Fréttablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r14 s k o ð U n ∙ f r É T T a b L a ð I ð
SKOÐUN
Útgerðin skilur ekki neitt í neinu, að ekki skuli vera búið að setja lög á verkfall sjómanna eða þá að ríkisvaldið skuli ekki vera fyrir löngu búið að lofa
að liðka fyrir samningum með loforðum um skatta
afslátt (sem þá leggur meiri byrðar á alla hina skattgreið
endurna sem ekki njóta afsláttarins). Forsætisráðherrann
hefur sagt að lög verði ekki sett á verkfallið og fróðlegt
verður að fylgjast með hvort hann standi við þau orð
þegar þrýstingur á hann vex.
Verkfallið hefur með skýrum hætti dregið fram þá
einu ábyrgð sem stjórnvöld bera í þessum efnum. Það er
ábyrgðin á að auðlindin, sameign þjóðarinnar, sé nýtt
þjóðinni allri til hagsbóta. Verkfallið hefur sýnt fram á
vangetu núverandi kvótahafa til að sinna þessu verkefni
sem ríkisvaldið fól þeim þegar þeir fengu úthlutað fisk
veiðikvóta.
Geti þeir ekki sinnt þessu eina verkefni þá hljóta menn
að spyrja sig hvort ekki sé rétt að gefa einhverjum öðrum
tækifæri á að spreyta sig. Þar eru nægir um hituna; kvóta
lausar fiskvinnslur og dugandi einstaklingar um land allt
sem fá ekki tækifæri vegna svimandi hárrar kvótaleigu
sem borga þarf núverandi kvótahöfum og sem vonlaust
er að leigja nema til skamms tíma í senn.
Um langa hríð hefur verið bent á að einfaldasta
leiðin til nýliðunar í hópi útgerðarmanna væri að þróa
útboðsleið á kvóta þar sem t.d. 510 prósent kvótans
yrðu boðin út árlega. Um allan heim hafa verið þróaðar
aðferðir við útboð af þessu tagi þar sem tryggð er nýliðun
og takmarkanir settar við því að kvótarnir safnist á fárra
hendur.
Útboð aflaheimilda þar sem hluta fjármunanna sem
koma inn yrði ráðstafað til byggðanna gæti reynst hinum
minni sveitarfélögum mikilvægur tekjustofn. Nú verða
þau mörg hver illilega fyrir barðinu á sjómannaverk
fallinu. Útboð aflaheimilda var kosningaloforð nokkurra
stjórnmálaflokka fyrir síðustu kosningar en loforðið vóg
greinilega ekki nógu þungt í stefnuskrám flokkanna til að
þeir mynduðu ríkisstjórn um þetta réttlætismál þjóðar
innar. Þar voru önnur og léttvægari málefni látin ráða för.
Þurfum við nýja
útgerðarmenn?
Bolli Héðinsson
hagfræðingur
Verkfallið
hefur sýnt
fram á
vangetu
núverandi
kvótahafa til
að sinna
þessu verk-
efni sem
ríkisvaldið
fól þeim
þegar þeir
fengu út-
hlutað
fiskveiði-
kvóta.
Minningarorð
Ólöf Nordal, þingmaður, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins og
fyrrverandi innanríkisráðherra,
andaðist í gær. Þingmenn úr
öllum flokkum minntust hennar
á Facebook-síðum sínum. Þeirra
á meðal var Katrín Jakobsdóttir,
formaður VG, sem lýsti Ólöfu
sem meinfyndinni og skarpri og
gott hefði verið að eiga málefna-
legt samstarf við hana. Það
er umtalað að samstarf Helga
Hrafns Gunnarssonar, fyrrver-
andi þingmanns Pírata, og Ólafar
hafi verið einstaklega gott. Það
kristallaðist í minningarfærslu
hans í gær þar sem hann lýsti
því hvernig Ólöf sló vopnin úr
höndum hans ítrekað í ræðustól
Alþingis. „Þetta var samtal um
hvernig við getum bætt heiminn.
Verndað réttindi borgaranna.“
Beðið eftir forsætisráðherra
Skýrsla vistheimilanefndar um
Kópavogshæli er svört og lýsir
skelfilegu ofbeldi og vanrækslu
sem börn á opinberri stofnun
þurftu að sæta. Fyrsta skýrsla
þeirrar tegundar var skýrslan um
Breiðavíkurheimilið en Jóhanna
Sigurðardóttir, þáverandi for-
sætisráðherra, bað vistmenn
Breiðavíkur og fjölskyldur þeirra
afsökunar fyrir hönd íslenskra
stjórnvalda og íslensku þjóðar-
innar. Búast má við því að slíkrar
afsökunarbeiðni sé einnig að
vænta frá Bjarna Benediktssyni.
