Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Qupperneq 22
Helgarblað 2.–5. desember 201622 Fólk Viðtal H alldór Baldursson er fædd- ur árið 1965 og alinn upp í smáíbúðahverfinu í Reykjavík, sonur kennar- anna Baldurs Ragnarsson- ar og Þóreyjar Kolbeinsdóttur. Hann var síteiknandi sem barn og fékk sína helstu útrás á teikniblöðunum, en hann tætti í sig heilu bunkana af ljósritunarpappír. „Ég held að flest- ir teiknarar hafi verið „intróvert“ krakkar, sem tóku ekki mikinn þátt í skrípalátunum úti en fengu útrásina inni að teikna. Ég var þannig,“ segir Halldór og bætir við að helstu við- fangsefnin hafi verið stríð og fót- bolti – og hafi það bætt upp fyrir litla íþróttahæfileika. Snemma fann hann að hægt var að fá athygli og öðlast virðingu með teikningunum. Fyrsta skiptið sem styr stóð um mynd eftir hann var strax í barnaskóla þegar hann hafði teiknað mynd af blindfullum presti. Teikningin vakti mikla kátínu sam- nemenda en kennarinn neitaði að hengja hana upp á vegg í kennslu- stofunni. „Ég man eftir „kikkinu“ sem ég fékk úr því að skemmtileg- heitin sigruðu þetta leiðinlega, að ég hafi þorað að segja eitthvað og sett málfrelsið á stall.“ Halldór stundaði nám á mynd- listarbraut FB og stefndi á að verða arkitekt en fann fljótlega að hönnunin átti ekki við sig og fór í grafíkdeild Myndlista- og handíðaskólans. Þegar hann stundaði þar nám á seinni hluta níunda áratugarins var hann byrjaður að teikna fyrir auglýsingastofu og skreyta ýmsar kennslu- og barnabækur. Í MHÍ kynntist hann líka félög- um sem áttu síðar eftir að stofna myndasögu- tímaritið GISP! sem lifir enn 27 árum síðar – þótt það hafi ekki komið út í nema ellefu eintökum í gegnum tíðina. „Ég fór fyrst í skop- myndirnar eftir að Við- skiptablaðið var stofnað 1994. Þá var ég fenginn í að myndskreyta en var fljótlega beðinn um að vera með pólitískt grín. Ég hafði reyndar haft áhuga á því lengi og man eftir að hafa farið inn á DV einhverjum árum áður, hitt Jónas Kristjánsson og reynt að fá vinnu. Hann sagði að ég væri ekki tilbúinn, ég held að það hafi verið rétt hjá honum.“ Þú hefir þá líklega haft mikinn áhuga á pólitík, þar sem þú sóttist eftir þessu starfi, eða hvað? „Já, það var mikið rætt um póli- tík á heimilinu þegar ég var að al- ast upp. Systkini mín voru miklir kommúnistar og hugsjónafólk. Ég er því alinn upp í mikilli pólitískri innrætingu, fékk Mao Tse-Tung- áróður og fleira frá bróður mínum. Maður lærði samt fljótt að ástunda gagnrýna hugsun og innrætingin fór þannig í mig að ég fór bara að vinna fyrir Viðskiptablaðið – óvin- inn mikla,“ segir Halldór og glottir prakkaralega. Aðspurður segist hann hafa sveiflast um miðjuásinn í póli- tík í gegnum tíðina, en það fylgi þó starfinu að vera alltaf í andstöðu, að gera mest grín að hinum valda- mestu. „Það er verk- efnið. Forsætisráð- herrann verður alltaf aðalpersónan.“ Konungur flónanna Síðasti forsætisráð- herra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, er því óhjákvæmilega í aðalhlutverki í nýju- stu bók Halldórs, Kon- ungi flónanna, safni skopmynda frá síð- ustu þremur árum þar sem störf og og saga síðustu ríkisstjórnar er gerð upp. Bókin er þriðja skopmynda- safn Halldórs sem kemur út, áður komu Í grófum dráttum árið 2006 og Skulda- dagar árið 2009, en sú síðarnefnda fjallaði um hina ævin- týralegu daga í kringum hrunið. Framan á nýju bókinni er Sig- mundur Davíð í hlutverk ljónsung- ans og verðandi ljónakonungsins Simba í endurgerð af plakati Disney- myndarinnar Lion King - Konungs ljónanna. Davíð Oddsson er í hlut- verki gamla ljónakonungsins sem kynnir arftakann og í jaðrinum er Bjarni Benediktsson, sár og vonsvik- inn með að missa af tigninni. „Þessi mynd birtist um það leyti sem ríkisstjórnin var mynduð. Mér fannst þetta bara lýsa andrúmsloft- inu í kringum myndun ríkisstjórn- arinnar svo vel. Nafnið á bókinni kom svo seinna. Mér finnst titill- inn reyndar svolítið erfiður því ég veit ekki alveg hver flónin eru. Ef við segjum að Sigmundur Davíð sé kon- ungur flónanna þá hljómar þetta svolítið eineltislegt, en ef þetta vís- ar til mín – og skopmyndateiknarar eru flónin – þá hljómar þetta mjög hrokafullt.“ Er hægt að segja eitthvað um hvað hefur einkennt þessi þrjú síð- ustu ár og fráfarandi ríkisstjórn? „Ég held hreinlega að Sigmundur Davíð sé helsta einkennið. Hann var einkennilegur forsætisráðherra. Hans persóna litaði þetta tímabil mjög sterkt, og hans karakter hafði Flestir Íslendingar kannast við pólitískar skopteikningar Halldórs Baldurssonar. Í rúman áratug hefur spéspegill hans birst daglega í nokkrum stærstu dagblöðum landsins og gefið þjóðinni færi á að hlæja að sjálfri sér og ráðamönnum á einhverjum mestu ólgutímum í sögu lýðveldisins. Það þekkja færri manninn á bak við myndirnar, hinn lágmælta og glottandi skopmyndateiknara sem er alinn upp á fótboltamyndum og kínverskum kommúnistaáróðri, sem trúir á bernskan boðskap barnaævintýra en hefur lúmskt gaman af gamaldags karlrembugríni. DV hitti Halldór og spjallaði um skopteikningar, pólitíska rétthugsun, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Konung flónanna – nýútkomið skopmyndasafn hans. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Skemmtilegheitin sigra reiðina „Systkini mín voru miklir kommún- istar og hugsjónafólk. Ég er því alinn upp í mikilli pólitískri innrætingu, fékk Mao Tse-Tung-áróður og fleira frá bróður mínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.