Fréttablaðið - 10.06.2017, Qupperneq 26
fótbolti „Það er alltaf gaman að sjá
þessa stráka hittast. Þeir njóta þess
að vera með hver öðrum og það
er frábært að vera í svoleiðis hóp,“
segir jákvæður landsliðsþjálfari
Heimir Hallgrímsson í aðdraganda
stóra leiksins gegn Króötum á
morgun.
Það er mikið undir hjá
strákunum því takist þeim
að leggja Króatana að velli þá
komast þeir upp að hlið þeirra
á toppi riðilsins. Þetta er síð-
asti leikur leikmannanna fyrir
sumarfrí og er eitthvað
öðruvísi að undir-
búa leik við slíkar
aðstæður?
Skrítinn tími
„Það er alltaf
svolítið skrítið
að fá hóp saman
á þessum tíma.
S u m i r e r u
b ú n i r m e ð
sitt mót fyrir
þrem til fjórum
vikum síðan og
það hlýtur að
vera erfitt að
vera kominn í
frí en samt ekki
kominn í frí. Þetta
er því oft erfiður
tími og í ljósi þess
vildum við ekki taka
vináttuleik. Það hefur
oft vantað áhuga í vin-
áttuleikjum á þessum
tíma. Við vildum því
frekar gefa leikmönnum
meiri slaka og hafa undirbúning-
inn aðeins afslappaðri og gefa leik-
mönnum aðeins meira frelsi.“
Heimir hefur engu að síður verið
með stóran hluta hópsins á æfing-
um í nokkurn tíma sem hann segir
vera dýrmætt.
„Við erum gríðarlega sáttir
við strákana að hafa tekið
þátt í þessu með okkur. Þeir
skynja líka mikilvægi þessa
leiks og eru tilbúnir að leggja
allt í sölurnar,“ segir Heimir
en lykilmenn í hópnum
eru sumir hverjir
í litlu leikformi.
Til að mynda
hefur Birkir
B j a r n a s o n
ekki spilað
fótboltaleik
í rúma þrjá
mánuði.
Engar
áhyggjur
af leik-
formi
„Í upphafi
h a f ð i é g
þó nokkrar
á hyg g j u r a f
því en eftir að
hafa verið með
hann hér í þrjár vikur hef ég engar
áhyggjur af honum. Svo verður auð-
vitað að koma í ljós hvernig hann er
inn á vellinum. Við þekkjum allir
hugarfar Birkis og það er alltaf til
fyrirmyndar. Auðvitað vill maður að
allir leikmenn séu að spila alla leiki
en það er bara í fullkomnum heimi.
Við verðum bara að taka á stöðunni
eins og hún er í staðinn fyrir að væla
yfir henni, það þýðir ekkert.“
Heimir segir að allir leikmenn
liðsins séu í góðu standi fyrir leik-
inn og að undirbúningur hafi verið
eins og best verður á kosið. Leik-
menn tala af bjartsýni og trúa því
að nú sé komið að þeim að vinna
gegn Króatíu.
Tókum skref í rétta átt
„Við förum í alla leiki með það hug-
arfar að vinna. Leikirnir við Króata
hafa verið okkur erfiðir. Sérstak-
lega fyrstu tveir leikirnir þar sem
þeir voru klárlega bara betri. Við
töldum okkur hafa tekið fínt skref
í rétta átt í síðasta leik. Þeir skora úr
langskotum og flest færi þeirra eru
skot fyrir utan. Sóknarleikurinn var
samt vissulega fátæklegri á kostnað
góðs varnarleiks. Við erum að læra
af reynslunni og reynum að taka eitt
skref í viðbót,“ segir Heimir en hann
hefur engar áhyggjur af því að leik-
menn hafi ekki trúna sem þarf gegn
þessu sterka liði.
Mikið sjálfstraust
„Ég hef ekki miklar áhyggjur. Við
förum í leiki fullir af sjálfstrausti og
vitum að árangur okkar á heima-
velli er góður. Við töpuðum ekki
á móti þeim hér síðast. Á meðan
hugarfar strákanna er eins og það
er þá er ekkert til að hafa áhyggjur
af. Við vitum samt líka að við getum
átt stórfínan leik en samt tapað.
Það er eðlilegt því þeir eru með
heimsklassa lið. Við erum alltaf að
leita að sigurformúlunni og vonandi
finnst hún núna.“
henry@frettabladid.is
Leitum enn að sigurformúlunni
Heimir Hallgrímsson segir að undirbúningurinn fyrir leikinn gegn Króatíu á morgun hafi verið mjög góður.
Allir leikmenn heilir og hugarfar leikmanna sé eins og best verði á kosið. Strákarnir mæti því brattir til leiks.
Aron Einar Gunnars-
son er klár í slaginn
gegn Króatíu.
