Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 8
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
ÁRA5ÁBYRGÐ
fiat.isFRUMSÝNUM
NÝJAN FIAT
Í dag 10. júní
Opið frá 12 - 17
VIÐSKIPTI „Þetta er fyrst og fremst
sóknarsamruni. Við erum að kaupa
til þess að sækja fram. Við ætlum
okkur að verða í forystu í smásölu,“
segir Eggert Þór Kristófersson, for
stjóri olíufélagsins N1, spurður um
fyrirhuguð kaup félagsins á Festi,
næststærsta smásölufélagi landsins,
sem tilkynnt var um í gærmorgun.
Stjórnendur félaganna sjá mikil
tækifæri í að sameina krafta félag
anna og ná fram samlegðaráhrifum.
Þannig verði til öflugt félag sem sé
vel í stakk búið til að takast á við
aukna samkeppni á smásölumark
aði.
„Við sjáum fyrir okkur miklar
breytingar í smásölu á Íslandi á
næstu árum. Þetta tengist ekki
komu Costco, heldur hafa kaupin
lengi verið á teikniborðinu og eru
vel ígrunduð frá a til ö,“ nefnir Egg
ert Þór.
Fjárfestar tóku fregnunum vel en
til marks um það hækkuðu hluta
bréf í N1 um 9,7 prósent í verði í
1.171 milljónar króna viðskiptum
í gær. Var gengi bréfanna við lok
markaðar 124 krónur á hlut.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins hófust viðræður á milli
félaganna skömmu fyrir páska.
Tilkynnt var í gærmorgun um að
samkomulag hefði náðst sem tekur
á helstu skilmálum kaupanna.
Heildarvirði Festar er metið á 37,9
milljarða króna í viðskiptunum, en
endanlegt kaupverð mun ráðast af
skuldastöðu félagsins við afhend
ingu. Kaupverðið verður annars
vegar greitt með hlutum í N1 að
virði 8,75 milljarðar króna og hins
vegar með yfirtöku skulda og lán
töku.
Stærsti hluthafi Festa er fram
takssjóðurinn SÍA II, í rekstri eigna
stýringarfélagsins Stefnis, en eftir
kaupin verður sjóðurinn fjórði
stærsti hluthafi í N1 með rúmlega
átta prósenta hlut. Lífeyrissjóðir,
ásamt Arion banka og VÍS, eru í
hópi stærstu hluthafa sjóðsins.
Holdor, eignarhaldsfélag Hreggviðs
Jónssonar fjárfestis, eignast tæplega
4 prósenta hlut í félaginu og Brekka
Retail ehf., sem er meðal annars í
eigu Þórðar Más Jóhannessonar,
fyrrverandi forstjóra Straums, um 2
prósenta hlut. Komast bæði félögin
á lista yfir fimmtán stærstu eigendur
N1.
Velta N1 mun væntanlega meira
en tvöfaldast við kaupin og verða
um 75 til 80 milljarðar króna á ári.
Til samanburðar er áætluð velta
sameinaðs félags Haga og Olís um
120 milljarðar króna.
Velta N1 kemur til með að tvöfaldast
Hlutabréf í N1 ruku upp um 9,7% í verði eftir að tilkynnt var um kaup félagsins á smásölurisanum Festi, sem á meðal annars Krónuna.
Velta sameinaðs félags mun verða um 75 til 80 milljarðar króna. Samlegðaráhrifin eru augljós. Viðræður hófust skömmu fyrir páskana.
Heildarvirði Festar, sem rekur meðal annars 28 verslanir undir merkjum Krónunnar, ELKO, Nóatúns og Kjarvals, er metið á 37,9 milljarða króna í viðskiptunum.
Samlegðaráhrifin eru nokkur, sem dæmi getur N1 staðsett bensíndælur við verslanir Krónunnar, eins og vilji stjórnenda hefur lengi staðið til. FréttabLaðið/HEiða
Smásölumarkaðurinn að umturnast
Samruni N1 og Festar er þriðji
samruni olíu- og smásölufélags á
undanförnum tveimur mánuðum.
