Fréttablaðið - 09.02.2017, Side 2
Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent í gær
Þau Auður Ava Ólafsdóttir, Hildur Knútsdóttir og Ragnar Axelsson hlutu í gær Íslensku bókmenntaverðlaunin en Guðni Th. Jóhannesson forseti
afhenti þau. Auður hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Ör, Hildur hlaut verðlaunin í flokki barna-og ungmennabóka fyrir
bókina Vetrarhörkur og Rax fór með sigur af hólmi í flokki fræðirita og bóka almenns eðlis fyrir bók sína Andlit norðursins. Fréttablaðið/anton brink
Veður
Suðaustan og sunnan hvassviðri og sums
staðar stormur austan til á landinu í dag,
en mun hægari suðlæg átt um landið
vestanvert. Talsverð rigning suðaustan-
lands og á sunnanverðum Austfjörðum.
sjá síðu 28
Ferðaþjónusta Þúsundir ferða-
manna sem áttu pantaðar skoðunar-
ferðir með íslenskum rútubílafyrir-
tækjum þurftu að breyta áætlunum
sínum í gær vegna ofsaveðurs. Öllum
dagsferðum hjá Kynnisferðum var
aflýst. Samkvæmt upplýsingum frá
starfsmönnum fyrirtækisins áttu 500
manns bókað far í ferðir.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for-
stjóri GrayLine ferðaþjónustufyrir-
tækisins, segir að á þriðja þúsund
manns hafi átt bókað far hjá þeim
í gær í ferð um Gullna hringinn, á
suðurströndina, í Borgarfjörðinn,
Bláa lónið og í hellaferðir. Óveðrið
hafi haft áhrif á þetta allt. Stór hluti
ferðamannanna geti bókað í aðrar
ferðir á næstu dögum og býst Þórdís
Lóa við að þeir muni þiggja það.
„Við erum alvön þessu og þetta
er partur af vetrarferðamennsku á
Íslandi. Það þarf að fella niður ferðir
út af veðrum og færa til milli daga.
Það er líka algengt í norðurljósa-
ferðum að það þurfi að færa milli
daga,“ segir hún. Hún bætir þó við
að gærdagurinn hafi verið óvenju-
slæmur. „Og ef ég man rétt þá kom
einn slíkur dagur líka í desember,“
segir hún.
Þórdís Lóa segir að ferðamenn
bregðist langoftast við svona aðstæð-
um með skilningi. Enda sé fyrir-
tækið með ákveðnar öryggis- og við-
bragðsáætlanir sem settar hafi verið
upp í samstarfi við aðila sem þekkja
slík öryggisatriði vel. „Við erum ekki
að stefna neinum í hættu og pössum
vel upp á öryggismál hjá okkur.“
Aftakaveðrið á suðvesturhorni
landsins í gær olli nokkru tjóni. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Slökkvi-
liðinu á höfuðborgarsvæðinu fóru
slökkviliðsmenn í þrettán útköll
á dælubílum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Óttari Karlssyni inni-
varðstjóra þurfti að bregðast við
byggingakrönum sem voru við að
fjúka um koll, járn fauk af þökum og
strætóskýli skemmdust. Þá voru um
120 björgunarsveitarmenn kallaðir
út á suðvesturhorninu, langflestir í
Reykjavik.
Veðrið á landinu næstu daga
verður talsvert hægara en það var
í gær. Óli Þór Árnason veðurfræð-
ingur á Veðurstofunni, segir að í dag
verði hvasst fyrir austan og talsverð
rigning á Suðausturlandi. Á morgun
lægir svo fyrir austan og hitastigið
verður nálægt frostmarki vestan til.
Óli Þór býst við áhugaverðu veðri
um helgina þegar skellur á hvöss
suðvestanátt. Þá gæti slegið í storm
um landið norðvestanvert. Þessu
fylgja mikil hlýindi og þó einna
mest á Austurlandi. „Þar gætum við
farið að sjá hitatölur sem maður
sér ekki oft í febrúar,“ segir Óli Þór.
