Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Side 6
Helgarblað 2.–5. desember 20166 Fréttir
lóð landsbankans
veldur áhyggjum
n ekki liggur enn fyrir hvort landsbankinn byggir við austurhöfn n óvissuþáttur fyrir fjárfesta
Bankaráð Landsbankans hefur
ekki enn ákveðið hvort og þá hvenær
nýjar höfuðstöðvar fyrirtækis-
ins verða byggðar við Austurhöfn
í Reykjavík. Tvö og hálft ár er liðið
síðan bankinn keypti lóð sína þar
á tæpan milljarð króna en hönnun
byggingarinnar er ekki hafin. Fjár-
festar sem koma að öðrum bygginga-
framkvæmdum við Hörpu óttast
að seinagangur Landsbankans geti
stefnt uppbyggingu þar í hættu. Lóð
bankans sé stærsti óvissuþátturinn í
fjárfestingum þeirra og því hafi þeir
meðal annars leitað til borgaryfir-
valda og óskað eftir aðkomu þeirra
að málinu.
„Bankinn frestaði á sínum tíma
hönnunarsamkeppni til að fara yfir
þau sjónarmið sem fram höfðu kom-
ið, meðal annars um staðarval. Sú
vinna stendur enn yfir. Ekki hefur
verið tekin ákvörðun í málinu,“ seg-
ir Helga Björk Eiríksdóttir, formaður
bankaráðs Landsbankans, í skriflegu
svari við fyrirspurn DV.
Ekkert sagt
Landsbankinn keypti lóðina við
Austurhöfn af Sítus ehf., dótturfélagi
Reykjavíkurborgar og ríkisins, á 957
milljónir króna í maí 2014. Stjórn-
endur bankans viðruðu í kjölfarið
þá hugmynd að nýjar höfuðstöðvar
fyrirtækisins yrðu byggðar á lóð-
inni og var hún gagnrýnd af ýmsum
stjórnarþingmönnum og þáverandi
forsætisráðherra, Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni. Í byrjun júlí 2015 til-
kynnti bankinn um ákvörðun sína
um að ráðast í framkvæmdina sem
átti þá að hefjast í lok þessa árs eða
byrjun 2017. Heildarfjárfesting með
lóðarverði átti að nema átta millj-
örðum króna og byggingin að vera
um 16.500 fermetrar. Kom þá fram
að bankaráð Landsbankans hefði
fjallað um valkosti fyrir nýjar höfuð-
stöðvar allt frá árinu 2010 og að hag-
kvæmast væri að byggja við Hörpu.
Ákvörðun bankans var harð-
lega gagnrýnd og í ágúst í fyrra
var hönnunarsamkeppni um
bygginguna frestað. Steinþór Páls-
son, fyrrverandi bankastjóri Lands-
bankans, sagði þá að bregðast þyrfti
við gagnrýni frá háttsettum stjórn-
málamönnum og að til greina kæmi
að hætta við bygginguna. Hönnunar-
samkeppnin er enn ekki hafin og
stjórnendur bankans hafa ekki tjáð
sig um málið opinberlega síðan í
apríl. Tryggvi Pálsson, fyrrverandi
formaður bankaráðs Landsbank-
ans, sagði þá í ræðu sinni á aðalfundi
bankans að ráðið væri enn á þeirri
skoðun að flytja ætti starfsemina í
nýja byggingu við Austurhöfn. Áður
en næstu skref yrðu tekin þyrfti hins
vegar að liggja fyrir að langstærsti
eigandi bankans, íslenska ríkið, setti
sig ekki upp á móti slíkum áformum.
Endurskoðaðir útreikningar bank-
ans sýndu að spara mætti hundruð
milljóna á ári með flutningi í nýja
byggingu.
Helga Björk Eiríksdóttir var kjörin
formaður bankaráðs Landsbankans
í apríl. Í skriflegri fyrirspurn DV til
hennar óskaði blaðið eftir upplýs-
ingum um hvort ráðið hafi komist
að niðurstöðu í málinu og hvort það
hefði tekið það fyrir síðan sjö að-
almenn ráðsins voru kjörnir í vor.
„Þetta mál hefur verið rætt á fundum
bankaráðs og er til skoðunar innan
bankans,“ segir í svari hennar.
Kjallari og verslanir
Jarðvinna vegna fimm stjörnu lúx-
ushótelsins Marriott Edition hófst í
sumar en það á að opna í lok 2018.
