Fréttablaðið - 10.06.2017, Qupperneq 69
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Forstöðumaður vettvangs- og ráðgjafarteymis, neyðarskýlis og
húsnæðisúrræða fyrir utangarðsfólk
Velferðarsvið
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða auglýsir til umsóknar stöðu forstöðumanns Vettvangs- og
ráðgjafa teymis, neyðarskýlis og húsnæðisúrræða fyrir utangarðsfólks.
Markmið með þjónustu er að veita ráðgjöf og stuðning þeim sem eru og hafa verið í langtíma húsnæðisleysi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stjórnun og fagleg ábyrgð á þjónustu vettvangs- og
ráðgjafateymis, neyðarskýlis og búsetuúrræðum fyrir
heimilislausa
• Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri úrræðanna
• Yfirumsjón með daglegri þjónustu
• Ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og
framkvæmd þeirra
• Stjórnun starfsmannamála og ábyrgð á framkvæmd
starfsmannastefnu
• Samstarf við samstarfsaðila
• Þátttaka í þverfaglegum teymum á þjónustumiðstöðinni
• Þátttaka í mótun og uppbyggingu á skipulagi þjónustunnar
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta-
eða félagsvísinda
• Reynsla af störfum með vímuefnasjúkum
• Reynsla af störfum með utangarðsfólki æskileg
• Reynsla af stjórnun
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvætt viðmót og samstarfshæfni
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Áhugi og metnaður í starfi
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og
reglur Reykjavíkurborgar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sigþrúður Erla Arnardóttir í síma 411-1600 eða með því að senda fyrirspurnir á sigthrudur.erla.arnardottir@reykjavik.is
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Umsóknarfrestur er til 19. júní nk.
Embætti forstjóra þjónustu- og
þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda,
sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti
forstjóra stofnunar sem heyrir undir félags- og jafnrét-
tismálaráðherra skv. 2. gr. laga um þjónustu- og þekking-
armiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með
samþætta sjón- og heyrnarskerðingu nr. 160/2008. Forstjórinn
starfar samkvæmt fyrirmælum laga, reglugerða og erindis-
bréfs sem ráðherra setur honum. Ráðherra skipar stofnuninni
forstjóra til fimm ára í senn og stefnt er að því að umsækjandi
geti hafið störf hinn 1. september 2017. Forstjóri skal hafa
menntun, þekkingu og reynslu sem nýtist á starfssviði stofnun-
arinnar og við stjórnun hennar og rekstur skv. sömu grein laga.
Markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda,
sjónskerta og daufblinda einstaklinga er að auka möguleika
þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða daufblindir til virkni og
þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með
áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra
tómstunda og atvinnuþátttöku.
Forstjóri ber ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og að starfsemi
hennar sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Yfirgripsmikil þekking og reynsla af stefnumótun,
stjórnun og rekstri sem nýtist á starfssviði
stofnunarinnar.
• Þekking og reynsla af þeim málaflokkum sem heyra
undir stofnunina.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Leiðtogahæfileikar.
• Metnaður og vilji til að ná árangri.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og
skipulagshæfni.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og
riti.
• Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta
hæfni umsækjenda og skila greinargerð til félags- og jafnrét-
tismálaráðherra. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um
ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við
Stjórnarráð Íslands. Um embættið gilda lög nr. 115/2011 um
Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur
ríkisstarfsmanna. Kjararáð ákvarðar laun forstjóra, sbr. lög nr.
47/2006.
Upplýsingar um starfið veitir Ellý Alda Þorsteinsdóttir,
skrifstofustjóri, í síma 545 8100. Ráðuneytið hvetur konur
jafnt sem karla til að sækja um embættið. Umsóknir ásamt
upplýsingum um starfsheiti, menntun og fyrri störf skulu
berast velferðarráðuneytinu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík,
eða í tölvupósti á póstfangið postur@vel.is eigi síðar en 3.
júlí 2017. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996,
um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í
embættið liggur fyrir.
Velferðarráðuneytinu, 10. júní 2017
Staða leikskólaráðgjafa á fagskrifstofu leikskólamála
á skóla- og frístundasviði
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið auglýsir eftir leikskólaráðgjafa til starfa á fagskrifstofu leikskólamála.
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar, starfsemi Námsflokka
Reykjavíkur og skólahljómsveita.
Fagskrifstofa leikskólamála leiðir nýbreytni og þróun leikskólastarfs í Reykjavíkurborg, annast eftirlit með starfsemi leikskóla og
dagforeldra og veitir þeim ráðgjöf og stuðning.
Hlutverk hennar er enn fremur að undirbúa og taka þátt í stefnumótun skóla- og frístundaráðs, yfirfara og meta inntak
skólanámskráa, starfsáætlana, framkvæmd innra mats og umbótaáætlana sem gerðar eru í kjölfar mats.
Starfsmenn fagskrifstofu veita ráðgjöf vegna samstarfs við foreldra, bera ábyrgð á og sitja í fjölmörgum starfshópum og þverfag-
legum teymum, auk þess að taka þátt í hönnun á húsnæði og útileiksvæðum leikskóla.
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur víðtæka þekkingu á leikskólastarfi og áhuga á þróun og nýsköpun á
þeim vettvangi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og rökstuðningur fyrir hæfni
í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2017.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar, í síma 411-1111 eða netfang ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Helstu verkefni
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk leikskóla
• Frumkvæði að þróun og nýbreytni í leikskólastarfi
• Innleiðing nýjunga í leikskólastarfi
• Þátttaka í mati á leikskólastarfi
• Ráðgjöf og eftirlit með starfsáætlunum leikskóla
• Ráðgjöf og eftirlit með umbótaáætlunum leikskóla byggðum á ytra mati
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Þekking og reynsla af leikskólastarfi
• Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna í hópi
• Skipulagshæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
• Gott vald á ensku er kostur
www.talentradning.is
Ertu að leita
að talent?
Við finnum starfsmanninn fyrir þig
Umsækjendur, skráið ykkur á
talent@talentradning.is
bryndis@talentradning.is
Sími: 552-1600
ATVINNUAUGLÝSINGAR 17 L AU G A R DAG U R 1 0 . j ú n í 2 0 1 7
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-A
B
3
0
1
D
0
D
-A
9
F
4
1
D
0
D
-A
8
B
8
1
D
0
D
-A
7
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K