Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 2.–5. desember 20166 Fréttir lóð landsbankans veldur áhyggjum n ekki liggur enn fyrir hvort landsbankinn byggir við austurhöfn n óvissuþáttur fyrir fjárfesta Bankaráð Landsbankans hefur ekki enn ákveðið hvort og þá hvenær nýjar höfuðstöðvar fyrirtækis- ins verða byggðar við Austurhöfn í Reykjavík. Tvö og hálft ár er liðið síðan bankinn keypti lóð sína þar á tæpan milljarð króna en hönnun byggingarinnar er ekki hafin. Fjár- festar sem koma að öðrum bygginga- framkvæmdum við Hörpu óttast að seinagangur Landsbankans geti stefnt uppbyggingu þar í hættu. Lóð bankans sé stærsti óvissuþátturinn í fjárfestingum þeirra og því hafi þeir meðal annars leitað til borgaryfir- valda og óskað eftir aðkomu þeirra að málinu. „Bankinn frestaði á sínum tíma hönnunarsamkeppni til að fara yfir þau sjónarmið sem fram höfðu kom- ið, meðal annars um staðarval. Sú vinna stendur enn yfir. Ekki hefur verið tekin ákvörðun í málinu,“ seg- ir Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, í skriflegu svari við fyrirspurn DV. Ekkert sagt Landsbankinn keypti lóðina við Austurhöfn af Sítus ehf., dótturfélagi Reykjavíkurborgar og ríkisins, á 957 milljónir króna í maí 2014. Stjórn- endur bankans viðruðu í kjölfarið þá hugmynd að nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins yrðu byggðar á lóð- inni og var hún gagnrýnd af ýmsum stjórnarþingmönnum og þáverandi forsætisráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Í byrjun júlí 2015 til- kynnti bankinn um ákvörðun sína um að ráðast í framkvæmdina sem átti þá að hefjast í lok þessa árs eða byrjun 2017. Heildarfjárfesting með lóðarverði átti að nema átta millj- örðum króna og byggingin að vera um 16.500 fermetrar. Kom þá fram að bankaráð Landsbankans hefði fjallað um valkosti fyrir nýjar höfuð- stöðvar allt frá árinu 2010 og að hag- kvæmast væri að byggja við Hörpu. Ákvörðun bankans var harð- lega gagnrýnd og í ágúst í fyrra var hönnunarsamkeppni um bygginguna frestað. Steinþór Páls- son, fyrrverandi bankastjóri Lands- bankans, sagði þá að bregðast þyrfti við gagnrýni frá háttsettum stjórn- málamönnum og að til greina kæmi að hætta við bygginguna. Hönnunar- samkeppnin er enn ekki hafin og stjórnendur bankans hafa ekki tjáð sig um málið opinberlega síðan í apríl. Tryggvi Pálsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbank- ans, sagði þá í ræðu sinni á aðalfundi bankans að ráðið væri enn á þeirri skoðun að flytja ætti starfsemina í nýja byggingu við Austurhöfn. Áður en næstu skref yrðu tekin þyrfti hins vegar að liggja fyrir að langstærsti eigandi bankans, íslenska ríkið, setti sig ekki upp á móti slíkum áformum. Endurskoðaðir útreikningar bank- ans sýndu að spara mætti hundruð milljóna á ári með flutningi í nýja byggingu. Helga Björk Eiríksdóttir var kjörin formaður bankaráðs Landsbankans í apríl. Í skriflegri fyrirspurn DV til hennar óskaði blaðið eftir upplýs- ingum um hvort ráðið hafi komist að niðurstöðu í málinu og hvort það hefði tekið það fyrir síðan sjö að- almenn ráðsins voru kjörnir í vor. „Þetta mál hefur verið rætt á fundum bankaráðs og er til skoðunar innan bankans,“ segir í svari hennar. Kjallari og verslanir Jarðvinna vegna fimm stjörnu lúx- ushótelsins Marriott Edition hófst í sumar en það á að opna í lok 2018. Eins og DV fjallaði um var verkefnið fullfjármagnað í byrjun október með þátttöku innlendra og erlendra fjár- festa. Bandaríska fasteignafélagið