Fréttablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 34
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Lukka segist hafa smitast af æf-
inga- og keppnisgleði Brynhild-
ar Róbertsdóttur og Róberts
Mar shall fyrir ári. Þá fór hún að
stunda fjölbreytt útisport með FÍ
Landvættum eins og gönguskíði,
vatnasund, hjólreiðar og náttúru-
hlaup. „Það er ótrúlega gaman og
gefandi að ferðast um landið með
þessu skemmtilega fólki en þau
hlaupa öll og synda hraðar en ég
svo ég ákvað að spýta í lófana og
taka Meistaramánuð með trompi
svo ég geti reynt að ná þeim,“ segir
Lukka glaðlega.
Helstu markmið Lukku í átak-
inu tengjast því að bæta bæði mat-
aræði og hreyfingu. „Ég ákvað að
stunda fjölbreytta hreyfingu og
borða Happ-mat fimm daga vik-
unnar. Það er sannfæring mín að
ef við tökum okkur saman í and-
litinu og hendum út sykri og óholl-
ustu fyrir hollari mat þá spörum
við milljarða á milljarða ofan fyrir
Óttar og Benedikt. Hollar lífsvenj-
ur er besta fjárfesting í heimi.“
En ákvað hún að reyna eitthvað
nýtt í mánuðinum? „Já, það er mér
mikilvægt að vera alltaf að prófa
eitthvað nýtt og ég er nýbyrjuð að
sækja tíma í Sólum jógasetri, sem
heita hreyfiflæði GMB og eru al-
gjör snilld. Krefjandi hreyfing ólík
því sem ég hef stundað áður með
áherslu á líkamsbeitingu og lík-
amsstjórn,“ svarar Lukka og telur
að það að skrifa niður markmið sín
í Meistaramánaðardagatalið muni
örugglega hjálpa henni að halda út.
Girnilegar uppskriftir
Lukka bjó einnig til sérstakt daga-
tal með uppskriftum fyrir hvern
dag. „Það var haft samband við
okkur hjá Happi um að taka saman
rétti sem gætu hjálpað fólki að ná
markmiðum sínum og það var auð-
sótt,“ segir Lukka en uppskriftirn-
ar má finna á meistaramanudur.is.
Fiskisúpa með
kókosrjóma oG túrmeriki
fyrir 4
2 msk. jarðhnetuolía
1 dl kasjúhnetur
1 hvítlauksrif, saxað (má
sleppa)
5 cm bútur af engifer, saxað
1 stórt rautt chili,
fræhreinsað ef vill og skorið í
örþunnar ræmur
1 handfylli ferskt kóríander,
lauf týnd frá og söxuð og
stilkar einnig saxaðir
2 litlir laukar, fínsaxaðir
1 msk. fennelfræ
1 msk. kóríanderfræ
1 tsk. túrmerik
1 l fiskisoð eða sama magn
af vatni með fiskikrafti eða
grænmetiskrafti
3 dl kókosrjómi
1 msk. hrásykur
Safi úr tveimur
límónum
300 g risarækjur
500 g hvítur
fiskur, sem er
fastur í sér, t.d. lúða,
skorin í munnbita
200 g lax eða silungur,
skorinn í munnbita
Sjávarsalt, eftir smekk
Svartur pipar, eftir smekk
Hugmyndir að meðlæti
l Happ-flatbrauð
l Ristaðar kókosflögur
l Kasjúhnetur
l Þunnskorið rautt chili
l Vorlaukur í þunnum sneiðum
l Límónubátar
Hitið 1 msk. af olíu í potti og brúnið
kasjúhnetur. Setjið til hliðar.
Steikið hvítlauk, engifer og chili í
sama potti í fáeinar mínútur. Takið
úr pottinum og setjið í mortél eða
matvinnsluvél ásamt kasjúhnetun-
um og söxuðum
kóríanderstilk-
um. Geym-
ið.
Hitið
seinni msk.
af olíunni og
mýkið laukinn
á meðalhita í
10-15 mín-
útur.
