Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Síða 10
Helgarblað 2.–5. desember 201610 Fréttir
B
rautarholt er kirkjustaður frá
fornu fari og þekkt stórbýli.
Jörðin er óðalsjörð og er þess
vegna enn í eigu Kristins
Gylfa Jónssonar þrátt fyrir
að hann eigi eitt stærsta persónulega
gjaldþrot Íslandssögunnar á feril
skránni. Kristinn var úrskurðaður
gjaldþrota árið 2004 og fengust engar
greiðslur upp í kröfur sem námu
1.200 milljónum króna. Kristinn var
sakaður um að mismuna kröfuhöf
um og þegar bjóða átti upp jörðina
flæktust málin. Jörðin var veðsett en
þar sem um óðalsjörð var að ræða var
ekki hægt að taka jörðina af Kristni og
bræðrum hans. Hún er því enn í dag
í eigu þeirra.
Faðir Kristins, Jón Ólafsson, og
föðurbróðir, Páll Ólafsson, tóku við
búi af föður sínum árið 1954. Þar ráku
þeir bræður grasmjölsverksmiðju frá
1963 og einu einkareknu grasköggla
verksmiðju landsins frá 1972 til 1999.
Frá árinu 1982 rak Jón svo svína
bú ásamt sonum sínum sem seinna
varð stórveldi á íslenskum markaði.
Keyptu þeir feðgar hluti í ýmsum
fyrir tækjum. Jón lét einnig til sín taka
í Sjálfstæðisflokknum.
Það átti eftir slettast upp á vin
skapinn hjá þeim bræðrum, Jóni og
Páli, sem höfðu rekið sín fyrirtæki
í mesta bróðerni. Páll lokaði gras
kögglaverksmiðjunni og hans hluti
jarðarinnar varð síðar golfvöllur. Jón
hóf með sonum sínum uppbyggingu
á nútíma svínabúi á jörðinni en
svínarækt hafi verið þar allt frá ár
inu 1957. Jörðinni var skipt árið 1989
á milli bræðranna. Árið 1997 ákváðu
Jón og synir hans að stækka búið;
gyltur höfðu verið 270 en urðu nú
560. Var Páll ósáttur við að bróðir
hans og frændur byggðu svínabúið í
aðeins 325 metra fjarlægð frá íbúðar
húsi hans þegar heilbrigðisreglur
kváðu á um að minnst 500 metrar
væru á milli slíks bús og íbúðarhúss.
Úrskurðarnefnd umhverfis og auð
lindamála ákvað engu að síður að
samþykkja byggingu svínabúsins.
Aftur lenti þeim bræðrum saman
þegar Páll hélt því fram að Kristinn
og synir hans hefðu sturtað þúsund
um tonna af svínaskít í sjóinn. Veitti
heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur svína
búinu áminningu vegna sóðaskapar
ins. Á þeim tíma var framleiðslugeta
Brautarholtsbúsins 12.000 eldisgrísir
en í búinu voru 560 gyltur. Áætlað
var að 12.800 tonn af skít kæmu frá
búinu á hverju ári. Þá var búið rekið
án starfsleyfis árið 2000. Sáust leifar
af skítnum í fjörunni. Frá þessu er
greint í janúar árið 2000. Það var
þó ekki fyrr en tæplega ári síðar að
búinu var bannað að dæla meiri
svínaskít í sjóinn. Brautarholtsbúið
hafði áður ratað á síður blaðanna
vegna sóðaskapar en árið 1992 þurfti
Kristinn að svara fyrir það að sturta
dauðum kjúklingum niður í fjöru.
Sagði heilbrigðisstarfsmaður að um
vítavert athæfi væri að ræða. Viður
kenndi Kristinn að um ámælisvert
brot væri að ræða. Hélt hann því fram
að kjúklingunum hefði verið sturtað í
fjöruna fyrir mistök.
Ris og fall
Upp úr 2000 gerðust Kristinn og
bræður hans afar umsvifamiklir í
íslensku viðskiptalífi. Áður höfðu
Brautarholtsfeðgar komið sér upp
kjúklingabúi en þeir keyptu í Móa
búinu árið 1985. Móabúið var það
ár með um 8 prósenta markaðshlut
deild á kjúklingamarkaði. Árið 2000
var Móabúið með um þriðjung á
markaði. Fyrirtækið Nesbú var svo
með minnst 45 þúsund hænur.
