Fréttablaðið - 10.06.2017, Side 4
KRÍT
15. júní í 11 nætur
Netverð á mann frá kr. 73.195 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 88.945
m.v. 2 fullorðna í stúdíó.
Toxo Hotel &
Apartments
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
á flugsæti
Frá kr.
73.195
FY
RI
R2 1
LögregLumáL Lögreglan var
kölluð að heimili Hafþórs Júlíusar
Björnssonar kraftlyftingamanns,
sem jafnan er kallaður Fjallið, á
fimmtudagskvöld vegna heim-
iliserja. Heimildir herma að hann
hafi meðal annars meinað konu
útgöngu úr húsi hans.
Konan komst út við illan leik,
en hún stökk út um opinn eld-
húsglugga og leitaði aðstoðar hjá
nágrönnum Hafþórs. Í kjölfarið var
lögreglan kölluð til en Hafþór var
ekki handtekinn vegna atviksins.
Málið hefur enn ekki verið kært til
lögreglu.
Nágrannar Hafþórs urðu vitni að
atburðarásinni.
Þetta er í þriðja sinn á rúmu hálfu
ári sem lögreglan er kölluð til vegna
framgöngu Hafþórs við konuna. Í
nokkur skipti hefur konan borið
mar um líkamann eftir samskipti
við Hafþór. Fyrsta atvikið, þar sem
lögregla var kölluð til, átti sér stað
30. desember síðastliðinn en Haf-
þór og konan slitu samvistum fyrir
nokkru síðan.
„Ég hef engan áhuga á að tala
um þetta. Þetta er einkamál sem er
mjög viðkvæmt. Mér finnst leiðin-
legt að ég komi út sem einhver
vondur kall,“ sagði Hafþór Júlí-
us þegar Fréttablaðið leitaði við-
bragða hans í gær.
Hafþór segir málið snúast um
hund sem hann og fyrrverandi
kærastan deila um forræði yfir.
„Hann heitir Ástríkur. Á fimmtudag
fékk ég að hafa hundinn. Hún vill
ekki að ég sé með hundinn og vill
fá að koma yfir en ég vildi fá að hafa
hundinn um nóttina. Þetta er æðis-
legur hundur og mér þykir vænt
um hann. Þú veist hvernig getur
verið í sambandsslitum, það getur
verið hiti í kolunum og við förum
að þræta. Þá vill hún tala við mig,
og ég eins og hálfviti læt blekkjast
aftur, sest niður í stól og um leið
tekur hún af stað og stekkur út.
Við þetta bregður mér rosalega og
ég fer á eftir henni. Þegar við erum
að hlaupa næ ég í hana og tek í
peysuna hennar. Við þetta verða
læti og þá er nágranni sem hringir
væntanlega á lögregluna og þá
sleppi ég henni og lögregla kemur
á svæðið,“ segir Hafþór um atvikið
á fimmtudag.
Hafþór Júlíus er annar sterkasti
maður í heimi en hann endaði í
öðru sæti í keppninni Sterkasti
maður heims fyrir tæplega tveimur
vikum. Hafþór var einu stigi frá sigri
í keppninni. Hann fékk viðurnefnið
Fjallið eftir leik sinn í þáttaröðinni
Game of Thrones. Hann hefur verið
talsvert til umfjöllunar í íslenskum
og erlendum miðlum undanfarin
ár. snaeros@frettabladid.is
Lögreglan kölluð
að heimili Fjallsins
Lögregla var kölluð í þrígang að heimili Hafþórs Júlíusar Björnssonar kraftlyft-
ingamanns vegna heimiliserja. Heimildir herma að mar og áverkar hafi fundist
á fyrrverandi kærustu Hafþórs eftir samskipti við hann. Hafþór harmar það að
vera talinn vondi karlinn í málinu og segir málið snúast um hundinn Ástrík.
