Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Side 16
Helgarblað 2.–5. desember 201616 Fréttir
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin
mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
4.500 vef-
síðum lokað
Rúmlega 4.500 vefsíðum sem
seldu falsaðan varning var lokað í
alþjóðlegri aðgerð sem tollgæslan
á Íslandi kom meðal annars að.
Aðgerðin bar yfirskriftina In Our
Sites og lauk henni nýlega. Að
gerðin var framkvæmd á vegum
Europol og Interpol, auk banda
rískra yfirvalda, og nutu stofnan
irnar liðsinnis embættis ríkislög
reglustjóra og tengslaskrifstofu
Íslands hjá Europol. Ekki kom
til þess að vefsíðum væri lokað
hér á landi, en aðgerðin náði til
27 landa. Á hinum ólöglegu vef
síðum voru meðal annars seldir
falsaðir varahlutir, íþróttavörur,
raftæki, skartgripir, merkjavara,
lyf og hreinlætisvörur. Markmið
þessa átaks var sem fyrr að stöðva
ólöglega verslun og auka öryggi
netverslunar fyrir neytendur.
Skautasvell á
Ingólfstorgi
Skautasvellið á Ingólfstorgi var
opnað síðdegis í gær, fimmtudag,
af Degi B. Eggertssyni borgar
stjóra. Svellið naut mikilla vin
sælda í fyrra og nýttu 25 þúsund
manns sér það til ánægju og
dægrastyttingar. Nova og Sam
sung eru bakhjarlar verkefnisins.
40 þúsund ljósaperur lýsa svellið
upp og járnverkið í kringum
það er meira en var á tónleikum
Justins Bieber fyrr á árinu. Frítt
er á svellið en hægt er að leigja
sér skauta gegn hóflegu gjaldi.
Svellið verður opið til 2. janúar en
þó lokað á stórhátíðardögum.
Þ
etta sló mig alveg út af
laginu,“ segir móðir 12 ára
tvíbura sem fékk inn um lúg
una hjá sér tvo auglýsinga
bæklinga merkta sjálfri sér
og á bæklingunum voru jafnframt
nöfn tvíburasona hennar sem eru
fæddir árið 2004. Móðirin, Sigríður
Hrund Pétursdóttir, er gríðar
lega ósátt við að fyrirtæki geti með
þessum hætti beint auglýsingum
að börnunum hennar. Björn Svein
björnsson, framkvæmdarstjóri NTC,
harmar að auglýsingabæklingarnir
hafi verið merktir ólögráða börnum.
Á gráu svæði
Bæklingarnir sem um ræðir eru
jólagjafahandbók NTC árið 2016.
Sigríður Hrund segir að þrátt fyrir að
auglýsingapóstur hafi flætt inn um
bréfalúguna hennar upp á síðkastið
þá séu þetta einu bæklingarnir sem
hafi verið merktir með þessum hætti.
„Við höfum til þessa aldrei fengið
póst merktan börnunum okkar nema
frá umferðarráði og Arion banka þar
sem þeir eru í viðskiptum.“
Þá bendir Sigríður á að á þessum
árstíma slæðist inn um lúguna
bæklingar frá Kringlunni og Toys 'R'
Us, svo eitthvað sé nefnt en það finn
ist henni annars eðlis þar sem póst
inum er ekki beint sérstaklega að
börnunum hennar.
„Eitthvert fyrirtæki þarna úti veit
að ég á börn sem eru 12 ára og merkir
þau sérstaklega fyrir auglýsingapósti.
Ég bara spyr: Hvenær má fyrirtæki
beina auglýsingum að börnunum
okkar? Fyrir mér er þetta á mjög gráu
svæði.“
Þá vill Sigríður benda sérstaklega
á að þar sem báðir tvíburarnir henn
ar fengu sama bæklinginn sendan í
pósti þá geti ekki verið um tilviljun að
ræða. Þeir hafi verið markhópurinn,
ekki hún.