Það væri verðugt fyrsta verk nýs
forsætisráðherra.
snaeros@frettabladid.is
Hvar liggja sársaukamörk almannahagsmuna þegar sjómannaverkfallið er annars vegar? Verkfallsrétturinn er mikilvægur og fulltrúar ríkisvaldsins mega ekki ganga yfir hann á skítugum skónum. Þess
vegna voru ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
sjávarútvegsráðherra um að ríkið myndi ekki íhuga inn
grip í kjaradeiluna skiljanleg. Í þeim fólust skilaboð um
að ríkisstjórnin myndi standa vörð um verkfallsréttinn
og það væri verkefni útgerðarinnar að semja við sjó
menn, ekki ríkisins.
Ísland má hins vegar ekki breytast í samfélag þar sem
verkalýðsfélög halda stórum og mikilvægum atvinnu
greinum í gíslingu til lengri tíma. Við sjáum hörmulega
reynslu ríkja eins og Frakklands af slíku. Sjávarútvegur
er grunnatvinnuvegur á Íslandi sem með klösum skapar
um fjórðung landsframleiðslunnar. Þótt ferðaþjónustan
sé orðin verðmætasta atvinnugreinin verður Ísland alltaf
samfélag þar sem stór hluti verðmætasköpunar hverf
ist um 200 mílna lögsöguna. Ferðamenn koma og fara
eftir tískustraumum. Ísland er í tísku núna, rétt eins og
Lofoteneyjar í Noregi. Ábyrg nýting sjávarútvegsauð
lindarinnar og markaðssetning á afurðum hennar er
lífstíðarverkefni Íslendinga þar sem eftirspurn eftir
verðmætu próteini deyr aldrei. Að halda öðru fram er
hrein flónska.
Kjaraviðræður sjómanna eru í ömurlegum hnút og
staðan er þannig núna að það tapa allir á henni. Smærri
söluaðilar í sjávarútvegi eru lítil fyrirtæki sem eiga ekki
kvóta og þurfa að teygja sig mjög langt til að skapa verð
mæti. Þessi fyrirtæki eiga allt sitt undir því að það sé
stöðugt framboð af fiski.
Viðskiptaforskot Íslendinga hefur lengi falist í
afhendingaröryggi með ferskar sjávarafurðir. Það sem
útgerðarfyrirtæki óttast mest er að raunverulegt tjón
vegna verkfallsins muni koma fram síðar, jafnvel eftir
einhver ár og það muni felast í því að orðspor Íslands
sem afhendingar aðila á ferskvöru hafi skaðast varanlega.
Í Bandaríkjunum blómstrar markaður fyrirtækja sem
afhenda ferskan fisk heim að dyrum. Hér má nefna Ama
zon Fresh sem hefur einsett sér að verða stærsta fyrirtæki
heims í afhendingu á ferskum fiski.
Það væri þyngra en tárum taki ef afleiðingar sjó
mannaverkfallsins myndu raungerast í óbætanlegu
orðsporstjóni Íslands. Fyrirtæki sem ekki höndla með
auðlindina beint heldur kaupa afurðina innanlands
og selja hana áfram eiga allt sitt undir því að orð
spor Íslands sé gott. Þessi fyrirtæki reiða sig á „vöru
merkið Ísland“. Það eru hagsmunir okkar allra að
standa vörð um þetta vörumerki. Hvort sem við erum
sjómenn, kvótakóngar eða alþingismenn. Stöðumat
útgerðarfyrirtækja ætti að miða að því fórna minni
hagsmunum fyrir meiri. Tímabundið högg á efnahags
reikninga vegna krafna sjómanna skiptir minna máli en
alþjóðlegt orðspor íslensks sjávarútvegs til langframa.
Ábyrgðin er
útgerðarinnar
Það væri
þyngra en
tárum taki ef
afleiðingar
sjómanna-
verkfallsins
myndu
raungerast í
óbætanlegu
orðsporstjóni
Íslands.
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
ERTU MEÐ KVEF EÐA
FLENSUEINKENNI?
MARINE
PHYTOPLANKTON
Sjávarþörungur
HAWAIIAN
NONI
Veikindabani
Styrkir ónæmiskerfið
Ofurfæða úr hafinu
Orka – Einbeiting - Úthald
www.balsam.is
Frábær tvenna
Fyrirbyggjandi við
kvefi og flensu
Sjávarþörungur
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
2
-F
7
C
4
1
D
1
2
-F
6
8
8
1
D
1
2
-F
5
4
C
1
D
1
2
-F
4
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K