Fréttablaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 28
Spilaði hring með Adam Scott
Gylfi Þór Sigurðs-
son er framúrskar-
andi kylfingur,
með þrjá í forgjöf
og er forfallinn
áhugamaður um
íþróttina. Bróðir
hans, Ólafur
Már, var
lengi í hópi
bestu kylfinga
landsins og Gylfi
segist nokkuð viss
um að hann hefði
getað orðið atvinnu-
kylfingur hefði hann
valið golfið fram yfir
fótboltann.
„Ég hef nánast jafn
gaman af golfi og fótbolta.
Ég held að ég hefði getað
reynt fyrir mér í golfi ef ég
hefði æft það jafn mikið
og fótbolta,“ segir Gylfi
sem fylgist vel með
PGA-mótaröðinni.
„Ég horfi talsvert á
golf. Konan mín er ekkert sér-
staklega ánægð með það,“ segir
hann og hlær. „En ef það er ekkert
annað í sjónvarpinu þá reyni ég
að horfa, sérstaklega á
stærstu mótin.“
Hann á nokkra
kylfinga sem eru í
uppáhaldi hjá honum,
svo sem Ástralarnir Jason Day
og Adam Scott. „Ég spilaði
einu sinni með Adam Scott
og held mikið upp á hann,“
segir Gylfi.
Fótbolti Ísland mætir Króatíu á
sunnudag í einum mikilvægasta
landsleik síðari ára en með sigri
koma strákarnir okkar sér í lykil-
stöðu fyrir baráttuna um sæti á HM
í Rússlandi. Tap í leiknum þýðir
hins vegar að baráttan um efsta
sæti riðilsins og sjálfkrafa þátttöku-
rétt í lokakeppninni verður líklega
úr sögunni.
Strákarnir okkar hafa mætt Kró-
ötum þrívegis undanfarin ár en
aldrei borið sigur úr býtum. Ísland
hélt þó jöfnu í markalausu jafntefli
á Laugardalsvelli árið 2013 en stóra
vandamálið er að liðið hefur ekki
náð að skora í neinum leikjanna.
Gylfi Þór Sigurðsson þarf að eiga
stórleik, að venju, til að liðinu farn-
ist vel annað kvöld og hann hefur
ekki áhyggjur af þessu. „Við þurfum
bara að vera rólegir á boltanum. Ég
hef trú á því að við munum fá fullt
af færum – sérstaklega á heima-
velli þar sem við erum vanir því að
skapa mikið af færum, hvort sem
er með föstum leikatriðum eða í
gegnum venjulegt spil,“ sagði Gylfi
við Fréttablaðið fyrir æfingu lands-
liðsins á Laugardalsvelli í gær.
„Auðvitað þarf vörnin okkar að
vera þétt eins og hún hefur áður
verið. Ég veit að við eigum eftir að
skapa okkur færi – það þarf bara að
nýta þau.“
Hljóp næstum tíu maraþon
Gylfi fékk mikið lof fyrir frammi-
stöðu sína með Swansea á liðnu
tímabili enda var hann að öðrum
ólöstuðum langbesti leikmaður
liðsins sem tókst með herkjum að
halda sæti sínu í ensku úrvalsdeild-
inni. Telja margir sérfræðingar að
Gylfi eigi heima í sterkara liði en
hann baðst undan spurningum
um framtíð sína og vangaveltur um
möguleg félagaskipti.
Gylfi skoraði níu mörk með
Swansea og gaf þrettán stoðsend-
ingar en aðeins Kevin De Bruyne
og Christian Eriksen hjá Totten-
ham voru með fleiri stoðsendingar
í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Gylfi
spilaði nánast alla leiki með Swan-
sea og hljóp mest allra leikmanna í
deildinni – alls 410 kílómetra yfir
tímabilið allt.
„Þetta var rosalega langt tíma-
bil,“ segir Gylfi og brosir. „Þetta var
örugglega það erfiðasta og lengsta
tímabil sem ég hef gengið í gegnum
á mínum ferli. Við vorum í botnbar-
áttu allt tímabilið og ég viðurkenni
að þetta tók á. Það var mikill léttir
þegar við vorum loksins öruggir.“
Ekkert í símanum úti á velli
Gylfi segir að hann eigi ekki í erfið-
leikum með að núllstilla sig eftir
langt og strangt tímabil og finna
orku á nýjan leik fyrir krefjandi
landsleik.
