Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 48
Það má segja að Gaggenau framleiði draumalínu ástríðukokksins,“ segir
Ævar Gunnarsson, aðstoðarversl-
unarstjóri Smith & Norland. „Saga
Gaggenau er um margt merkileg en
fyrirtækið byggir á mörg hundruð
ára reynslu. Gaggenau var stofnað
í Þýskalandi árið 1683 og fyrsta
framleiðsluvara fyrirtækisins var
naglar. Við bjóðum upp á tvær
heimilislínur frá þeim, 400-línuna
annars vegar og 200-línuna hins
vegar. Hönnuðir tækjanna fara
ótroðnar slóðir og er virkni og
útlit tækjanna unnin í samráði við
atvinnumenn í matreiðslu.“
Ævar segir alla geta eldað með
Gaggenau en þó sé ekki að finna
staðlaðar stillingar á ofnum fyrir
til dæmis lambasteik. Velja megi
mjög nákvæman hita auk annarra
stillingarmöguleika eftir því sem
við á hverju sinni.
„Eitt af því sem heillar marga er
til dæmis það að tengja má hitald
(element) í botninn á bakstursofn-
inum og setja þar yfir leirplötu eða
bökunarstein til að baka dýrindis
brauð og pitsur,“ segir Ævar.
Einfaldleiki og gæði
„Einfaldleikinn er ráðandi í vörum
Gaggenau og þægindi í notkun.
Allt efnisval byggir á miklum
gæðum. Ég fór í heimsókn í verk-
smiðjurnar í Þýskalandi og fannst
merkilegt að sjá hversu mörg
handtök liggja í einu helluborði og
hversu massíf efni eru notuð.
Öll tækin eru í fjölbreyttum
útgáfum; sami ofninn fæst til að
mynda í fimm mismunandi litum,
með hægri eða vinstri opnun og
ýmist með stjórnborðið uppi eða
niðri, allt eftir því hvernig ofn-
inum er komið fyrir í eldhúsinu.
Tækjunum má raða saman á marga
vegu ef rýmið er nægjanlegt. Til
dæmis má raða saman gashellu-
borði, spanhellum, grilli og jafnvel
djúpsteikingarpotti, innbyggðri
kaffivél, ofni og svo framvegis.
Kaffivélin beintengd við vatn
„Gaggenau hefur framleitt inn-
byggðar espressókaffivélar um
árabil. Nýjustu vélarnar eru
tengdar beint í vatn og frárennsli
svo að segja má að fólk sé því með
eigin kaffibar heima hjá sér,“ segir
Ævar. „Þá er baunahólfið einnig
losanlegt og hægt að eiga fleiri en
eitt box fyrir ólíkar tegundir bauna
og skipta um eftir því hvernig kaffi
menn vilja fá sér. Þegar nýtt hólf er
sett í spyr vélin hvort þetta sé sama
kaffitegundin og síðast var notuð
eða ný tegund. Ef svarið er ný
tegund hreinsar vélin út það sem
fyrir er svo að næsta uppáhelling
með nýju baunum verður eins og
best verður á kosið.
Hellur og háfur í einni
einingu
„Viftur, sem draga má niður í
borðplötuna, hafa lengi fengist hjá
Gaggenau. Nú hefur fyrirtækið
kynnt til sögunnar helluborð með
innbyggðri viftu. Fjórar hellur eru
í borðinu og tveir stútar á milli
þeirra sem soga til sín allt að 89%
af matarlyktinni og sía út olíu og
gufu,“ útskýrir Ævar.
Sérpantanir
„Allar vörur Gaggenau þarf að
sérpanta. Fólk sest einfaldlega
niður með okkur og við förum
yfir möguleikana. Við erum með
tæki í sýningarsal okkar og einn-
ig ítarlega bæklinga með öllum
tækniupplýsingum og teikningum.
Möguleikarnir eru margir og þeim
má raða saman eftir óskum og
þörfum fólks. Oft kemur það til
okkar strax í byggingarferli hússins
með fastmótaðar hugmyndir eða
vill sjá hvaða möguleikar eru í
boði. Við finnum lausnir á öllum
málum.“
Helluborð með innbyggðri viftu er nýjung.
Einfaldleiki ein-
kennir hönnun
heimilistækja
Gaggenau.
Gaggenau framleiðir draumalínu ástríðukokksins, að sögn Ævars Gunnarssonar aðstoðarverslunarstjóra.
Innbyggðu kaffivélarnar eru nú beintengdar við vatn og frárennsli.
Einingum og tækjum má raða upp eftir óskum.
Hönnuðir
tækjanna fara
ótroðnar slóðir
og er virkni og
útlit tækjanna
unnin í samráði
við atvinnu-
menn í mat-
reiðslu.
Einfaldleikinn er
ráðandi í vörum
Gaggenau og þægindi í
notkun. Allt efnisval
byggir á miklum gæðum.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-7
9
D
0
1
D
0
D
-7
8
9
4
1
D
0
D
-7
7
5
8
1
D
0
D
-7
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K