Fréttablaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 6
WWW.GÁP.IS FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ FINNA UPP HJÓLIÐ – ÞÚ FINNUR ÞAÐ HJÁ GÁP OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10 - 16 LögregLumáL Lögregla hefur ástæðu til að gruna að sexmenning- arnir, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa banað Arnari Jónssyni Aspar á miðvikudagskvöld, hafi komið sér saman um sögu til að segja lögreglu ef til þess kæmi. Atvikalýsing frá kvöldinu gefur til- efni til að ætla að samræmdur fram- burður hafi verið ákveðinn áður en sexmenningarnir fóru að heimili Arnars á Æsustöðum í Mosfellsdal. Heimildir Fréttablaðsins herma að mikið ósamræmi hafi verið í framburði sexmenninganna við fyrstu yfirheyrslu hjá lögreglu aðfaranótt föstudags. Þó hafi þeim öllum borið saman um að þau hafi farið að heimili Arnars og unnustu hans til að sækja þar garðverkfæri í eigu eins í hópnum, Sveins Gests Tryggvasonar. Sveinn Gestur og Arnar voru æskuvinir. Sú saga kemur þó ekki heim og saman við símtal Sveins við Neyð- arlínuna eftir að Arnar hafði misst meðvitund. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær kynnir Sveinn sig með nafni og óskar eftir sjúkrabíl að Æsustöðum. Því næst heyrist hann leggja símann frá sér og hrópa ókvæðisorð að Arnari, sem þá var án meðvitundar, um meinta fíkni- efnaskuld. Fjölskylda hins myrta þvertekur fyrir að hann hafi verið í neyslu. Hann og unnusta hans hafa verið í sambandi í tæplega eitt og hálft ár og á þeim tíma hafi aldrei sést á honum fíkniefni eða neitt í þá veruna. Eins og fram hefur komið eignuðust Arnar og unnusta hans dóttur í lok maí. Þau höfðu í sam- einingu valið nafn á dótturina áður en voðaverkið var framið en hún hefur enn ekki verið skírð. Heimildir Fréttablaðsins herma að öll sex neiti staðfastlega að hafa átt þátt í dauða Arnars. Þau draga sömuleiðis úr þætti annarra í mál- inu, að minnsta kosti enn um sinn. Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar deildar lögreglunnar, segir að engar yfirheyrslur hafi farið fram fyrripart dags í gær, föstudag. Hann vill ekki tjá sig um það sem fram hefur komið í yfirheyrslunum. „Ég hef ekkert farið út í neitt sem hefur komið fram í yfirheyrslunum. Við erum dálítið að ráða ráðum okkar og safna saman gögnum. Það komu margir að rannsókninni í upphafi þannig að við erum bara að safna gögnum og skoðum síðan framhaldið.“ Allir fimm karlarnir í málinu, Sveinn Gestur, Jón Trausti Lúthers- son, Marcin Wieslaw Nabakowski, Rafal Marek Nabakowski og Rúnar Örn Bergmann, hafa verið úrskurð- aðir í gæsluvarðhald til 23. júní. Ásta Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 16. júní. Í samtali við Ríkisútvarpið sagðist Grímur telja að dómari hafi talið að tengsl hennar við atburða- rásina væru minni en karlanna og því væri gæsluvarðhald hennar styttra. Sexmenningarnir eru allir í gæslu- varðhaldi á grundvelli 211. greinar almennra hegningarlaga, sem fjallar um manndráp. ritstjorn@frettabladid.is Reyndu að samræma framburð Sakborningunum í morðmálinu í Mosfellsdal ber öllum saman í einu veigamiklu atriði við yfirheyrsl- ur. Framburður þeirra er að öðru leyti á reiki. Búið var að velja nafn á nýfædda dóttur hins látna. Sexmenningarnir voru allir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Jón Trausti Lúthersson og Sveinn Gestur Tryggvason klæddust ekki eigin fötum þegar þeir voru leiddir fyrir dómara. Föt þeirra voru haldlögð í rannsóknarskyni. FréTTabLaðið/Eyþór Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans er ósáttur við að siðanefnd Blaðamanna- félags Íslands hafi vísað frá kæru hans vegna ásakana í Morgunblaðinu um meint tengsl Kjarnans við kröfuhafa föllnu bankanna. Hann segir frávísun- ina þýða að hann geti fullyrt að ritstjóri Morgunblaðsins sé með hala og vísar í „þrálátan orðróm“ því til stuðnings. Laufey Rún Ketilsdóttir aðstoðarmaður dómsmálaráð- herra gekk í hús í Twickenham með frambjóð- anda Íhaldsflokksins daginn fyrir þingkosningar í Bretlandi. Hún kvaðst vera á eigin vegum og fór í örskamma stund til að fylgjast með hvernig Bretar haga kosningabaráttu sinni. Halldór Hall- dórsson oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík greiddi atkvæði gegn tillögu meirihlutans um að skora á ráðherra að veita heimild til að rukka sérstaklega þá sem aka um á nagladekkjum. Minnihlutinn sagði að með gjaldtöku væri verið að refsa íbúum fyrir að búa á stöðum þar sem götur væru ekki almenni- lega færar marga daga í röð þar sem þær eru ekki mokaðar. Þrjú í fréttum Hali, kosningar og naglar TöLur vikunnar 04.06.2017 TiL 10.06.2017 109 landsleiki hefur Fríða Sigurðar- dóttir, landsliðskona í blaki, leikið. 380 milljónir króna greiddu stjórnvöld erlendum ráðgjöfum við afnám gjaldeyrishafta á árunum 2013 til 2015. Greiðslur til innlendra ráð- gjafa námu um 73 milljónum. 70 milljónir rukkaði eigandi Kersins í Grímsnesi í aðgangseyri í fyrra. Hagnaðurinn var 30 milljónir. 15,5 klukkustundir talaði Kolbeinn Óttarsson Proppé á Alþingi í vetur og var hann ræðukóngur. 70 milljarðar gæti kostnaður við Borgarlínu á höfuð- borgarsvæðinu orðið. 372 milljóna velta var hjá baðstaðnum Fontana í fyrra. Hagnaðurinn var 90,8 milljónir króna. Það komu margir að rannsókninni í upphafi þannig að við erum bara að safna gögnum og skoðum síðan framhaldið. Grímur Grímsson, yfirmaður rann- sóknarinnar 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B L a ð i ð 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 1 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 D -5 7 4 0 1 D 0 D -5 6 0 4 1 D 0 D -5 4 C 8 1 D 0 D -5 3 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.