„Það er eitthvað sem maður verð-
ur að geta gert og verður auðveldara
með árunum. Það er líka auðveld-
ara upp á framhaldið að gera, svo
maður glati ekki lönguninni,“ segir
Gylfi sem er öflugur kylfingur og
notar golf til að slappa af.
„Eftir tímabilið fór ég í rúma viku
til Bandaríkjanna og var á golfvell-
inum í tólf tíma á dag. Ég var ekkert
að spá í það hvað var verið að skrifa
um mig í blöðunum enda lítið í sím-
anum þegar ég er úti á velli,“ segir
hann í léttum dúr.
Gylfi nýtir tækifærið í Banda-
ríkjunum og spilar á mörgum bestu
golfvöllum landsins, til að mynda
TPC Sawgrass-vellinum, þar sem
Gylfi Þór Sigurðsson verður að venju í lykilhlutverki þegar áhorfendur munu troðfylla Laugardalsvöllinn á sunnudagskvöld. FréttabLaðið/Ernir
adam Scott hefur
um árabil verið
í hópi fremstu
kylfinga heims.
nordicpHotoS/
GEtty
Players-meistaramót PGA-móta-
raðarinnar fer fram ár hvert.
„Við förum á hverju ári. Við erum
reyndar tvo og hálfan tíma að keyra
þangað en látum okkur hafa það.
Við spilum líka aðra velli en þetta
er auðvitað mikil upplifun – sér-
staklega að koma inn á sextándu og
sautjándu braut. Þetta er eitthvað
sem maður er vanur að sjá í sjón-
varpinu.“
Viljum verja heimavígið
Talið berst þó aftur að Króatíuleikn-
um. Gylfi fagnar því að endurheimta
Alfreð Finnbogason úr meiðslum
en það hefur gengið á ýmsu í fram-
herjasveit íslenska liðsins og enn
óvíst hvenær og hvort Kolbeinn
Sigþórsson geti spilað á nýjan leik.
Hann hefur ekkert spilað síðan á EM
í Frakklandi síðasta sumar.
„Það er mjög gott að Alfreð sé heill
á ný. Hann er með markanef og skor-
ar mikið, sérstaklega inni í boxinu.
Hann virðist alltaf vera réttur maður
á réttum stað. Ef við náum að koma
okkur í færi er líklegt að hann verði
á réttum stað,“ segir Gylfi.
Ísland hefur ekki tapað leik á
Laugardalsvelli síðan 2013, er liðið
mætti Slóveníu. Síðan þá hefur
Ísland spilað alls þrettán leiki –
unnið tíu þeirra og gert þrjú jafn-
tefli. Gylfi segir að enginn í lands-
liðinu vilji eyðileggja þann góða
árangur.
„Hugarfarið er í góðu lagi hjá
leikmönnum, sérstaklega þar sem
við eigum þennan sterka heimavöll
þar sem okkur hefur gengið mjög
vel. Þess utan getum við með sigri
komið okkur í afar sterka stöðu í
riðlinum og það er meira í húfi en
bara þrjú stig. Það er því algert lyk-
ilatriði að verja okkar heimavígi.“
Sjálfur segist Gylfi hundrað pró-
sent klár í slaginn og að langt tíma-
bil á Englandi sé ekki að há honum
nú. „Ég var örlítið stífur á fyrstu
æfingunni eftir fríið en þetta var svo
fljótt að koma hjá mér. Ég er í topp-
standi.“ eirikur@frettabladid.is
Gylfi Þór Sigurðsson
kemur endurnærður inn
í landsleik Íslands og
Króatíu eftir verðskuld-
að frí að loknu strembnu
tímabili í ensku úrvals-
deildinni. Hann notar
golf til að kúpla sig út úr
fótboltanum.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@365.is
Var á
golfvellinum
tólf tíma á dag
Við vorum í botn-
baráttu allt tíma-
bilið og ég viðurkenni að
þetta tók á. Það var mikill
léttir þegar við vorum
loksins öruggir.
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R26 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-5
C
3
0
1
D
0
D
-5
A
F
4
1
D
0
D
-5
9
B
8
1
D
0
D
-5
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K