Kristinn og bræður hans höfðu
stækkað svínabúið hratt og við upp
byggingu keyptu þeir sig inn í fyrir
tæki sem voru að vinna vörur úr
svínakjöti. Í umfjöllun Morgun
blaðsins segir að Kristinn hafi séð fyrir
sér að með betri aðgangi að markað
inum væri nauðsynlegt að fjárfesta
í kjötvinnslufyrirtækjum. Árið 1999
keypti svínabúið Kjötvinnslu Sigurð
ar í Kópavogi og nafni fyrirtækisins
var breytt í Kjötvinnslan Esja ehf. Þá
keyptu þeir hið sögufræga fyrirtæki
Síld & fisk ári síðar, fyrrverandi eig
andi, Þorvaldur Guðmundsson, var
þekktur fyrir að greiða hæstu skatta
árum saman. Síld & fiskur rak svína
bú á MinniVatnsleysu og kjötvinnslu
í Dalshrauni í Hafnarfirði en vörurnar
voru framleiddar undir vörumerkinu
Ali. Kaupverðið var einn milljarður
og allt tekið að láni. Þetta þýddi að
Brautarholtsfeðgar voru nú með 30
prósenta markaðshlutdeild í svína
rækt. En ekki var numið staðar þar.
Bræðurnir héldu áfram að kaupa.
Árið 2001 eru keypt 23,87 prósent í SS
og þá keypti félag sem Kristinn Gylfi
átti sjálfur 5,89 prósenta hlut í SS.
Feðgarnir keyptu svo næststærsta
eggjabú landsins, Nesbú sem þeir
seinna misstu og hefur nú hætt
að selja egg frá Brúneggjum. Aftur
punguðu þeir feðgar ekki út krónu,
allt tekið að láni. Velta fyrirtækjanna
var gríðarleg en í umfjöllun DV í
júlí árið 2000 var því haldið fram að
skuldir fyrirtækja Brautarholtsfeðga
væru 2,3 milljarðar.
Sem dæmi um umfangið í fyrir
tækjum þeirra feðga og til að setja það
í samhengi var húsnæði sem fyrir
tækin áttu samtals 45 þúsund fer
metrar að gólffleti. Til samanburðar
má nefna að verslunarmiðstöð
Smáralindar er með 40 þúsund fer
metra í verslunarrými.
Hrun
Fljótlega fór að bera á rekstrarvand
ræðum og tapaði fyrirtæki Kristins
hundruðum milljóna. Rekstur
kjúklingabænda var erfiður á þessum
Syndir, Sigrar og Sviðin jörð
n Ris og fall Brautarholtsbræðra n Eitt stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar n Dauðir kjúklingar í fjöru
Kristinn Gylfi
Jónsson
Kristinn Gylfi Jónsson er fæddur í
Reykjavík 7.7.1963. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið
1983 og viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1991.
Kristinn hefur stundað búskap á
jörð sinni í Brautarholti á Kjalarnesi frá
árinu 1984. Hann var stjórnarformaður
kjúklingabúsins Móa á Kjalarnesi frá 1985.
Þá var hann formaður Svínaræktarfélags
Íslands og framkvæmdastjóri Síldar &
fisks í Hafnarfirði frá árinu 2000 það fór í
gjaldþrot árið 2003.
Kristinn sat í stjórn Vöku 1986–1987,
í stjórn Sjálfstæðisfélags Kjalnesinga
1986–1989, í stjórn Sjálfstæðisfélagsins
í Austurbæ og Norðurmýri í Reykjavík
1991–1995 og í stjórn Félags sjálfstæð-
ismanna í Nes- og Melahverfi frá 1997.
Kristinn var stjórnarformaður Athygli
ehf. frá 1992 og stjórnarformaður
Ferskra kjúklinga ehf. og kjötvinnslu frá
1995. Hann sat í stjórn Mjólkurfélags
Reykjavíkur frá 1996 og var stjórnarfor-
maður félagsins frá 1998–2003. Þá sat
hann í stjórn Framtíðarsýnar og í stjórn
O.Johnson & Kaaber og dótturfyrirtækja
frá árinu 1999 til ársins 2003.
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Inni- og
útilýsing
Sími: 565 8911 & 867 8911 - www.ledljos.com - ludviksson@ludviksson.com
Led sparar
80-92% orku
Ledljós
Ludviksson ehf
„Síðan eftir
hádegi, þegar
þær eru farnar úr
hreiðri, er blandað
geði við aðrar hænur.
Brúnegg Fyrirtækið komst í fréttirnar í vikunni eftir umfjöllun Kastljóss. mynd siGtRyGGuR aRi
Kristinn Gylfi Jónsson
Útlitið er dökkt hjá eggja-
bóndanum mynd siGtRyGGuR aRi