Fréttablaðið - 09.02.2017, Page 58
Hvað er að frétta? Hvað gengur á hjá þér þessa dagana – ertu aðallega á ferðalögum eða ertu að vinna að einhverjum
skemmtilegum verkefnum? Getum
við átt von á plötu frá þér, jafnvel
eitthvað eins og þú varst að pumpa
út þarna í kringum 2000?
„Jú, ég er í þann mund að gefa út
smáskífulagið „Where U iz“. Síðan
er ég að vinna að kvikmyndatengdu
verkefni, en ég get eiginlega ekki
talað um það strax. Annars er það
bara sami gamli straumurinn af
tónlistarhátíðum og „residency“
á Cream í Amnesia-klúbbnum á
Ibiza.“
Þú heimsóttir okkur síðast árið
2002 – síðan þá hafa auðvitað liðið
mörg ár, þú jafnvel manst ekki einu
sinni eftir því lengur. En þau okkar
sem muna eftir þeim tónleikum,
hverju ættum við að eiga von á?
Verður þetta allt glænýtt hjá þér
eða muntu dúndra í nostalgíugírinn
handa öllum gömlu góðu aðdáend-
unum?
„Hah, auðvitað man ég eftir því! Ég
verð nýr og betri maður í þetta sinn,
en ég mun líka taka vel valin gullin
„throwback“ handa elstu aðdáend-
unum... þarna verður eitthvað fyrir
alla.“
Þú ert nú
þekktur fyrir
ansi veglega
t ó n l e i k a
e ð a þ a ð
má jafnvel
kalla þetta
sý n i n g a r
– verðum
v i ð
Í s l e n d -
i n g a r
s v o
heppnir að fá að berja eina slíka
augum á Sónarhátíðinni?
„Sko, stærð sviðsins sem ég mun
spila á leyfir kannski ekki alveg
þessi risastóru „show“ sem ég hef
verið að henda í á stærstu tónlistar-
hátíðunum en hins vegar er ég þess
fullviss að við munum öll skemmta
okkur drulluvel og fara heim með þá
tilfinningu að við séum betri mann-
eskjur.“
Þú ert ákaflega upptekinn og spilar
á aragrúa tónleika – hvað í ósköpun-
um er það sem heldur þér gangandi í
gegnum allt þetta brjálæði?
„Ég bara elska þetta starf, ég meina
það! Ég elska bæði tónlist og að spila
tónlist fyrir fólk sem brosir og dans-
ar. Því skyldi maður ekki elska það?
Að fylgjast með ungu fólki kætast
og flýja inn í sameiginlega alsælu er
minn lykill að eilífri æsku.“
Ég las nýlega viðtal við þig þar sem
þú nefnir að þú bókir mjög mikið af
þínum tónleikaferðalögum í kringum
mat, að þú veljir suma staði sérstak-
lega vegna þess að þú veist þar af
góðum veitingastöðum – hefurðu eitt-
hvað kíkt á úrvalið hérna á Íslandi?
Eða er það kannski ekki maturinn
sem dró þig hingað?
„Síðast þegar ég mætti til
Íslands borðaði ég bæði lunda
og súrhval. Ef einhver getur boðið
mér eitthvað villtara en það þá verð
ég auðvitað að smakka á því … en ég
verð að segja það að ég kom alls ekki
út af matnum, ég kom vegna þess
að ég elska bæði Sónarhátíðina og
Íslendinga.“
Á þeim nótunum – ætlarðu að
eyða einhverjum tíma í eða í kringum
Reykjavík fyrir eða eftir tónleikana
þína? Ef svo er, hvað er það sem þú
ætlar að gera af þér?
„Ég held að þetta verði frekar ein-
falt inn og út gigg í þetta sinn, því
miður. Einn daginn (þegar börnin
mín eru orðin eldri) mun ég hafa
tíma til að stoppa í lengri tíma og
jafnvel hætta mér lengra en í Bláa
lónið!“
Sónarhátíðin fer fram dagana
16.-18. febrúar og mun Fatboy Slim
spila á laugardeginum.
stefanthor@frettabladid.is
Að fylgjAst með
ungu fólki kætAst
og flýjA inn í sAmeiginlegA
Alsælu er minn lykill Að
eilífri æsku.
Fatboy Slim er bæði þekktur fyrir tónlistarferil sinn en líka fyrir að vera einn eftirsóttasti plötusnúður í heiminum.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
70
23
8
20–40%
afsláttur af öllum vítamínum
hjá Lyfjum & heilsu.
Vítamíndagar
Fatboy Slim eða Norman Cook
eins og mamma hans kallar
hann gæddi sér meðal annars
á lunda síðast þegar hann var á
landinu. Fréttablaðið/SteFáN
smakkaði
súrhval
síðast
Ofurplötusnúður-
inn Fatboy Slim
mætir í annað sinn
til landsins til þess
að spila á Sónar nú
um miðjan mánuð.
Hann er mikill mat-
maður og smakkaði
meðal annars súr-
hval í síðustu ferð
en væri vel til í að
smakka eitthvað
villtara í þetta sinn.
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r38 L í f I ð ∙ f r É T T a b L a ð I ð
Lífið
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-1
F
4
4
1
D
1
3
-1
E
0
8
1
D
1
3
-1
C
C
C
1
D
1
3
-1
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K