Fréttablaðið - 10.06.2017, Side 8

Fréttablaðið - 10.06.2017, Side 8
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 ÁRA5ÁBYRGÐ fiat.isFRUMSÝNUM NÝJAN FIAT Í dag 10. júní Opið frá 12 - 17 VIÐSKIPTI „Þetta er fyrst og fremst sóknarsamruni. Við erum að kaupa til þess að sækja fram. Við ætlum okkur að verða í forystu í smásölu,“ segir Eggert Þór Kristófersson, for­ stjóri olíufélagsins N1, spurður um fyrirhuguð kaup félagsins á Festi, næststærsta smásölufélagi landsins, sem tilkynnt var um í gærmorgun. Stjórnendur félaganna sjá mikil tækifæri í að sameina krafta félag­ anna og ná fram samlegðaráhrifum. Þannig verði til öflugt félag sem sé vel í stakk búið til að takast á við aukna samkeppni á smásölumark­ aði. „Við sjáum fyrir okkur miklar breytingar í smásölu á Íslandi á næstu árum. Þetta tengist ekki komu Costco, heldur hafa kaupin lengi verið á teikniborðinu og eru vel ígrunduð frá a til ö,“ nefnir Egg­ ert Þór. Fjárfestar tóku fregnunum vel en til marks um það hækkuðu hluta­ bréf í N1 um 9,7 prósent í verði í 1.171 milljónar króna viðskiptum í gær. Var gengi bréfanna við lok markaðar 124 krónur á hlut. Samkvæmt heimildum Frétta­ blaðsins hófust viðræður á milli félaganna skömmu fyrir páska. Tilkynnt var í gærmorgun um að samkomulag hefði náðst sem tekur á helstu skilmálum kaupanna. Heildarvirði Festar er metið á 37,9 milljarða króna í viðskiptunum, en endanlegt kaupverð mun ráðast af skuldastöðu félagsins við afhend­ ingu. Kaupverðið verður annars vegar greitt með hlutum í N1 að virði 8,75 milljarðar króna og hins vegar með yfirtöku skulda og lán­ töku. Stærsti hluthafi Festa er fram­ takssjóðurinn SÍA II, í rekstri eigna­ stýringarfélagsins Stefnis, en eftir kaupin verður sjóðurinn fjórði stærsti hluthafi í N1 með rúmlega átta prósenta hlut. Lífeyrissjóðir, ásamt Arion banka og VÍS, eru í hópi stærstu hluthafa sjóðsins. Holdor, eignarhaldsfélag Hreggviðs Jónssonar fjárfestis, eignast tæplega 4 prósenta hlut í félaginu og Brekka Retail ehf., sem er meðal annars í eigu Þórðar Más Jóhannessonar, fyrrverandi forstjóra Straums, um 2 prósenta hlut. Komast bæði félögin á lista yfir fimmtán stærstu eigendur N1. Velta N1 mun væntanlega meira en tvöfaldast við kaupin og verða um 75 til 80 milljarðar króna á ári. Til samanburðar er áætluð velta sameinaðs félags Haga og Olís um 120 milljarðar króna. Velta N1 kemur til með að tvöfaldast Hlutabréf í N1 ruku upp um 9,7% í verði eftir að tilkynnt var um kaup félagsins á smásölurisanum Festi, sem á meðal annars Krónuna. Velta sameinaðs félags mun verða um 75 til 80 milljarðar króna. Samlegðaráhrifin eru augljós. Viðræður hófust skömmu fyrir páskana. Heildarvirði Festar, sem rekur meðal annars 28 verslanir undir merkjum Krónunnar, ELKO, Nóatúns og Kjarvals, er metið á 37,9 milljarða króna í viðskiptunum. Samlegðaráhrifin eru nokkur, sem dæmi getur N1 staðsett bensíndælur við verslanir Krónunnar, eins og vilji stjórnenda hefur lengi staðið til. FréttabLaðið/HEiða Smásölumarkaðurinn að umturnast Samruni N1 og Festar er þriðji samruni olíu- og smásölufélags á undanförnum tveimur mánuðum. Í