Í aprílmánuði var tilkynnt um kaup
Haga á Olís fyrir um 9,2 til 10,2
milljarða króna, en áður höfðu
Hagar fest kaup á Lyfju. Í síðasta
mánuði bárust síðan fregnir af því
að Skeljungur hefði í hyggju að
kaupa Basko, sem rekur meðal ann-
ars 10-11 verslanirnar og Iceland,
fyrir um 2,2 milljarða króna.
Sveinn segir að þessar hræringar
á markaðinum komi ekki á óvart.
Um sé að ræða eðlilega þróun
sem eigi sér stað um allan heim.
„Það er ekki algengt erlendis
að það sé til sérfélag sem selur
einungis bensín. Olíuframleið-
endur eða smásölurisar eins og til
dæmis Costco sjá yfirleitt um það.
Smásala í heiminum er að þróast
mjög hratt, til dæmis með aukinni
nýsköpun og tækni, og er Ísland
langt á eftir í þeirri þróun. Það fer
vonandi að breytast.“
Þetta tengist ekki
komu Costco,
heldur hafa kaupin lengi
verið á teikniborðinu og eru
vel ígrunduð frá a til ö.
Eggert Þór
Kristófersson,
forstjóri N1
Í byrjun árs kom N1 á fót sérstök
um fjárfestingararmi í því skyni að
búa félagið undir frekari vöxt. Var
hugsunin sú að nýta sterka eiginfjár
stöðu félagsins – en eiginfjárhlutfall
félagsins var 46,7 prósent í lok mars
– til þess að ráðast í fjárfestingar.
Eru kaupin á Festi afsprengi þess
arar stefnumótunar, en heimildir
Fréttablaðsins herma að fleiri fjár
festingar séu til skoðunar hjá stjórn
endum félagsins.
Augljós samlegðaráhrif geta falist
í kaupunum. Sem dæmi mun N1
geta sett bensíndælur við verslanir
Krónunnar, eins og vilji stjórnenda
félagsins hefur lengi staðið til, hag
ræði er fólgið í sameiginlegum inn
kaupum og þá verður mögulegt að
setja upp Krónuverslanir á bensín
stöðvum N1 um allt land.
Eggert Þór bendir á að mikil tæki
færi felist í því að fækka bensín
stöðvum á Íslandi og setja þær upp
við fjölfarnar verslanir. „Þetta snýst
um að þú seljir hvað mest bensín
þar sem mesta umferðin er. Þannig
höfum við séð þróunina erlendis.“
Undir þetta tekur Sveinn Þórar
insson, sérfræðingur í hagfræði
deild Landsbankans. „Fyrirtæki sem
selur bara bensín og sjoppuvörur er
að verða barn síns tíma á smásölu
markaði. Bensín er að verða eins og
hver önnur neysluvara og þarf ekk
ert að selja í sérbúð. Menn eru að
reyna að grípa þessa þróun og það
er í rauninni ósköp eðlilegt.“
Festi rekur 28 verslanir undir
merkjum Krónunnar, ELKO, Nóa
túns og Kjarvals en félagið á einn
ig vöruhúsið Bakkann. Auk þess
á félagið sautján fasteignir, að
heildarstærð 71.500 fermetrar, sem
eru annaðhvort í leigu til verslana
félagsins eða þriðja aðila.
Það er ekki síst umrætt fasteigna
safn sem vakti áhuga stjórnenda N1.
Ýmsir fjárfestar, þar á meðal stærstu
fasteignafélög landsins, hafa rennt
hýru auga til safnsins að undan
förnu, samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins. kristinningi@frettabladid.is
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R6 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-6
B
0
0
1
D
0
D
-6
9
C
4
1
D
0
D
-6
8
8
8
1
D
0
D
-6
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K