Hausverkur. Heimir klórar sér í hausnum þessa dagana og reynir að finna út hvernig eigi að vinna hið firnasterka lið Króatíu. Vonandi verður hann búinn að
finna sigurformúluna á morgun. fréTTAblAðið/Ernir
laugardagur:
13.30 formúla E: berlin Sport 2
13.55 f1: Æfing Kanada Sport
15.50 Kasakst. - Danmörk Sport 2
15.50 Aserb. - norður-Írla. Sport 3
15.50 Skotland - England Sport
16.50 f1: Tímataka Kanada Sport 4
17.00 fedEx St Jude Golfstöðin
18.35 noregur - Tékkland Sport 2
18.35 Pólland - rúmenía Sport 3
18.35 Þýskaland - San Mar. Sport
19.00 Manulife lPGA Sport 4
20.45 HM markasyrpa Sport
Sunnudagur:
13.30 formúla E: berlin Sport 2
15.50 Moldavía - Georgía Sport 4
15.50 finnland - Úkraína Sport
15.50 Írland - Austurríki Sport 3
17.00 fedEx St Jude Golfstöðin
17.30 f1: Keppni Kanada Sport 2
18.35 Makedónía - Spánn Sport
18.35 Serbía - Wales Sport 5
18.35 Kósóvó - Tyrkland Sport 3
19.00 Manulife lPGA Sport 4
20.45 HM markasyrpa Sport
22.10 Ísland - Króatía Sport
Helgin
Nýjast
leiknir r. - Selfoss 2-0
1-0 Tómas Óli Garðarsson (62.), 2-0 Ingvar
Ásbjörn Ingvarsson (75.).
inkasso-deildin
góður Sigur Á póLVerjum
Íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta vann þriggja marka sigur
á því pólska, 24-21, á gjensidige
Cup, fjögurra liða æfingamóti
í Noregi í gær. Varnarleikur
Íslendinga var miklu mun sterkari
en í tapinu fyrir Norðmönnum
á fimmtudaginn og þá varði
nýliðinn Ágúst elí Björgvinsson
vel í seinni hálfleik. Líkt og gegn
Noregi var ómar
ingi magnússon
markahæstur í
íslenska liðinu
í gær. Selfyss-
ingurinn tvítugi
skoraði sjö
mörk.
Íslending-
ar mæta
Svíum í
lokaleik
sínum á
mótinu á
morgun.
fimm fugLAr HjÁ óLAfÍu
Atvinnukylfingurinn ólafía Þór-
unn Kristinsdóttir lék
á tveimur höggum
undir pari á öðrum
keppnisdegi manu-
life LpgA Classic
í Ontaríó í Kanada.
mótið er hluti af LpgA-mótaröð-
inni í golfi, þeirri sterkustu í heimi.
ólafía spilaði einkar vel í gær og
fékk alls fimm fugla á hringnum og
aðeins þrjá skolla. Hún er sam-
tals á einu höggi undir pari en var,
þegar blaðið fór í prentun, ekki
réttu megin við niðurskurðar-
línuna.
ÍSLeNSKur Sigur Í COrK
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
bolta vann 63-69 sigur á Írlandi
í vináttulandsleik í Cork í gær-
kvöldi. Staðan í hálfleik var 28-27,
íslensku stelpunum í vil. Þetta var
fyrri leikur þjóðanna en sá seinni
fer fram í Dublin á morgun. erna
Hákonardóttir, Dagbjört Dögg
Karlsdóttir og Þóra Kristín jóns-
dóttir spiluðu allar sinn fyrsta
A-landsleik í gær. Hildur Björg
Kjartansdóttir var valin maður
leiksins.
Glíma við ógnarsterka
króatíska miðju
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar
Gunnarsson mun fá að glíma við
einn besta miðjumann heims,
Luka Modric, á morgun en
sleppur við Ivan Rakitic, miðju-
mann Barcelona, þar sem hann er
meiddur.
„Rakitic var mjög góður gegn
okkur úti og fann holurnar hjá
okkur. Við vorum í vandræðum
með hann,“ segir Aron Einar en
veit ekki hversu gott er að losna
við Rakitic því í stað hans kemur
væntanlega annar miðjumaður
Real Madrid, Mateo Kovacic.
„Hann var að vinna Meistara-
deildina. Það er gríðarleg breidd
og gæði. Það verður að koma í
ljós hvort það vinni með okkur.
Við þurfum fyrst og fremst að
vera einbeittir og klókir. Þetta
verður erfitt eins og alltaf gegn
gæðaliði. Þekkjum þá vel og von-
andi gerum við nógu vel núna til
þess að taka þrjú stig.“
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R24 S p o R t ∙ f R É t t A b l A ð i ð
sport
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-6
F
F
0
1
D
0
D
-6
E
B
4
1
D
0
D
-6
D
7
8
1
D
0
D
-6
C
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K