Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Síða 22
Helgarblað 2.–5. desember 201622 Fólk Viðtal
H
alldór Baldursson er fædd-
ur árið 1965 og alinn upp
í smáíbúðahverfinu í
Reykjavík, sonur kennar-
anna Baldurs Ragnarsson-
ar og Þóreyjar Kolbeinsdóttur. Hann
var síteiknandi sem barn og fékk
sína helstu útrás á teikniblöðunum,
en hann tætti í sig heilu bunkana af
ljósritunarpappír. „Ég held að flest-
ir teiknarar hafi verið „intróvert“
krakkar, sem tóku ekki mikinn þátt í
skrípalátunum úti en fengu útrásina
inni að teikna. Ég var þannig,“ segir
Halldór og bætir við að helstu við-
fangsefnin hafi verið stríð og fót-
bolti – og hafi það bætt upp fyrir litla
íþróttahæfileika.
Snemma fann hann að hægt var
að fá athygli og öðlast virðingu með
teikningunum. Fyrsta skiptið sem
styr stóð um mynd eftir hann var
strax í barnaskóla þegar hann hafði
teiknað mynd af blindfullum presti.
Teikningin vakti mikla kátínu sam-
nemenda en kennarinn neitaði að
hengja hana upp á vegg í kennslu-
stofunni. „Ég man eftir „kikkinu“
sem ég fékk úr því að skemmtileg-
heitin sigruðu þetta leiðinlega, að
ég hafi þorað að segja eitthvað og
sett málfrelsið á stall.“
Halldór stundaði nám á mynd-
listarbraut FB og stefndi á að
verða arkitekt en fann fljótlega að
hönnunin átti ekki við sig og fór í
grafíkdeild Myndlista-
og handíðaskólans.
Þegar hann stundaði
þar nám á seinni hluta
níunda áratugarins var
hann byrjaður að teikna
fyrir auglýsingastofu og
skreyta ýmsar kennslu-
og barnabækur. Í MHÍ
kynntist hann líka félög-
um sem áttu síðar eftir
að stofna myndasögu-
tímaritið GISP! sem lifir
enn 27 árum síðar – þótt
það hafi ekki komið út í
nema ellefu eintökum í
gegnum tíðina.
„Ég fór fyrst í skop-
myndirnar eftir að Við-
skiptablaðið var stofnað
1994. Þá var ég fenginn
í að myndskreyta en var
fljótlega beðinn um að
vera með pólitískt grín.
Ég hafði reyndar haft
áhuga á því lengi og man
eftir að hafa farið inn á DV
einhverjum árum áður, hitt
Jónas Kristjánsson og reynt að fá
vinnu. Hann sagði að ég væri ekki
tilbúinn, ég held að það hafi verið
rétt hjá honum.“
Þú hefir þá líklega haft mikinn
áhuga á pólitík, þar sem þú sóttist
eftir þessu starfi, eða hvað?
„Já, það var mikið rætt um póli-
tík á heimilinu þegar ég var að al-
ast upp. Systkini mín voru miklir
kommúnistar og hugsjónafólk. Ég
er því alinn upp í mikilli pólitískri
innrætingu, fékk Mao Tse-Tung-
áróður og fleira frá bróður mínum.
Maður lærði samt fljótt að ástunda
gagnrýna hugsun og innrætingin
fór þannig í mig að ég fór bara að
vinna fyrir Viðskiptablaðið – óvin-
inn mikla,“ segir Halldór og glottir
prakkaralega.
Aðspurður segist hann hafa
sveiflast um miðjuásinn í póli-
tík í gegnum tíðina, en það fylgi þó
starfinu að vera alltaf í
andstöðu, að gera mest
grín að hinum valda-
mestu. „Það er verk-
efnið. Forsætisráð-
herrann verður alltaf
aðalpersónan.“
Konungur flónanna
Síðasti forsætisráð-
herra, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson,
er því óhjákvæmilega
í aðalhlutverki í nýju-
stu bók Halldórs, Kon-
ungi flónanna, safni
skopmynda frá síð-
ustu þremur árum þar
sem störf og og saga
síðustu ríkisstjórnar
er gerð upp. Bókin er
þriðja skopmynda-
safn Halldórs sem
kemur út, áður komu
Í grófum dráttum
árið 2006 og Skulda-
dagar árið 2009, en sú
síðarnefnda fjallaði um hina ævin-
týralegu daga í kringum hrunið.
Framan á nýju bókinni er Sig-
mundur Davíð í hlutverk ljónsung-
ans og verðandi ljónakonungsins
Simba í endurgerð af plakati Disney-
myndarinnar Lion King - Konungs
ljónanna. Davíð Oddsson er í hlut-
verki gamla ljónakonungsins sem
kynnir arftakann og í jaðrinum er
Bjarni Benediktsson, sár og vonsvik-
inn með að missa af tigninni.
„Þessi mynd birtist um það leyti
sem ríkisstjórnin var mynduð. Mér
fannst þetta bara lýsa andrúmsloft-
inu í kringum myndun ríkisstjórn-
arinnar svo vel. Nafnið á bókinni
kom svo seinna. Mér finnst titill-
inn reyndar svolítið erfiður því ég
veit ekki alveg hver flónin eru. Ef við
segjum að Sigmundur Davíð sé kon-
ungur flónanna þá hljómar þetta
svolítið eineltislegt, en ef þetta vís-
ar til mín – og skopmyndateiknarar
eru flónin – þá hljómar þetta mjög
hrokafullt.“
Er hægt að segja eitthvað um
hvað hefur einkennt þessi þrjú síð-
ustu ár og fráfarandi ríkisstjórn?
„Ég held hreinlega að Sigmundur
Davíð sé helsta einkennið. Hann var
einkennilegur forsætisráðherra.
Hans persóna litaði þetta tímabil
mjög sterkt, og hans karakter hafði
Flestir Íslendingar kannast við pólitískar skopteikningar Halldórs Baldurssonar.
Í rúman áratug hefur spéspegill hans birst daglega í nokkrum stærstu dagblöðum landsins
og gefið þjóðinni færi á að hlæja að sjálfri sér og ráðamönnum á einhverjum mestu ólgutímum
í sögu lýðveldisins. Það þekkja færri manninn á bak við myndirnar, hinn lágmælta og
glottandi skopmyndateiknara sem er alinn upp á fótboltamyndum og kínverskum
kommúnistaáróðri, sem trúir á bernskan boðskap barnaævintýra en hefur
lúmskt gaman af gamaldags karlrembugríni. DV hitti Halldór og spjallaði um
skopteikningar, pólitíska rétthugsun, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og
Konung flónanna – nýútkomið skopmyndasafn hans.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Skemmtilegheitin sigra reiðina
„Systkini mín voru
miklir kommún-
istar og hugsjónafólk. Ég
er því alinn upp í mikilli
pólitískri innrætingu, fékk
Mao Tse-Tung-áróður og
fleira frá bróður mínum.