aprílmánuði var tilkynnt um kaup Haga á Olís fyrir um 9,2 til 10,2 milljarða króna, en áður höfðu Hagar fest kaup á Lyfju. Í síðasta mánuði bárust síðan fregnir af því að Skeljungur hefði í hyggju að kaupa Basko, sem rekur meðal ann- ars 10-11 verslanirnar og Iceland, fyrir um 2,2 milljarða króna. Sveinn segir að þessar hræringar á markaðinum komi ekki á óvart. Um sé að ræða eðlilega þróun sem eigi sér stað um allan heim. „Það er ekki algengt erlendis að það sé til sérfélag sem selur einungis bensín. Olíuframleið- endur eða smásölurisar eins og til dæmis Costco sjá yfirleitt um það. Smásala í heiminum er að þróast mjög hratt, til dæmis með aukinni nýsköpun og tækni, og er Ísland langt á eftir í þeirri þróun. Það fer vonandi að breytast.“ Þetta tengist ekki komu Costco, heldur hafa kaupin lengi verið á teikniborðinu og eru vel ígrunduð frá a til ö. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1 Í byrjun árs kom N1 á fót sérstök­ um fjárfestingararmi í því skyni að búa félagið undir frekari vöxt. Var hugsunin sú að nýta sterka eiginfjár­ stöðu félagsins – en eiginfjárhlutfall félagsins var 46,7 prósent í lok mars – til þess að ráðast í fjárfestingar. Eru kaupin á Festi afsprengi þess­ arar stefnumótunar, en heimildir Fréttablaðsins herma að fleiri fjár­ festingar séu til skoðunar hjá stjórn­ endum félagsins. Augljós samlegðaráhrif geta falist í kaupunum. Sem dæmi mun N1 geta sett bensíndælur við verslanir Krónunnar, eins og vilji stjórnenda félagsins hefur lengi staðið til, hag­ ræði er fólgið í sameiginlegum inn­ kaupum og þá verður mögulegt að setja upp Krónuverslanir á bensín­ stöðvum N1 um allt land. Eggert Þór bendir á að mikil tæki­ færi felist í því að fækka bensín­ stöðvum á Íslandi og setja þær upp við fjölfarnar verslanir. „Þetta snýst um að þú seljir hvað mest bensín þar sem mesta umferðin er. Þannig höfum við séð þróunina erlendis.“ Undir þetta tekur Sveinn Þórar­ insson, sérfræðingur í hagfræði­ deild Landsbankans. „Fyrirtæki sem selur bara bensín og sjoppuvörur er að verða barn síns tíma á smásölu­ markaði. Bensín er að verða eins og hver önnur neysluvara og þarf ekk­ ert að selja í sérbúð. Menn eru að reyna að grípa þessa þróun og það er í rauninni ósköp eðlilegt.“ Festi rekur 28 verslanir undir merkjum Krónunnar, ELKO, Nóa­ túns og Kjarvals en félagið á einn­ ig vöruhúsið Bakkann. Auk þess á félagið sautján fasteignir, að heildarstærð 71.500 fermetrar, sem eru annaðhvort í leigu til verslana félagsins eða þriðja aðila. Það er ekki síst umrætt fasteigna­ safn sem vakti áhuga stjórnenda N1. Ýmsir fjárfestar, þar á meðal stærstu fasteignafélög landsins, hafa rennt hýru auga til safnsins að undan­ förnu, samkvæmt heimildum Frétta­ blaðsins. kristinningi@frettabladid.is 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R6 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A Ð I Ð 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 1 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 D -6 B 0 0 1 D 0 D -6 9 C 4 1 D 0 D -6 8 8 8 1 D 0 D -6 7 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.