Carpenter & Company er hluthafi í verkefninu en einnig fjárfestarnir Finnur Reyr Stefánsson, Hjörleifur Þór Jakobsson, Eggert Dagbjarts- son, Hreggviður Jónsson og fleiri. Þá eru nokkrir lífeyrissjóðir hluthafar í verk efninu. Þeir Eggert og Hreggvið- ur eiga að auki 80 prósent í félaginu Kolufell ehf. sem ætlar að byggja íbúða- og verslunarhúsnæði á þriðju lóðinni á Austurhafnarreitnum. Þeir keyptu sig inn í félagið í júlí og kom þá fram að framkvæmdir við íbúðar- og verslunarhúsnæði þar væru hafnar. Verktakafyrirtækið ÞG Verk á byggingarreitinn Hafnartorg á gamla bílastæðinu við Tollhúsið. Byggingar á þeim reit eiga að tengjast Austur- hafnarhlutanum með göngugötu og sameiginlegum bílastæða- kjallara. Fasteignafélagið Reg- inn hefur keypt verslunar- húsnæði á reitnum þar sem meðal annars stend- ur til að opna fataversl- un H&M. Þeir hagsmunaaðil- ar á svæðinu sem DV ræddi við, og vildu ekki láta nafns síns getið, hafa áhyggjur af því hversu hægt Lands- bankanum miðar í átt að ákvörðun um nýjar höfuðstöðvar. Óttast þeir að ekkert muni gerast á lóðinni á næstu mánuð- um og jafnvel árum. Benda þeir á að erfitt verði að reka lúxushótel á meðan aðr- ar framkvæmdir á reitnum standi yfir. Einnig verði stór bílastæðakjall- ari undir byggingunum við Austur- höfn og á Hafnartorgi sem Lands- bankinn þyrfti að taka þátt í. Svo geti farið að hann verði byggður án aðkomu bankans. Ekki sé hægt að byggja slíkan kjallara undir byggingu sem ekki sé búið að hanna. Að auki þurfi Landsbankinn, eins og aðrir lóðareigendur á svæðinu, að tryggja að jarðhæð byggingarinnar verði skipulögð sem verslunarhúsnæði. Hafnartorgið og byggingar við Austur höfn muni státa af fjórtán þúsund fermetra verslunar plássi og framkvæmdaaðilar þurfi í vissum til- vikum að byggja ákvarðanir sínar á fyriráætlunum nágranna sinna. Miklir hagsmunir Haraldur Flosi Tryggvason, l ögmaður Carpenter & Company á Íslandi, bendir aftur á móti á að þær framkvæmdir á reitnum sem ekki tengjast Landsbankanum hafi einnig tafist. Stutt sé síðan fjármögn- un hótelsins lauk. „Eftir því sem verkefnið þróast lengra þá fer að verða æskilegra að þessu sé lokað. Það eru miklir hags- munir bundnir við það, bæði í sam- eiginlegri byggingu bílastæða og síð- an mótun götumyndarinnar. Þetta hefur í gegnum tíðina verið rætt við borgar yfirvöld og auð- vitað hafa menn full- an skilning á því að framkvæmdahraði er misjafn. Eins og það horfir við öðr- um lóðarhöfum þá hefur ekki ver- ið tekin ákvörðun um framkvæmd- ir hjá Landsbank- anum,“ segir Har- aldur Flosi. DV óskaði eftir viðtali við Dag B. Eggerts- son borgarstjóra sem hann sá sér ekki fært að veita. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Formaður bankaráðsins Helga Björk Eiríksdóttir var kjörin formaður bankaráðs Landsbankans í apríl. Harpan og lóðirnar Framkvæmdir við bílastæðakjallara lúxushótels Marriott Edition og íbúða- og verslunar- húsnæði Kolufells ehf. hófust í sumar. Landsbankinn á þann hluta reitsins sem er til vinstri á myndinni. Mynd SiGtryGGur Ari Lögmaður Carpenter Haraldur Flosi Tryggvason segir lóðarhafa við Austur höfn líta svo á að Landsbankinn hafi ekki komist að ákvörðun um hvort höfuðstöðvar fyrir- tækisins verði byggðar á lóð þess. Sími: 562 5900 www.fotomax.is Yfirfærum yfir 30 gerðir myndbanda, slides og fleira Björgum minningum Persónulegar gjafir við öll tækifæri Allt til að merkja vinnustaðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.