Ráðunautafundur - 13.02.1978, Side 94
288
Gæti þar m.a. verið um að ræða þau áhrif, sem fyrr var minnst
á, nefnilega virkari útilokun súrefnis frá tætta fóðrinu en
því heila á frumstigi verkunarinnar - fyrst eftir hirðingu.
Af rælni var reiknuð fylgni dýptar á sýni frá yfirborði
og talna um gæði votheysins og verkun:
dýpt - meltanleiki, \
dýpt - hráprótein, %
dýpt - sýrustig, pH
dýpt - ammoníaktala
dýpt - þurrefni, %
og verkun:
r= -0,19 t= 0,66
r= -0,39 t= 1,47
r= 0,19 t= 0,68
r= 0,42 t- 1,60
r= -0,35 t= 1,28
Samkvæmt þessum tölum gætir tilhneigingar í þá átt, að
gæði og verkun fáðursins fari heldur versnandi eftir því
sem neðar dregur í stæðuna. Er þetta andstætt því, sem
vænta má, þar eð að öðru jöfnu má ætla að besta hráefnið
(fyrst slegið) lendi neðst í geymslunni. Kann skýring á
þessu að vera sú, að súrefni hafi fremur náð að leika um
hin neöri lög meðan á fyllingu stóð en hin efri, þar sem
skemmri tími hlýtur að hafa liðið frá hirðingu til þess txma,
er stæðunni var lokað. Kemur þetta heim og saman við áður-
nefnd áhrif fyllingartíma geymslunnar á fóðurgildi heysins.
Hugsanlegt er einnig, að vætustig heysins eigi her nokkurn
hlut að máli, en þurrefnisprósenta þess lækkaði nokkuð með
dýpt í stæðu.
Þakkir
Úg þakka þeim, er hlut eiga að tilurð þessarar greinar-
gerðar. Má þar nefna Byggingastofnun landbúnaðarins, sem
skipulagði ferðina og undirbjó, heraðsráðunauta Húnvetninga
o^ Strandamanna og byggingafulltrúa umdæmisins, In^var Gýgjar
Jonsson, er önnuðust leiðsögu, Gretar Einarsson, serfræðing,
sem vann að sýnatöku með undirrituöum og Tryggva Eiríksson,
aðstoðarserfræðing, sem sá um efnagreiningar. Síöast en ekki
sist þakka ég bændum, sem heimsóttir voru, greinargóð svör,
svo og þolinmæði og lipurð við móttöku hins spurula flokks
votheysáhugamanna x febrúar síðastliðnum.
Heimildir
1. Gunnar úlafsson og fleiri 1975: Töðugæði.
Fóðurráðstefna 10.-15. febr. 197 5 , fjölr. 7 bls.
2. Nörgaard Pedersen, E.J. og Witt, N., 1973: Ensilerings-
midlers virkning. Tidsskr. f. Planteavl, 77 (3):
415-424.
3. Whittenbury, R. et al., 1967: A short review of some
biochemical and microbiological aspects of ensilage.
J. Sci. Fd Agric. 18: 441-444.
a?.-