„Þeir eru ekkert að fara að skoða
þessa bæklinga, hafa ekkert með það
að gera. Hvað hafa ófjárráða börn að
gera með rándýran fatnað? Myndir
þú kaupa ítalska leðurskó fyrir 12 ára
barn? Þetta er bæklingur fyrir mig en
ekki þá.“
Bannað að stíla
auglýsingar á börn
Matthildur Sveinsdóttir, sérfræðingur
á neytendaréttarsviði Neytendastofu,
segir í samtali við DV að hún geti ekki
tekið beina afstöðu til þessa tiltekna
máls þar sem stofnunin hefur ekki
tekið það til meðferðar.
„Það hefur áður verið tekið
ákvörðun í svipuðu máli. Þar var
sendur út einblöðungur sem var stíl
aður á foreldri og nafn barnsins kom
fyrir neðan,“ segir hún en það myndi
teljast sambærilegt því máli sem hér
um ræðir.
„Neytendastofa tók í því máli
ákvörðun um að þetta væri brot gegn
banni á beinni markaðssetningu
gagnvart börnum,“ segir Matthildur
sem vill jafnframt koma því að að af
staða Neytendastofu sé sú að það eigi
ekki að stíla auglýsingabæklinga á
ófjárráða börn.
Ekki ætlunin að merkja
bæklinginn börnum
„Við biðjumst innilega afsökunar á
þessu. Þetta er ekki í lagi,“ segir Björn
Sveinbjörnsson, framkvæmdarstjóri
NTC, sem segir fyrirtækið hafa keypt
ákveðna þjónustu af Póstdreifingu.
Þau hafi viljað koma bæklingn
um inn á heimi þar sem fjölskyldur
búa. Ætlunin hafi aldrei verið sú að
bæklingurinn yrði merktur börnum.
„Okkur þykir mjög leiðinlegt að
nafn barnsins hafi verið sett undir
nafn foreldris eða forráðamanns.
Þetta átti aðeins að vera stílað á for
eldrana. Það var okkar skilningur og
er eitthvað sem Póstdreifing þarf að
svara fyrir. Við vitum ekkert hvernig
þeir merkja þetta.“
Björn segir NTC fjölskylduvænt
fyrirtæki. Þangað komi börn og
gæludýr reglulega með starfsfólki í
vinnuna. Þá segir Björn að markaðs
stjóri NTC, sem er móðir, hafi
sömuleiðis sagt að þetta væri alls ekki
í lagi.
„Þetta er ekki í okkar höndum og
það þykir mér enn sárara. Þetta var
ekki okkur að kenna. Engu að síður
er þetta asnalegt og okkur þykir þetta
mjög leitt.“ n
12 ára synir sigríðar fengu
sendan auglýsingabækling
„Við biðjumst innilega afsökunar á þessu. Þetta er ekki í lagi“
Börn og auglýsingar
Auglýsendur mega ekki senda markpóst til barna
Í 7. gr. laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005 er að finna
ákvæði um börn og auglýsingar. Þar kemur fram að auglýsingar verða að miðast við að
börn sjái þær og heyri og mega þær ekki misbjóða börnum. Þá þarf að sýna sérstaka
varkárni vegna trúgirni barna og unglinga.
Neytendastofa gerir jafnframt þá kröfu á auglýsendur sendi ekki markpóst til barna
heldur forráðamanna þeirra sem síðan taka ákvörðun um hvort börnunum verði kynnt
það sem þar kemur fram.
Í reglugerð um viðskiptahætti sem í öllum tilvikum teljast óréttmætir, nr. 160/2009,
segir í 28. gr. að það teljist uppáþrengjandi viðskiptahættir, og þar með óréttmætir, að
láta í auglýsingu felast beina hvatningu til barna um að kaupa auglýsta vöru eða telja
foreldra þeirra eða aðra fullorðna á að kaupa auglýsta vöru handa þeim.
HEimild: NEytENdastofa
sigríður er afar ósátt við að synir
hennar tveir hafi fengið auglýs-
ingapóst frá NtC Búið er að afmá
nöfn Sigríðar og sonar hennar af forsíðu
bæklingsins sem birtist hér að ofan
Kristín Clausen
kristin@dv.is