Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Qupperneq 8
Helgarblað 2.–5. desember 20168 Fréttir
K
atrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, telur af-
farasælast að mynduð verði
þjóðstjórn allra flokka sem
sæti eiga á Alþingi. Hún tel-
ur jafnframt að eðlilegast væri að
kosið yrði á nýjan leik eftir einhvern
ákveðinn tíma. Upp úr viðræðum
Katrínar og Bjarna Benediktssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins, um
hugsanlega stjórnarmyndun slitnaði
í gær, fimmtudag.
Katrín og Bjarni hófu viðræður 29.
nóvember. Samkvæmt heimildum
DV þótti Vinstri grænum Sjálfstæð-
isflokkurinn lítt tilbúinn til að gera
málamiðlanir og fáar handfastar til-
lögur hefðu komið fram um hvernig
flokkarnir gætu náð saman. Sjálf-
stæðismönnum mun aftur á móti
hafa komið á óvart hversu fast Vinstri
græn stóðu á sínum áherslum. Of
langt hafi einfaldlega verið milli
flokkanna tveggja málefnalega til að
þeir gætu náð saman.
Eðlilegt að ræða við Bjarna
Katrín segir að eðlilegt hafi verið að
eiga viðræður við Bjarna í ljósi stöð-
unnar sem upp var komin. „Þetta
var gott samtal og mér fannst dýr-
mætt að eiga það, ég held að það
gæti orðið gott veganesti fyrir sam-
starfið í þinginu. Ég held að þessir
flokkar skilji hvor annan betur nú
en áður. Það var hins vegar langt á
milli flokkanna. Ég myndi ekki segja
að það hafi steytt á neinu sérstöku,
enda voru þetta ekki orðnar form-
legar viðræður.“
Spurð hvort það hafi haft ein-
hver áhrif á viðræðurnar að fregnir
höfðu borist af takmörkuðum áhuga
hugsanlegra samstarfsflokka, Sam-
fylkingar og Bjartrar framtíðar, á að-
komu að stjórnarsamstarfinu svaraði
Katrín því neitandi. „Það spilaði ekki
inn í niðurstöðuna.“
Ekki bjartsýn á fimm flokka stjórn
Sem kunnugt er áttu fulltrúar Pírata,
Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og
Samfylkingar óformlegar viðræð-
ur í fyrradag þar sem til umræðu
var að hefja hugsanlega formlegar
stjórnar myndunarviðræður á nýj-
an leik. Birgitta Jónsdóttir, þingmað-
ur Pírata, setti sig í gær í samband
við Katrínu og ámálgaði við hana
hugsan lega aðkomu Vinstri grænna
að viðræðum um fimm flokka ríkis-
stjórn á nýjan leik. Katrín segir engar
ákvarðanir muni verða teknar í þeim
efnum fyrr en þingflokkur Vinstri
grænna hafi fundað og það muni í
fyrsta lagi gerast í dag, föstudag. „Það
liggur fyrir að það slitnaði upp úr við-
ræðum þessara fimm flokka vegna
þess að Viðreisn hafði ekki sannfær-
ingu fyrir því að þetta samstarf gæti
gengið upp. Ég veit ekki hvað ætti að
hafa breyst í þeim efnum.“
Katrín segir ekki tímabært að
ræða hvort Vinstri græn muni koma
að viðræðunum. „Mér finnst kannski
bara ástæða til þess að flokkarnir velti
fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til
að mynda hérna þjóðstjórn og kjósa
að nýju eftir einhvern ákveðinn tíma.
Ég velti fyrir mér hvort það sé ekki
bara einfaldast í ljósi stöðunnar.“
Takmarkaður áhugi Vinstri grænna
Eftir því sem heimildir DV herma
er vilji til þess af hálfu flokkanna
fjögurra sem funduðu í fyrradag
að reyna að ná saman um myndun
ríkis stjórnar. Sá vilji er hins vegar
takmarkaður í röðum Vinstri grænna
enda telja þingmenn flokksins að
ekki verði lengra komist í viðræðum
nema um verulega stefnubreytingu
verði að ræða af hálfu Viðreisnar.
Vinstri græn hafi komið verulega til
móts við Viðreisn í fyrri viðræðum
flokkanna en hafi fátt fengið til baka.
Komi Vinstri græn ekki að
borðinu í viðræðum við flokkana
fjóra er staðan orðin mjög þröng.
Þingmenn Viðreisnar eru þannig
mjög óánægðir með framgöngu
Bjarna Benediktssonar og
Sjálfstæðisflokksins á dögunum,
þegar að Bjarni hélt ekki áfram
viðræðum við Viðreisn og Bjarta
framtíð en kaus að taka upp samtal
við Katrínu. Flokksmenn Viðreisnar
munu því ekki spenntir fyrir að taka
að nýju upp þær viðræður.
Framsókn enn út úr myndinni
Framsóknarflokkurinn hefur staðið
utan viðræðna fram að þessu og fátt
bendir til þess að breyting verði á því.
Þannig staðfesti Smári McCarthy í
samtali við DV að Píratar útilokuðu
enn sem fyrr samstarf við flokkinn,
og raunar einnig samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn. Því væri sú lausn
ekki í boði að fá Framsóknarflokkinn
inn í stað Vinstri grænna í fimm
flokka stjórn. Viðreisn hefur útilokað
að starfa með Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki í ríkisstjórn fram
til þessa og fátt sem bendir til að
breyting verði þar á. Því gæti niður-
staðan allt eins orðið sú sem Katrín
varpar nú fram, að mynduð verði
þjóðstjórn og boðað til kosninga að
nýju, mun fyrr en ella. n
Katrín vill
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is „Ég myndi
ekki segja
að það hafi steytt
á neinu sérstöku,
enda voru þetta
ekki orðnar form-
legar viðræður.
n Telur að kjósa ætti að nýju eftir ákveðinn tíma n Svartsýn á fimm flokka stjórn
mynda þjóðstjórn
Ný nálgun Katrín telur heppilegast,
í ljósi stöðunnar, að mynduð verði
þjóðstjórn og kosið að nýju eftir
ákveðinn tíma. MyNd SigTRygguR ARi