Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Side 56
Helgarblað 2.–5. desember 2016
95. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hænan Fjóla
skaffar alþingis-
manni egg
n Uppljóstranir Kastljóss um starf-
semi Brúneggja ehf. vöktu gríðar-
lega athygli fyrr í vikunni og margir
voru sárir og reiðir. Hinn nýkjörni
alþingismaður, Áslaug Arna Sigur
björnsdóttir, upplýsir á Twitter-
síðu sinni að hún hafi gripið til
þess ráðs að fóstra landnámshænu
hjá Júlíusi Má í Þykkvabæ. Áskriftin
kostar 25 þúsund krónur og fyrir
þá upphæð fær Áslaug Arna um 20
egg á mánuði í tvö ár auk þess sem
hún má heim-
sækja hænuna
reglulega. Þá
kemur fram
að sú fiðr-
aða hafi ver-
ið nefnd
Fjóla.
Sveinn Andri
„svalur“ á Tinder
n Lögmaðurinn Sveinn
Andri Sveinsson er „svalur“
á stefnumótaappinu Tinder
ef marka má nýjasta tölublað
Séð og heyrt. Sveinn og rit-
stjóri blaðsins, Ásta Hrafnhildur
Garðarsdóttir, fóru að rugla
saman reytum í haust og sagði
hún þá í samtali við visir.is að
hún og Sveinn væru „mjög góðir
vinir“. Eru þau nú bæði einhleyp
ef marka má dálkinn Heyrst hef-
ur í blaði Ástu en
ekkert kemur
fram hvort
slest hafi
upp á vin-
skapinn.
Bubbi og
hálfvitarnir
n Eins og frægt er þá afneitar
nýkjörinn forseti Bandaríkj-
anna, Donald Trump, því með
öllu að hlýnun jarðar sé raun-
verulegt vandamál. Það fellur
ekki í kramið hjá ástsælasta tón-
listarmanni landsins, Bubba
Morthens, en hann er mikill
náttúruunnandi og hefur um
langt skeið ræktað fallegar rósir
með góðum árangri. Hann birti
mynd á Facebook-síðu sinni
af blómstrandi rósum ásamt
neðangreindum skilaboðum:
„Sá hálfviti sem held-
ur að hlýnun jarðar
eigi sér ekki stað
getur leikið við sig
og dreymt Trump.
Rósirnar
reyna að
blómstra
1. des-
ember.“
G-eggjað!
M
aður er smeykur um að heil-
brigðisyfirvöldum hafi verið
hleypt í málið og þetta sé ekki
gamli góði Blái Opalinn,“
segir sagnfræðingurinn og þjóðfé-
lagsrýnirinn Stefán Pálsson sem fagn-
ar endurkomu sælgætisins sem hefur
ekki verið fáanlegt síðan 2005.
Auðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs
Nóa Síríus, nánast staðfesti í samtali
við visir.is í gær, fimmtudag, að Blár
Opal ætti eftir að rata aftur í verslanir
hér á landi á næsta ári. Varan nýtur
enn í dag mikilla vinsælda og tóku
margir aðdáendur hennar gleði sína
á ný á samfélagsmiðlum þegar fréttin
birtist. Stefán er einn þeirra og er
ánægður með ákvörðun sælgætis-
framleiðandans.
„Fyrstu kynni minnar kynslóðar af
hörðum fíkniefnum voru náttúrlega
í gegnum Bláan Opal og hins vegar
í gegnum brenni. Þar lék klóróform-
ið sem var í þessum vörum væntan-
lega lykilhlutverk og ég óttast að við
munum ekki fá þetta gamla bragð
aftur. Það var enginn tilgangur að
stinga upp í sig einni eða tveimur töfl-
um heldur tók maður lúku og bruddi
af miklum móð. Alveg
þangað til manni sortn-
aði fyrir augun og rak-
ettur fóru að springa.
Það væri óskandi að
komandi kynslóðir fengju
að upplifa þetta og tengi
þetta ekki eingöngu við herfi-
legt Eurovision-band,“ segir
Stefán í samtali við DV.
Blár Opal var fyrst tekinn
úr sölu árið 1982 og kom aft-
ur á markað tæpum tveimur árum
síðar. Innihélt varan þá einungis 1,4
prósent af aðalbragðefninu, klóró-
formi, en samkvæmt ný-
legri reglugerð á þeim
tíma var miðað við að
hámarki tvö prósent.
„Þá var þetta nú ekki
sama „rúsið“. Næsta sem
þarf að gerast er að menn
taki Prins Pólóið úr þessum
lofttæmdu lokuðu umbúð-
um og setji það aftur í smjör-
pappírinn með álpappírnum
utan á svo það verði aftur
svona smá fúkkabragð af því
og þá verð ég góður. Allt sem nærir
nostalgíuna er gott.“ n
Vill sama klóróform í nýja Bláa Opalinn
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson fagnar endurkomu sælgætisins
Ótakmörkuð símtöl og skilaboð á Íslandi
Ótakmörkuð símtöl til Evrópu, USA og Kanada
Notaðu símann þinn í Skandinavíu eins og á Íslandi
- án auka kostnaðar
ÁRÍÐANDI TILKYNNING
TIL FARSÍMAEIGANDA
537 7000
hringdu.is
Allt þetta fyrir aðeins
á mánuði
ÍSLAND EVRÓPA KANADA USA
ROAM LIKE HOME
Í SKANDINAVÍU
P
L
A
Y
M
O