Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 52

Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 52
Helga starfar við ráðgjöf og fræðslu um andlega heilsu og leiðir til að hlúa að henni. Hún lauk grunnnámi í sálfræði frá Háskóla Íslands og að námi loknu réð hún sig til starfa á Kleppi þar sem hún vann í sex ár. „Frá því ég var lítil langaði mig að verða sálfræðingur og hjálpa fólki að líða vel. Í gegnum grunnnámið og starfið á Kleppi fannst mér sérstakt að læra ekki um vellíðan heldur aðallega um vanlíðan. Ég lærði heilmikið um kvíða, þung- lyndi og aðra andlega sjúkdóma og hvernig hægt er að draga úr einkennum þeirra. Hins vegar langaði mig meira til að beina athyglinni að andlegri heilsu og vellíðan, hvað stuðlar að henni og hvaða þættir hafa áhrif þar á. Þessar pælingar leiddu til þess að ég ákvað að fara ekki í klíníska sálfræði heldur tók masterspróf í félags- og heilsusálfræði,“ útskýrir Helga sem hélt síðan áfram námi og lauk diplómaprófi í jákvæðri sálfræði. Þakklætistilfinning mikil- væg Helga segir margt hafa áhrif á andlega heilsu. „Góð, félagsleg tengsl hafa jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan. Regluleg hreyfing sömuleiðis. Þetta er eitthvað sem flestir þekkja og vita en það er gott að kortleggja þetta og rækta markvisst. Það er líka gott að finna fyrir þakklæti og leiða hugann reglulega að því vegna þess að þá líður manni eins og maður sé heppinn og ríkur og lán- samur og að lífið sé betra. Ég mæli með að halda þakklætisdagbók annaðhvort daglega eða viku- lega en í henni felst að staldra við og skrifa niður það sem maður er þakklátur fyrir. Það er ágætt að nota sérstaka bók fyrir þetta. Mikilvægt er að finna fyrir þakk- lætistilfinningunni en ekki bara skrifa niður eitthvað jákvætt og loka svo bókinni. Með því að leiða hugann aftur og aftur að því góða í lífinu og kalla endurtekið fram þakklætistilfinningu verðum við næmari fyrir því að taka eftir því góða í kringum okkur og byggjum upp aukna vellíðan og sátt við lífið. Gott er að gera þessa æfingu í nokkrar vikur og athuga hvort hún hafi áhrif,“ segir Helga og bætir við að fólk sé misþakklátt að eðlisfari, sumir eigi auðvelt með að finna fyrir þakklæti en aðrir ekki. „Góðu fréttirnar eru að allir geta ræktað með sér aukið þakklæti,“ segir hún. Núvitundaræfingar auka vellíðan Reglulegar núvitundaræfingar geta líka aukið andlega vellíðan en rannsóknir hafa sýnt fram á að iðkun núvitundar hafi reynst vel við heilsufarsvandamálum eins og þunglyndi, kvíða og stressi. Algengustu núvitund- aræfingarnar felast í hugleiðslu, að sögn Helgu. „Þá sest maður niður, lokar augunum og fylgist með eigin andardrætti í um tíu mínútur á hverjum degi og gefur huganum frí á meðan. Þannig er andardrátturinn notaður sem leið til að tengja sig við núið. Þetta snýst í raun um að þjálfa hugann þannig að maður hafi stjórn á því hvert athyglin fer því það sem maður beinir athyglinni að vex og dafnar. Fólk getur fest sig í óþægi- legum og erfiðum hugsunum og nær ekki að kúpla sig frá þeim. Þessar æfingar geta meðal annars þjálfað upp færni í að velja hvert við beinum athygli okkar. Núvit- und snýst um að upplifa hlutina á hlutlausan hátt en ekki endi- lega einbeita sér að því jákvæða,“ upplýsir Helga sem sjálf hefur persónulega reynslu af kvíða. „Kvíði var lengi áskorun fyrir mig en núvitund hefur hjálpað mér að takast á við hann.“ Meðvituð augnablik Margir telja sig ekki hafa tíma til að stunda hugleiðslu en Helga segir að svokölluð meðvituð augnablik geri líka sitt gagn. „Þá tengir maður sig við núið í smástund í einu. Þeir sem vilja prófa þessa nálgun geta látið Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Helga hefur lengi haft áhuga á andlegri heilsu. MYND/ ERNIR Heldur dagbók um þakklæti Andleg heilsa er Helgu Arnardóttur hugleikin. Hún segir þakklætisdagbók og núvitundaræfingar góðar til að auka vellíðan. símann sinn pípa fimm sinnum yfir daginn til að minna sig á að staldra við og tengja sig við núið í stutta stund í einu. Það er hægt með því að fylgjast vel með andardrættinum í hálfa mínútu eða líta upp úr tölvunni og horfa út um gluggann og horfa á tré bærast með vindinum. Það má líka loka augunum og hlusta á umhverfishljóðin. Þetta snýst í raun bara um að tengja sig við núið í stutta stund í senn með því að færa athyglina frá huganum og yfir á eitthvað sem á sér stað á líðandi stundu. Allir ættu að hafa tíma fyrir þetta og flestir upplifa ákveðinn létti í leiðinni,“ segir hún að lokum. Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana MultiVit fjölvítamínið frá BetterYou inniheldur öll helstu vítamín og steinefni sem auka á heilbrigði okkar og efla ónæmiskerfið. Með munnúðanum fáum við 14 nauðsynleg næringarefni beint inní blóðrásina en upptaka gegnum slímhúð í munni tryggir hámarksupptöku. DLUX Pregnancy er blanda af vítamínum sem henta ófrískum konum sérstaklega vel. Það inniheldur D-vítamín, Fólínsýru, B- og K-vítamín. Upptaka gegnum slímhúð í munni tryggir að efnin skila sér út í blóðrásina og því er þetta sérlega góð lausn fyrir konur sem þjást af morgunógleði og uppköstum. Dagsskammtur er fjórir úðar og innihalda þeir samtals: B12 6 mcg • D3 400 AE • Fólínsýra 400 mcg • Selen 75 mcg B1 1,1 mg • B2 1,4 mg • K1 75 mcg • Biotin (B7) 50 mcg Joð 150 mcg • B5 (Pantothenic acid) 6 mg • B6 1,2 mg A 600 AE • B3 (Niacin) 8 mg • C 20 mg Dagsskammtur er fimm úðar og innihalda þeir samtals: D-vítamín 1000 AE • Fólínsýru 400 mcg • B12 6 mcg 100% af ráðlögðum dagsskammti af K, B1 og B6. MEÐ GRAPEBRAGÐI!MEÐ FERSKJU- OG MANGÓBRAGÐI! NÝTTNÝTT 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 D -9 C 6 0 1 D 0 D -9 B 2 4 1 D 0 D -9 9 E 8 1 D 0 D -9 8 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.