Fréttablaðið - 09.02.2017, Síða 31
Kynningarblað hollt og bragðgott
9. febrúar 2017 3
„Íslensk fjallalömb eru alin á hálendisgróðri og erfðabreytt fóður (gMo) er ólöglegt í íslenskri sauðfjárrækt. Mikil vakning er meðal neytenda á mikilvægi þess að velja hreinan og lítið unninn mat. Þessi vitundar-
vakning, ásamt öflugri markaðssetningu gagnvart erlendum ferðamönnum, skýrir líklega þá aukningu sem hefur orðið í sölu á íslensku lambakjöti,” segir Svavar halldórsson, framkvæmdastjóri sauðfjárbænda.
Íslenskt lambakjöt er eitt hrein-
asta og næringarríkasta kjöt sem
völ er á, segir Svavar Halldórs-
son, framkvæmdastjóri sauðfjár-
bænda, enda er það til sölu í er-
lendum sérverslunum á borð við
Whole Foods sem sérhæfa sig í
hreinum og heilnæmum mat.
Hann segir íslenskt lambakjöt
ríkt af hollum ómega-3 fitusýr-
um, járni, steinefnum og B-, E-
og D-vítamínum. „Íslensk fjalla-
lömb eru alin á hálendisgróðri og
erfðabreytt fóður (GMO) er ólög-
legt í íslenskri sauðfjárrækt.
Mikil vakning er meðal neyt-
enda um mikilvægi þess að velja
hreinan og lítið unninn mat. Þessi
vit undar vakning, ásamt öflugri
markaðssetningu gagnvart er-
lendum ferðamönnum, skýrir
líklega þá aukningu sem hefur
orðið í sölu á íslensku lambakjöti
á innan landsmarkaði.“
Sala á íslensku lambakjöti
jókst um rúm 5 prósent á síð-
asta ári eftir samdrátt árin þar á
undan og nú er skortur á ýmsum
hlutum lambsins að sögn Svav-
ars.
Framsýnir bændur
Hann segir að þakka megi fram-
sýni og staðfestu íslenskra bænda
að bannað sé að nota hormóna
eða vaxtarhvetjandi lyf í íslensk-
um landbúnaði. Notkunin sé hins
vegar leyfð víða og í sumum Evr-
ópulöndum keyri lyfjagjöf úr hófi
fram. „Á stórbúum bæði vest-
an hafs og austan er fjölvirkum
sýklalyfjum blandað í fóður til að
örva vöxt og koma þau þá í stað
vaxtar hvetjandi hormóna eða eru
jafnvel notuð samhliða. Þessu til
viðbótar eru sláturdýr víða alin
á erfðabreyttu korni. Við ræktun
þess er notað gríðarlegt magn af
eitri eins og glýfósati og sú notk-
un eykst með hverju ári. Fleiri
og fleiri sjá hið augljósa að þetta
er skaðlegt fyrir umhverfið og
getur varla verið gott fyrir fólk
heldur, hvorki börn né fullorðna.“
Ítrekað hafi verið sýnt fram
á að illgresiseitrið berist í fólk
með fæðunni, segir Svavar. „Til
að sneiða hjá þessu borgar sig að
velja á diskinn lífrænar afurðir,
villtan fisk, íslenskt grænmeti
eða íslenskt lambakjöt.“
Neytendur meðvitaðri
Svavar segir meðvitaða neytend-
ur um allan heim taka nú meira
tillit til umhverfisfótspors þeirr-
ar vöru sem þeir kaupa. Sífellt
fleiri hafna því þeim eiturefna-
landbúnaði sem megnið af erfða-
breyttri ræktun í heiminum fell-
ur undir. „Óhófleg sýklalyfja-
notkun, ofnotkun á tilbúnum
áburði, erfðabreytt fóður, eitur-
efni og illgresiseyðir skaða um-
hverfið. Þá fylgir mikil losun á
gróðurhúsalofttegundum ýmissi
matvælaframleiðslu, sérstaklega
ef afurðirnar eru sendar heims-
horna á milli. Íslenskur búskap-
ur sem byggir á hefðbundinni
beit hefur langtum minni lofts-
lagsáhrif en erlendur stórbýla-
búskapur þar sem korn er uppi-
staða fóðursins.“
Þjóðaréttur okkar
Þrátt fyrir að umhverfisfótspor
íslenska lambakjötsins sé langt-
um minna en af flestu öðru kjöti
í heiminum vinna nú sauðfjár-
bændur að því að kolefnisjafna
alla greinina, segir Svavar. Það
gerist með uppgræðslu, skóg-
rækt og fleiri ráðum. „Kolefnis-
jöfnun, bann við erfðabreyttu
fóðri, hormónum og vaxtarhvetj-
andi lyfjum gera það að verk-
um að umhverfis fótspor íslenska
lambakjötsins er hverfandi í
öllum samanburði.“
Allt þetta, ásamt þeirri stað-
reynd að kjötið sé hollt, gott og
næringarríkt, er líklega ástæða
þess að 74% þjóðarinnar töldu
lambakjöt eða lambakjötsrétti
vera þjóðarréttinn samkvæmt
Gallupkönnun í fyrra, segir Svav-
ar. „Siðlegir og umhverfisvænir
búskaparhættir virðast þannig
skila sér í aukinni lambakjöts-
sölu til upplýstra neytenda.“
Íslenskt lambakjöt er í sókn
Það er góð ástæða fyrir því að íslenskt lambakjöt er til sölu í erlendum sérverslunum sem sérhæfa sig í hreinum og heilnæmum mat.
Íslensk fjallalömb eru alin upp á hálendisgróðri auk þess sem erfðabreytt fóður er ólöglegt í íslenskri sauðfjárrækt.
Svavar halldórsson, framkvæmdastjóri
sauðfjárbænda. MYND/gVa
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
2
-F
2
D
4
1
D
1
2
-F
1
9
8
1
D
1
2
-F
0
5
C
1
D
1
2
-E
F
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K