Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Blaðsíða 30
22 Menning Vikublað 8.–10. mars 2016
Í
slenska óperan frumsýndi á
dögunum Don Giovanni í leik-
stjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur
við gríðarlega góðar viðtökur
sýningargesta. Meðal söngvara
eru Oddur Arnþór Jónsson sem
fer með hlutverk Don Giovanni,
Tomislav Lavoie, Þóra Einarsdóttir,
Hanna Dóra Sturludóttir, Hallveig
Rúnarsdóttir og Elmar Gilbertsson.
Óperan segir frá Don Giovanni,
sem leggur land undir fót og heillar
og tælir konur um gjörvalla Evrópu.
Ógæfan dynur yfir þegar Don
Giovanni fremur voðaverk.
Elmar Gilbertsson, sem fer með
hlutverk Don Ottavio, í óperunni
hefur búið í Hollandi frá árinu 2007
þegar hann fór þangað til náms.
Hann var í fjögur ár í Amsterdam og
flutti síðan til Maastricht þar sem
hann var um tíma á föstum samn-
ingi hjá óperunni í þeirri borg. Nú
býr hann í Den Haag. „Þar er dá-
samlegt að vera þar, ég bý í hverfi
sem er rétt hjá strandbæ og er tíu
mínútur að hjóla niður á strönd,“
segir hann. Hann er ekki á föstum
samningi hjá óperuhúsi en hefur
feikinóg að gera og hefur sungið í
fjölmörgum óperuhúsum og tón-
leikasölum í Evrópu. „Ég hef verið
heppinn en þetta er mikil barátta
og ég er á stöðugum þeytingi. Sem
dæmi má nefna að mér telst til að
árið 2014 hafi ég verið 288 daga
fjarri heimili mínu.“
Spurður um nýjasta verk-
efnið, hlutverk í Don Giovanni,
segir hann: „Þessi ópera hefur allt
til brunns að bera sem einkennir
klassíska óperu. Sagan er gríp-
andi og skemmtileg. Hún fjallar
um flagarann Don Giovanni og þar
koma meðal annars við sögu gaml-
ar kærustur sem eru ekki alls kostar
ánægðar með okkar mann. Í alvöru
óperu er einhver drepinn og það
gerist þarna og þess þarf að hefna.
Tónlistin er náttúrlega algjörlega
einstök og Mozart nær að glæða
söguna lífi á fallegan og skemmti-
legan hátt.“
Elmar er ekki í aðalhlutverki í
óperunni og þegar hann er spurð-
ur hvort honum þyki það ekki verra
segir hann: „Nei, alls ekki. Það er
oft virkilega gaman að takast á við
aukapersónur, það þarf að gæða
þær lífi eins og aðra karaktera og
þær skipta yfirleitt miklu máli í
sögunni. Don Ottavio gerir það
sannarlega.“
„Það bara gerðist"
Íslenskir óperuunnendur tóku fyrst
eftir Elmari í óperunni Ragnheiði
en þar stal hann senunni í hlutverki
Daða. Hann hlaut einróma lof fyrir
frammistöðu sína. „Ef ég á að vera
alveg hreinskilinn þá bjóst ekki við
þessum viðtökum,“ segir hann. „Ég
„Syng
meðan
ég get“
Elmar Gilbertsson fer með hlutverk í Don Giovanni.
Hann syngur í óperuhúsum og tónleikasölum víða um heim
„Ég hef verið
heppinn en
þetta er mikil barátta
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is „Ég er á stöðug-
um þeytingi. Sem
dæmi má nefna að mér
telst til að árið 2014 hafi
ég verið 288 daga fjarri
heimili mínu.
Gerðu daginn
eftirminnilegan
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Bakarameistari & Konditormeistari
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is