FLE blaðið - 01.01.2016, Qupperneq 13

FLE blaðið - 01.01.2016, Qupperneq 13
Tafla um niðurstöður löggildingarprófa 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2005- 2015 Útskrifaðir endurskoðendur 16 18 15 14 17 13 15 8 8 7 8 139 Þar af karlar 7 11 9 10 10 7 9 4 7 6 6 86 þar af konur 9 7 6 4 7 6 6 4 1 1 2 53 % karlar 44% 61% 60% 71% 59% 54% 60% 50% 88% 86% 75% 62% % konur 56% 39% 40% 29% 41% 46% 40% 50% 13% 14% 25% 38% Hlutfall þeirra sem ná meðaltal Nýrra kerfi 39% 32% 44% 24% 35% 30% 38% 35% Umsækjendur Umsækjendur, eldra kerfi 60 53 58 56 22 13 5 0 0 0 0 267 Umsækjendur, nýrra kerfi 0 0 0 0 23 25 25 33 23 23 21 173 þar af karlar 23 17 15 21 17 15 12 120 þar af konur 22 21 15 12 6 8 9 93 % karlar 51% 45% 50% 64% 74% 65% 57% 58% % konur 49% 55% 50% 36% 26% 35% 43% 42% Fyrsta umsókn meðaltal Fyrsta umsókn, nýliðun 24 20 15 24 11 15 18 18 Fjöldi þeirra sem ná í 1 sinn 9 7 7 7 5 6 7 7 Hlutfall þeirra sem ná í fyrsta sinn 38% 35% 47% 29% 45% 40% 39% 39% Hlutfall nýliða af próftökum 50% 73% 48% 65% 86% 64% Hlutfall nýliða af útskrifuðum 53% 54% 47% 88% 63% 86% 88% 68% Taflan sýnir m.a. að um 35% þeirra sem þreyta prófið hverju sinni ná tilskilinni lágmarkseinkunn. Einnig vekur athygli að hlutur kvenna virðist lækka á seinni árum, hvort sem litið er til umsækjenda eða þeirra sem útskrifast. Þá virðist hlutfall þeirra sem reyna við prófið oftar en einu sinni fara lækkandi, sem aftur hefur í för með sér að mikill meirihluti þeirra sem nær til- skilinni lágmarkseinkunn nær í fyrstu tilraun. Gagnrýni og framtíðarhorfur Eitt af því sem gagnrýnt hefur verið er að prófið sé of erfitt, m.ö.o. geri of miklar kröfur til próftaka. í þessu sambandi er vert að hafa í huga að verið er að veita einstaklingum réttindi til þess að sannreyna réttmæti fjárhagsupplýsinga hjá öllum rekstrareiningum, þ.m.t. fyrirtækjum tengdum almannahags- munum og hjá stórum og flóknum fyrirtækjum og fyrirtækja- samsteypum, sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við gerð reikningsskila sinna. Flest þessara fyrirtækja eiga í alþjóð- legum samskiptum og f samræmi við lög og samninga sem ísland hefur gert við önnur þjóðríki og félagasamtök þarf að sannreyna réttmæti upplýsinganna samkvæmt alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum. Þó færa megi fyrir því rök að mikill meirihluti fyrirtækja hér á landi þurfi ekki á svo veigamiklu regluverki að halda, standa engin rök til þess að gefa afslátt af kröfum til þeirra einstaklinga sem veitt eru æðstu réttindi hér á landi til að sannreyna réttmæti reikningsskila og eru löggild- ingarprófin við það miðuð. Reynt er að gæta þess að kröfur hér á landi séu í samræmi við kröfur sem gerðar eru í okkar helstu nágranna- og viðskiptalöndum. Annað sem hefur verið gagnrýnt er að of langan tíma taki að leiða í Ijós hvort einstaklingur stenst þær kröfur sem gerðar eru til þess að öðlast löggildingu. Þá hefur lágt hlutfall þeirra sem gangast undir próf og standast lágmarkskröfur verið gagnrýnt. Að því er varðar prófnefndina hefur áður verið gerð grein fyrir því hvað ráði ferð við gerð prófa, framkvæmd og yfirferð. Hinu er ekki að leyna að marktækur munur virðist vera á árangri próf- taka eftir því hvaðan þeir koma. Hér þarf væntanlega að skoða ráðningarferli, gæði starfsnáms og hvaða skilaboð eru gefin þeim sem starfsnám stunda. Er t.d. reglubundið rætt við nema í starfsnámi, hvort þeir eiga erindi í löggildingarpróf að mati umsjónarendurskoðanda eða þurfi að bæta úr á vissum sviðum áður en það skref er stigið? Umræða í þessa veru, sem getur fært okkur fram á við, er væntanlega öllum til hagsbóta. FLE blaðið janúar2016 • 11

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.