Eins og DV fjallaði um var verkefnið
fullfjármagnað í byrjun október með
þátttöku innlendra og erlendra fjár-
festa. Bandaríska fasteignafélagið
Carpenter & Company er hluthafi
í verkefninu en einnig fjárfestarnir
Finnur Reyr Stefánsson, Hjörleifur
Þór Jakobsson, Eggert Dagbjarts-
son, Hreggviður Jónsson og fleiri. Þá
eru nokkrir lífeyrissjóðir hluthafar í
verk efninu. Þeir Eggert og Hreggvið-
ur eiga að auki 80 prósent í félaginu
Kolufell ehf. sem ætlar að byggja
íbúða- og verslunarhúsnæði á þriðju
lóðinni á Austurhafnarreitnum. Þeir
keyptu sig inn í félagið í júlí og kom
þá fram að framkvæmdir við íbúðar-
og verslunarhúsnæði þar væru
hafnar. Verktakafyrirtækið ÞG Verk á
byggingarreitinn Hafnartorg á gamla
bílastæðinu við Tollhúsið. Byggingar
á þeim reit eiga að tengjast Austur-
hafnarhlutanum með göngugötu
og sameiginlegum bílastæða-
kjallara. Fasteignafélagið Reg-
inn hefur keypt verslunar-
húsnæði á reitnum þar
sem meðal annars stend-
ur til að opna fataversl-
un H&M.
Þeir hagsmunaaðil-
ar á svæðinu sem DV
ræddi við, og vildu ekki
láta nafns síns getið,
hafa áhyggjur af því
hversu hægt Lands-
bankanum miðar í átt
að ákvörðun um nýjar
höfuðstöðvar. Óttast
þeir að ekkert
muni gerast
á lóðinni
á næstu
mánuð-
um og
jafnvel
árum. Benda þeir á að erfitt verði
að reka lúxushótel á meðan aðr-
ar framkvæmdir á reitnum standi
yfir. Einnig verði stór bílastæðakjall-
ari undir byggingunum við Austur-
höfn og á Hafnartorgi sem Lands-
bankinn þyrfti að taka þátt í. Svo
geti farið að hann verði byggður án
aðkomu bankans. Ekki sé hægt að
byggja slíkan kjallara undir byggingu
sem ekki sé búið að hanna. Að auki
þurfi Landsbankinn, eins og aðrir
lóðareigendur á svæðinu, að tryggja
að jarðhæð byggingarinnar verði
skipulögð sem verslunarhúsnæði.
Hafnartorgið og byggingar við
Austur höfn muni státa af fjórtán
þúsund fermetra verslunar plássi og
framkvæmdaaðilar þurfi í vissum til-
vikum að byggja ákvarðanir sínar á
fyriráætlunum nágranna sinna.
Miklir hagsmunir
Haraldur Flosi Tryggvason,
l ögmaður Carpenter & Company
á Íslandi, bendir aftur á móti á að
þær framkvæmdir á reitnum sem
ekki tengjast Landsbankanum hafi
einnig tafist. Stutt sé síðan fjármögn-
un hótelsins lauk.
„Eftir því sem verkefnið þróast
lengra þá fer að verða æskilegra að
þessu sé lokað. Það eru miklir hags-
munir bundnir við það, bæði í sam-
eiginlegri byggingu bílastæða og síð-
an mótun götumyndarinnar. Þetta
hefur í gegnum tíðina verið rætt við
borgar yfirvöld og auð-
vitað hafa menn full-
an skilning á því að
framkvæmdahraði
er misjafn. Eins og
það horfir við öðr-
um lóðarhöfum
þá hefur ekki ver-
ið tekin ákvörðun
um framkvæmd-
ir hjá Landsbank-
anum,“ segir Har-
aldur Flosi. DV
óskaði eftir viðtali
við Dag B. Eggerts-
son borgarstjóra
sem hann sá
sér ekki
fært að
veita. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Formaður bankaráðsins Helga Björk Eiríksdóttir
var kjörin formaður bankaráðs Landsbankans í apríl.
Harpan og lóðirnar Framkvæmdir
við bílastæðakjallara lúxushótels
Marriott Edition og íbúða- og verslunar-
húsnæði Kolufells ehf. hófust í sumar.
Landsbankinn á þann hluta reitsins sem
er til vinstri á myndinni. Mynd SiGtryGGur Ari
Lögmaður Carpenter Haraldur Flosi
Tryggvason segir lóðarhafa við Austur höfn
líta svo á að Landsbankinn hafi ekki komist
að ákvörðun um hvort höfuðstöðvar fyrir-
tækisins verði byggðar á lóð þess.
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Yfirfærum
yfir 30 gerðir
myndbanda,
slides og
fleira
Björgum
minningum
Persónulegar
gjafir við öll
tækifæri
Allt til að
merkja
vinnustaðinn