lok hvers reikningsárs á að gera athugun á eign- færðum þróunarkostnaði. Ef þau skilyrði sem um var fjallað í 17. grein og heimiluðu eignfærslu kostnaðar eru ekki lengur fyrir hendi þá ber að gjaldfæra eftirstöðvar í efnahagsreikningi. Ef skilyrði fyrir eignfærslu eru enn fyrir hendi en fjárhæð ógjaldfærðs þróunarkostnaðar er hærri en talið er að framtíðartekjur muni skila þá á að gjald- færa það sem umfram er. 22. Hafi þróunarkostnaður verið gjaldfærður þá skal hann ekki eignfærður aftur, jafnvel þótt aðstæður sem leiddu til gjaldfærslu séu ekki lengur fyrir hendi. Skýringar 23. í ársreikningi skal veita upplýsingar um heildarfjár- hæð rannsóknar og þróunarkostnaðar ásamt þeirri fjárhæð sem gjaldfærð hefur verið af eignfærðum þróunarkostnaði. 24. Upplýsingar skal veita um eftirstöðvar þróunar- kostnaðar í efnahagsreikningi ásamt þeim breyting- um sem átt hafa sér stað á reikningsárinu. Greina skal frá á hvern hátt þróunarkostnaður er færður til gjalda. Gildistökudagur 25. Þessi alþjóðlegi reikningsskilastaðall gildir um þá ársreikninga sem ná til reikningsára er hefjast 1. janúar 1980 eða síðar. 41

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.