Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Qupperneq 17
Flutningaþjónusta Kynningarblað Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 8. mars 2016 Cargo: Útleiga á sendibílum og kassabílum með lyftum C argo sendibílaleiga sérhæfir sig í útleigu á sendi- og kassabílum með lyftu til flutninga á búslóðum og vörum. Þar leigir þú þann bíl sem hentar þínum flutningum, ekur sjálfur/sjálf og sparar því umtals- verðan kostnað. Bílafloti til búslóðaflutninga Gunnar Haraldsson, eigandi Cargo sendibíla, segir bílaflota fyrirtækis- ins samanstanda af þremur bíla- stærðum. „Í 1.100 kílóa flokkunum erum við með minni sendibíla sem hafa alveg einstaklega góða aksturseiginleika og eyða litlu eldsneyti.1.200 kílóa flokkurinn er kassabílar með lyftu sem eru einstaklega góður kostur til flutn- inga á stórum og meðalstórum búslóðum. Á þessa bíla þarf ekki meirapróf og eru þeir sparneytnir. Stærsti bíllinn okkar er Benz Atego, kassabíll með lyftu, sem hefur 2.500 kílóa burðargetu og lyftigetan er 750 kíló,“ segir hann. „Þessi bíll er frá- bær ef um þyngri flutninga er að ræða og hent- ar einstaklega vel til flutninga á búslóðum út á land. Á þennan bíl þarf meirapróf eða hafa tekið ökupróf fyrir 1988.“ Trillur og brettatjakkar „Við erum síðan einnig með hjálpar- tæki til þess að auðvelda fólki flutn- ingana, eins og sekkjatrillu, sem er með burðargetu upp að 200 kíló- um. Þetta er létt handtrilla með föstum palli. Svo er einnig hægt að leigja tröpputrillu sem flytur þunga hluti bæði upp og niður stiga. Báðar trillurnar eru íslensk framleiðsla. Trillurnar reynast mjög góðar til þess að flytja t.d. þvottavélar og ís- skápa úr stað. Við erum líka með brettatjakka ef um er að ræða vörur á brettum eða sterk bönd til þess að festa vörurnar í bílunum.“ Að leigja sendibíl Að sögn Gunnars þarf viðskiptavinur sem hyggst leigja sendibíl að framvísa ökuskírteini og kreditkorti sem tryggingu fyrir leigu sendibifreiðar- innar. „Vert er að taka fram að leigu- taki þarf ekki að vera með meirapróf til að leigja sendibíl með burðargetu 1.200 kíló og undir. Leigutaki leigir sendibílinn fullan af eldsneyti og skilar svo tanknum fullum.“ Cargo sendibílaleiga, Skemmu- vegi 32 (bleik gata), 200 Kópavogur. Sími: 566 5030. Tölvupóstfang:in- fo@cargobilar.is Opnunartími: Alla virka daga frá kl. 8.00–18.00 og um helgar frá klukkan 10.00–16.00. www.cargobilar.is n Bjóða einnig trillur og brettatjakka til að auðvelda flutningana Þú leigir hjá okkur sendibíl í stærð sem hentar fyrir þig, með eða án lyftu, og keyrir sjálfur. Hafðu samband í síma 566 5030 – Cargobilar.is Ertu að flytja? Vantar þig sEndibíl?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.