Íbúar á Austfjörðum geti séð þessar
háu hitatölur en í höfuðborginni
verður rigning og suddi.
jonhakon@frettabladid.is
Þúsundir ferðamanna
sátu eftir vegna veðurs
bílastæðið hjá iceland Excursions var fullt af rútum fyrri hluta dags í gær, þar sem
engar ferðir voru farnar út á land. Fréttablaðið/Ernir
Þúsundir ferðamanna
þurftu að breyta áætl-
unum sínum í gær vegna
veðurs. Fyrirtæki eru
vön að breyta áætlunum
sínum. Slökkvilið og
björgunarsveitir höfðu
í nógu að snúast við að
bjarga byggingakrönum,
strætóskýlum og þak-
plötum.
KjaraMáL Kjararáð úrskurðaði um
laun skógræktarstjóra og forstjóra
Hafrannsóknastofnunar undir lok
janúarmánaðar. Laun beggja verða
eftir ákvörðunina rúmlega milljón
krónur.
Breytingar voru gerðar á stofnun-
unum tveimur á síðasta ári. Skógrækt-
in óskaði eftir því að laun stjórnanda
stofnunarinnar yrðu endurskoðuð en
í rökstuðningi var meðal annars bent
á að til stæði að sameina Skógrækt
ríkisins og ýmis landshlutaverkefni.
Álag og vinna utan vinnutíma myndi
aukast. Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið óskaði eftir endurskoðun
á launum forstjóra Hafrannsókna-
stofnunar sökum breytinga á lögum
um stofnunina. Nokkur verkefni sem
áður voru á könnu Veiðimálastofn-
unar voru færð undir Hafrannsókna-
stofnun. Var farið þess á leit við ráðið
að það myndi endurskoða laun for-
stjórans.
Úrskurður kjararáðs var sá að mán-
aðarlaun forstjóra Hafrannsókna-
stofnunar yrðu 1.023.517 krónur auk
35 yfirvinnueininga. Launin verða því
1.356.962 krónur á mánuði. Ákvörð-
unin er afturvirk til 1. apríl 2016.
Skógræktarstjóri fær 866.128 krónur
á mánuði auk 25 yfirvinnueininga.
Föst mánaðarlaun verða því 1.105.428
krónur. Sú ákvörðun er afturvirk til
1. júlí 2016. – jóe
Úrskurðaði
um laun
tveggja
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. Fréttablaðið/PJEtUr
Við erum ekki að
stefna neinum í
hættu og pössum vel upp á
öryggismál hjá okkur.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir,
forstjóri GrayLine
Laun forstjóra Hafrann-
sóknastofnunar verða því
1.356.962 krónur á mánuði.
DóMsMáL Máli Afls Sparisjóðs gegn
Magnúsi Stefáni Jónassyni, fyrrver-
andi skrifstofustjóra sparisjóðsins,
var frestað í Héraðsdómi Norður-
lands eystra í gær í óþökk bæði lög-
manna stefndu og stefnenda.
Dómari ákvað að fresta málinu
þar sem sakamálarannsókn fer nú
fram hjá héraðssaksóknaraembætt-
inu. Magnúsi Stefáni er gefið að sök
að hafa í starfi sínu sem skrifstofu-
stjóri dregið sér fé svo tugmilljónum
skiptir.
Þegar málið kom upp voru eigur
Magnúsar Stefáns kyrrsettar. Ein-
boðið er að sakamálarannsóknin
muni taka nokkur ár hið minnsta og
á meðan verða eigur ákærða kyrr-
settar.
Magnús Stefán var forseti bæjar-
stjórnar Fjallabyggðar þegar málið
kom upp en hann sagði af sér emb-
ætti. – sa
Dómsmáli
frestað vegna
rannsóknar
9 . F e b r ú a r 2 0 1 7 F I M M t u D a G u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a b L a ð I ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
2
-E
8
F
4
1
D
1
2
-E
7
B
8
1
D
1
2
-E
6
7
C
1
D
1
2
-E
5
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K