Fréttablaðið - 10.06.2017, Síða 83
Angkor Wat er eitt af undrum veraldar.
Margir telja Angkor Wat hofið í Kambódíu eitt af undrum veraldar sem
jafnist á við sjálfa píramídana í
Egyptalandi. Það er þekktasta
hofið í Angkor fornminjagarð-
inum en þar má finna stórfeng-
legar leifar af höfuðborgum frá 8.
til 14. aldar þegar Khmer heims-
veldið stóð sem hæst. Angkor
Wat er stærsti trúarlegi minnis-
varði heims en hofið er gríðar-
lega stórt og tignarlegt, fagurlega
skreytt myndum og styttum.
Hofið er steinsnar frá borginni
Siem Riep en þar er hægt að
gista og keyra síðan til Angkor
Wat. Á svæðinu er fjöldi hofa frá
mismunandi tímabilum og hvert
þeirra hefur sinn sjarma. Eitt
þeirra var notað sem tökustaður
í kvikmyndinni Tomb Rider með
Angelinu Jolie og er vel þess virði
að skoða það. Unnið er að því að
varðveita Angkor Wat í samstarfi
við UNESCO en á þessu svæði
er enn verið að finna hof falin í
frumskóginum.
Stórkostleg hof í Kambódíu
Gistiheimili hefur verið opnað í
Tsjernóbíl í Úkraínu en svæðið er
eitt það geislavirkasta á jörðinni.
Úkraínska stjórnin er eigandi gisti-
hússins sem er í sovéskum svefn-
skála aðeins 14,5 km frá þeim stað
sem kjarnorkuslysið varð árið 1986.
Fimmtíu rúm eru á gistiheimilinu
en til stendur að stækka það enn
frekar til að geta tekið á móti 102
gestum.
Fyrstu gestirnir sem mættu á
svæðið í vikunni voru meðal annars
ferðamenn frá Bandaríkjunum,
Nýja-Sjálandi og Danmörku.
Gestum hefur um nokkurt skeið
verið hleypt inn á lokað svæði í
kringum kjarnorkuverið gamla en
það nær yfir 2.600 ferkílómetra.
Ferðamenn mega þó aðeins dvelja
þar stuttan tíma í einu og þurfa
að fylgja ströngum reglum um að
setjast hvergi og snerta ekkert.
Svæðið er enn talið mjög geisla-
virkt en er þó mjög vinsælt meðal
ferðamanna sem helst skoða borg-
ina Pripyat. Gestum þykir heillandi
að sjá hvernig tíminn hefur staðið
í stað enda er allt enn þá eins og
það var skilið eftir af íbúunum árið
1986.
Opna
gistiheimili
í Tsjernóbíl
Camden markaðurinn í Norður-
London er vinsæll viðkomustaður
ferðamanna, ekki síst vegna þeirra
fjölda matarvagna og matarbása
sem þar eru staðsettir. Um 35 staðir
selja þar fjölbreyttan mat við allra
hæfi og eru gæðin oft á tíðum á við
betri veitingastaði borgarinnar,
bara á miklu lægra verði. Meðal
rétta má nefna hamborgara,
burritos, djúpsteiktan smokkfisk og
kjúkling, risastórar pylsur og osta af
öllum gerðum.
Meðal vinsælli bása má nefna The
Cheese Wheel sem selur heimatil-
búið tagliatelle pasta sem er drekkt
í parmesanosti ásamt pastasósu að
eigin vali. Oli Baba’s selur guðdóm-
legan djúpsteiktan halloumiost,
borinn fram með za’atar jógúrti,
grantíepli, myntu og sumac.
Baba G’s blandar saman karrí
og lamba-, fiski- og kjúklingaborg-
urum. Indverskir eigendur hafa
starfrækt staðinn í áratug við miklar
vinsældir. Sonita’s heldur sig líka á
indverskum slóðum og býður upp á
fjölbreytta rétti ættaða frá Norður-
Indlandi. Mikil áhersla er lögð á ljúf-
fenga vegan rétti sem njóta mikilla
vinsælda meðal gesta markaðarins.
Hefðbundinn matur er líka á boð-
stólum og þannig bjóða básarnir
upp á sínar útgáfur af hamborg-
urum, pitsum og ýmsa kjöt- og
fiskrétti.
Skoða má úrvalið á camden-
market.com.
Veisla í London
Frábær matur er í boði á Camden
markaðinum í London.
AF ÖLLUM FERÐAVÖRUM
1.–12. júní
FYRIR MEÐLIMI Í A4 KLÚBBNUM
A
FS
LÁ
TT
U
R
A4 Kringlunni / A4 Skeifunni / A4 Smáralind / A4 Hafnarfirði / A4 Akureyri / A4 Egilsstöðum / A4 Selfossi
www.a4.is / Þú getur einnig fylgt okkur á Facebook pinterest.com/a4fondur og instagram.com/a4verslanir
Þú skráir þig í A4 klúbbinn á www.a4.is eða í næstu A4 verslun.
Athugið að vöruúrval er mismunandi á milli verslana. Afsláttur gildir ekki með öðrum tilboðum.
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 0 . j ú n í 2 0 1 7
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-8
D
9
0
1
D
0
D
-8
C
5
4
1
D
0
D
-8
B
1
8
1
D
0
D
-8
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K