Sumar skærustu stjörnur rappsenunnar komu fram
Það var líf og fjör á Esjunni í gærkvöldi þar sem Emmsjé Gauti, sem hér stendur ofan á hátalara á fjallinu, DJ Þura Stína, sem er einn meðlima Reykja-
víkurdætra, Úlfur Úlfur og Aron Can tróðu upp. Fjöldi fólks kom saman nálægt Steininum og hlýddi á rapptóna. Einhverjir lögðu ekki í fjallgöngu
en fóru upp í þyrlu. Blíðskaparveður var á fjallinu og stemningin einstaklega góð eins og sjá má á myndinni. Fréttablaðið/andri marino
Hafþór segir málið snúast um hundinn Ástrík. Fréttablaðið/Valli
AFÞreYINg Yfir helmingur Íslend-
inga er með áskrift að bandarísku
efnisveitunni Netflix samkvæmt
nýrri könnun MMR sem var fram-
kvæmd dagana 11. til 16. maí. Um
er að ræða 25,6 prósentustiga aukn-
ingu frá því að síðasta könnun var
gerð í janúar í fyrra. Þá sögðu 33,2
prósent aðspurðra að þau eða ein-
hver á heimilinu væri með áskrift
að Netflix.
Í könnun MMR sögðust 2,7 pró-
sent aðspurðra ætla að kaupa áskrift
að efnisveitunni á næstu sex mán-
uðum, en hlutfallið var 7,5 prósent
í janúar í fyrra. – kij
Yfir helmingur
er með áskrift
að Netflix
Veður
Norðaustan 5-13 og úrkomu-
lítið og bjart með köflum vestan
og norðanlands. Hiti 6 til 16 stig,
hlýjast SV-til, en svalast á annesjum
Norðanlands. sjá síðu 58
BANdAríkIN Uppljóstrarinn Chelsea
Manning kom fram í viðtali við ABC
News í gær. Þar þakkaði hún fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, Barack
Obama, fyrir að gefa sér tækifæri og
segir mörg tækifæri í því fólgin að
vera sloppin úr fangelsi.
Manning var leyst úr haldi í
maí, 28 árum á undan áætlun, að
ákvörðun Obama, en þá hafði hún
afplánað sjö ár. Hún var sakfelld
fyrir að leka hundruðum þúsunda
leynilegra gagna, meðal annars um
hernaðaraðgerðir Bandaríkjahers í
Írak og Afganistan. Í viðtalinu segir
hún það hafa verið skyldu sína gagn-
vart almenningi að leka gögnunum.
Manning gekkst undir kynleiðrétt-
ingarferli á meðan hún var í fangelsi,
en fékk ekki hormóna hluta tímans.
Hún ræddi líka baráttuna fyrir að fá
hormónana í viðtalinu. – sg
Manning
þakkaði Obama
í fyrsta viðtalinu
íÞrÓTTIr Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu tekur á móti Króatíu í
undankeppni HM2018 á Laugardals-
velli á morgun.
Búist er við fullum velli enda
topplið riðilsins að mætast. Króatar
hafa þriggja stiga forskot á toppnum
og geta komist í vænlega stöðu með
sigri. Ætli íslenska liðið hins vegar
beint inn á HM kemur eiginlega ekk-
ert annað til greina en sigur.
Boðið verður upp á svokallað Fan-
Zone í Laugardalnum fyrir leik. Að
auki geta þeir sem ekki fengu miða
á leikinn horft á hann þar á risaskjá
í hópi annarra miðalausra. FanZone
verður einnig í boði þegar íslenska
kvennalandsliðið mætir Brasilíu
í æfingaleik á þriðjudag klukkan
18.30. Þetta er síðasti leikur liðsins
áður en það heldur á Evrópumótið
í Hollandi í sumar. – jóe / sjá síðu 26
Þúsundir mæta
í Laugardalinn
Af þátttakendum 68 ára
og eldri sögðust aðeins 28%
vera með áskrift á heimilinu.
1 0 . j ú N í 2 0 1 7 L A u g A r d A g u r2 F r é T T I r ∙ F r é T T A B L A ð I ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-4
3
8
0
1
D
0
D
-4
2
4
4
1
D
0
D
-4
1
0
8
1
D
0
D
-3
F
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K