Fréttablaðið - 09.02.2017, Side 58

Fréttablaðið - 09.02.2017, Side 58
Hvað er að frétta? Hvað gengur á hjá þér þessa dagana – ertu aðallega á ferðalögum eða ertu að vinna að einhverjum skemmtilegum verkefnum? Getum við átt von á plötu frá þér, jafnvel eitthvað eins og þú varst að pumpa út þarna í kringum 2000? „Jú, ég er í þann mund að gefa út smáskífulagið „Where U iz“. Síðan er ég að vinna að kvikmyndatengdu verkefni, en ég get eiginlega ekki talað um það strax. Annars er það bara sami gamli straumurinn af tónlistarhátíðum og „residency“ á Cream í Amnesia-klúbbnum á Ibiza.“ Þú heimsóttir okkur síðast árið 2002 – síðan þá hafa auðvitað liðið mörg ár, þú jafnvel manst ekki einu sinni eftir því lengur. En þau okkar sem muna eftir þeim tónleikum, hverju ættum við að eiga von á? Verður þetta allt glænýtt hjá þér eða muntu dúndra í nostalgíugírinn handa öllum gömlu góðu aðdáend- unum? „Hah, auðvitað man ég eftir því! Ég verð nýr og betri maður í þetta sinn, en ég mun líka taka vel valin gullin „throwback“ handa elstu aðdáend- unum... þarna verður eitthvað fyrir alla.“ Þú ert nú þekktur fyrir ansi veglega t ó n l e i k a e ð a þ a ð má jafnvel kalla þetta sý n i n g a r – verðum v i ð Í s l e n d - i n g a r s v o heppnir að fá að berja eina slíka augum á Sónarhátíðinni? „Sko, stærð sviðsins sem ég mun spila á leyfir kannski ekki alveg þessi risastóru „show“ sem ég hef verið að henda í á stærstu tónlistar- hátíðunum en hins vegar er ég þess fullviss að við munum öll skemmta okkur drulluvel og fara heim með þá tilfinningu að við séum betri mann- eskjur.“ Þú ert ákaflega upptekinn og spilar á aragrúa tónleika – hvað í ósköpun- um er það sem heldur þér gangandi í gegnum allt þetta brjálæði? „Ég bara elska þetta starf, ég meina það! Ég elska bæði tónlist og að spila tónlist fyrir fólk sem brosir og dans- ar. Því skyldi maður ekki elska það? Að fylgjast með ungu fólki kætast og flýja inn í sameiginlega alsælu er minn lykill að eilífri æsku.“ Ég las nýlega viðtal við þig þar sem þú nefnir að þú bókir mjög mikið af þínum tónleikaferðalögum í kringum mat, að þú veljir suma staði sérstak- lega vegna þess að þú veist þar af góðum veitingastöðum – hefurðu eitt- hvað kíkt á úrvalið hérna á Íslandi? Eða er það kannski ekki maturinn sem dró þig hingað? „Síðast þegar ég mætti til Íslands borðaði ég bæði lunda og súrhval. Ef einhver getur boðið mér eitthvað villtara en það þá verð ég auðvitað að smakka á því … en ég verð að segja það að ég kom alls ekki út af matnum, ég kom vegna þess að ég elska bæði Sónarhátíðina og Íslendinga.“ Á þeim nótunum – ætlarðu að eyða einhverjum tíma í eða í kringum Reykjavík fyrir eða eftir tónleikana þína? Ef svo er, hvað er það sem þú ætlar að gera af þér? „Ég held að þetta verði frekar ein- falt inn og út gigg í þetta sinn, því miður. Einn daginn (þegar börnin mín eru orðin eldri) mun ég hafa tíma til að stoppa í lengri tíma og jafnvel hætta mér lengra en í Bláa lónið!“ Sónarhátíðin fer fram dagana 16.-18. febrúar og mun Fatboy Slim spila á laugardeginum. stefanthor@frettabladid.is Að fylgjAst með ungu fólki kætAst og flýjA inn í sAmeiginlegA Alsælu er minn lykill Að eilífri æsku. Fatboy Slim er bæði þekktur fyrir tónlistarferil sinn en líka fyrir að vera einn eftirsóttasti plötusnúður í heiminum. PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 70 23 8 20–40% afsláttur af öllum vítamínum hjá Lyfjum & heilsu. Vítamíndagar Fatboy Slim eða Norman Cook eins og mamma hans kallar hann gæddi sér meðal annars á lunda síðast þegar hann var á landinu. Fréttablaðið/SteFáN smakkaði súrhval síðast Ofurplötusnúður- inn Fatboy Slim mætir í annað sinn til landsins til þess að spila á Sónar nú um miðjan mánuð. Hann er mikill mat- maður og smakkaði meðal annars súr- hval í síðustu ferð en væri vel til í að smakka eitthvað villtara í þetta sinn. 9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r38 L í f I ð ∙ f r É T T a b L a ð I ð Lífið 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 3 -1 F 4 4 1 D 1 3 -1 E 0 8 1 D 1 3 -1 C C C 1 D 1 3 -1 B 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 8 2 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.