Myljið
fennel-
fræ og
kórían-
derfræ í
mortéli eða með hnífsblaði. Bætið
þessu síðan við laukinn ásamt
túrmeriki. Steikið í 2 mínútur eða
svo.
Setjið helminginn af kryddmauk-
inu saman við ásamt soðinu og
kókosrjómanum.
Bætið sykri, salti og pipar saman
við eins og þurfa þykir. Látið sjóða í
10 mínútur eða svo.
Setjið þá restina af kryddmauk-
inu saman við ásamt límónusafa.
Smakkið til og látið suðuna koma
upp.
Saltið og piprið sjávarfangið og
setjið síðan saman við súpuna.
Sjóðið í 3 mínútur eða svo.
Látið kóríanderlauf saman við
og berið strax fram. Gott er að
bera súpuna fram eina sér eða með
einhverju af þeim hráefnum sem
stungið er upp á sem meðlæti.
Reynir að ná æfingafélögunum
Unnur Guðrún Pálsdóttir, eða Lukka í Happi, er ein þeirra fjölmörgu sem taka þátt í Meistaramánuði í febrúar. Hún gerir gott betur en aðrir og
hefur búið til tvö dagatöl fyrir átakið, annað fyrir sig persónulega og hitt er uppskriftadagatal með nýrri og girnilegri uppskrift fyrir hvern dag.
H é r g e f u r
meistarakokk-
ur inn Úlfar
Finnbjörnsson
gómsæta upp-
skrift að heil-
steiktum lamba-
hrygg að hætti
Burgundy-búa.
1 lambahryggur
salt og nýmalaður pipar
1 tsk. tímíanlauf
1 tsk. rósmarínnálar
2 hvítlauksgeirar, smátt
saxaðir
Skerið 2 cm djúpar rákir ofan í fit-
una á hryggnum með 1 cm milli-
bili. Saltið hrygginn og kryddið með
pipar, tímíani, rósmaríni og hvítlauk.
Færið hrygginn í ofnskúffu og setj-
ið í 180°C heitan ofn í 50 mín. Berið
hrygginn fram með sósunni og t.d.
steiktu grænmeti og kartöflum.
Burgundy-sósa
2 dl rauðvín
2 msk. olía
10 litlir sveppir
10 skalotlaukar
2 beikonsneiðar, skornar í
2 cm bita
1 tsk. tímíanlauf
2 lárviðarlauf
1 tsk. tómatmauk
3 dl vatn
1 tsk. lambakjötskraftur
Sósujafnari, salt og
nýmalaður pipar
Hellið rauðvíni yfir hrygginn þegar
hann er búinn að vera í ofninum í
40 mín. og leyfið honum að bak-
ast áfram í 10 mínútur. Hellið þá
rauðvíninu úr ofnskúffunni í skál og
veiðið alla fitu ofan af. Hitið olíu í
potti og látið sveppi, lauk og beik-
on krauma í 3 mínútur. Bætið þá
rauðvíninu í pottinn, ásamt tímí-
ani, lárviðarlaufum og tómatmauki,
og sjóðið niður um þriðjung. Setj-
ið vatn og lambakraft saman við,
þykkið með sósujafnara. Bragðbæt-
ið með salti og pipar.
Heilsteiktur lamBaHryGGur
að Hætti BurGundy-Búa
Unnur Guðrún Pálsdóttir.
Fiskisúpa með kókosrjóma og túrmeriki.
Heilsteiktur lambahryggur að hætti
Burgundy-búa með gómsætri sósu og
grænmeti. MYND/ KRiStiNN MaGNúSSoN oG
KaRl PeteRSoN.
úlfar Finnbjörnsson.
OrkupOkinn
Allt sem
þú þArft
HOll
Og góð
OrkA
Hollt oG BRaGðGott Kynningarblað
9. febrúar 20176
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
2
-F
2
D
4
1
D
1
2
-F
1
9
8
1
D
1
2
-F
0
5
C
1
D
1
2
-E
F
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K