Fréttablaðið - 10.06.2017, Síða 92
Kv i k m y n d i n u m Wonder Woman í leikstjórn Patty Jenk-ins fer sigurför um heiminn um þessar mundir og rakar inn
tekjum í miðasölu.
Valdamiklir menn í kvikmynda-
bransanum hafa haldið því fram að
til lítils sé að framleiða kvikmyndir
byggðar á teiknimyndasögum með
konum í aðalhlutverki. Þetta kom
rækilega fram í Sony-lekanum svo-
kallaða árið 2014 þegar birtir voru
tölvupóstar framkvæmdastjóra
Marvel, Isaac Ike Perlmutter, og
fleirum. Í einum tölvupóstanna sem
voru birtir telur framkvæmdastjór-
inn upp þær örfáu myndir sem hafa
verið framleiddar og notar lélegt
gengi þeirra sem rökstuðning fyrir
því að hafa ekki konu í aðalhlutverki.
Í þessum sama leka voru einn-
ig birt ummæli Aar-
ons Sorkin sem hélt
því fram að hlutverk
kvenna í kvikmyndum
væru ekki nærri því
jafnerfið og hlutverk karla. Leik-
konur væru ekki jafn verðugar og
karlleikarar.
Það er því ljóst að það þótti á
brattann að sækja fyrir Wonder
Woman og í kjölfar vinsældanna
bíða í skugganum fleiri kvenkyns
ofurhetjur eftir því að komast í
slaginn á skjánum.
Systkinin Úlfhildur og Hugleikur
Dagsbörn hafa bæði mikinn áhuga
á myndasögum þó að sá áhugi hafi
fundið sér ólíkan farveg hjá þeim.
Úlfhildur hefur skrifað bókina
Myndasagan, þar sem er að finna
greinargott yfirlit yfir sögu mynda-
sögunnar og úttekt á menningar-
legri stöðu hennar. Hugleikur er
landskunnur teiknimyndasögu-
höfundur og hefur haft djúpstæðan
áhuga á ofurhetjum síðan hann var
lítill.
Wonder Woman fjallar um
Díönnu Prince sem yfirgefur heim-
kynni sín og ferðast um Evrópu á
tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Tilurð ofurhetjunnar er afar áhuga-
verð.
„Ég hef helst lesið ofurhetju-
sögur í fræðiskyni og hef aðeins
„game changer“,“ segir Hugleikur og
fagnar velgengninni. „Þetta þýðir
væntanlega að núna vilja allir gera
stelpuofurhetjumyndir og það er
spennandi,“ segir hann og nefnir
nokkrar af þeim kvenkyns ofur-
hetjum sem honum finnast spenn-
andi um þessar mundir.
„Við munum bráðum sjá í sjón-
varpi seríu um Squirrel Girl, eða
Íkornastelpuna. Hún er með íkorna-
krafta og talar íkorna-
mál. Hennar sérstaða
felst í að hún er fyndin.
Mér finnst skrýtið að
það er ekki enn komin
mynd um Black Widow, eða Svörtu
ekkjuna. Það gæti orðið fyrirtaks
njósnamynd. Ég held að Wonder
Woman opni margar dyr, það bíða
margar spennandi kvenhetjur þess
að fá meira rými. Mér þætti rosalega
gaman að sjá mynd um Ms. Marvel
eða sjónvarpsseríu. Netflix ætti að
ríða á vaðið. Ms. Marvel er spennandi
ofurhetja, múslimastelpa frá New Jer-
sey sem berst við vonda karla en þarf
líka á sama tíma að skila heimavinn-
unni sinni,“ segir Hugleikur.
„Það gæti líka verið gaman að sjá
mynd um Sex Criminals. Mynda-
sögu sem fjallar um par, þótt fókus-
inn sé á stelpunni. Þau hafa bæði þá
krafta að þegar þau fá fullnægingu
þá stöðvast tíminn. Þau nota kraft-
ana til að ræna banka og svoleiðis.
Þá gæti verið gaman að sjá mynd
um She Hulk. Þótt að sjálfsögðu
þá þyrfti hún nýtt nafn. Það dugar
ekki að skella bara forskeytinu She
fyrir framan. Hún er áhugaverður
karakter, lögfræðingur sem lemur
byggingar í millitíðinni. Ég held
það sé líka verið að skella í mynd
með nokkrum flottum hetjum, Cat
Woman, Harley Quinn og Poison
Ivey. Svo er Bat Girl alveg frábær. Ég
mæli með sögum um hana sem kall-
ast Batgirl of Burnside. Í þeim flytur
Batgirl í hipsteraúthverfi Gotham-
borgar og vondu karlarnir herja í
gegnum samfélagsmiðla.“
Í uppáhaldi hjá Hugleiki eru líka
sögurnar um Buffy the Vampire
Slayer. „Hún á tuttugu ára afmæli
og er helsta sjónvarpshetjan á eftir
Wonder Woman. Buffy er mögnuð
kvenhetja.“
Hugleikur segir eins og systir hans,
ofurhetjuna ódrepandi. „Hún deyr
ekki. Áhugi á lestrarefni og myndum
um ofurhetjur hefur ekkert dvínað.
Þær áhugaverðustu
eru breyskar, með
sterkan persónu-
leika. Það er alltaf
hægt að finna eitt-
hvað til að tengja
við. Fyrirbærið hetja er okkur stans-
laus innblástur og það er af því að það
er alltaf þörf á hetju.“
En hvað með þá gagnrýni sem
hefur komið fram á Wonder
Woman. Að hún sé ekki femínísk
hetja, heldur andstæðan?
„Mér finnst sú gagnrýni áhuga-
verð. Mér finnst öll umræða um
teiknimyndasögur spennandi og
eiga rétt á sér. Ég heyri líka sögur um
stelpur sem tárast yfir bardagaatrið-
unum í myndinni. Af því þær hafa
aldrei séð slík atriði áður. Það er
magnað.“
Ms. Marvel, múslimastelpa frá New
Jersey sem berst við vonda karla og
þarf líka að klára heimavinnuna.
Frjálslegt stuð í kringum Wonder Woman, segir Úlfhildur um BDSM undirtóna
í sögum um hana.
Allir þurfa
Vinsældir Wonder Woman gætu haft merkileg áhrif
í kvikmyndaiðnaði þar sem kvenkyns ofurhetjum
hefur verið haldið niðri um árabil. Systkinin Hug-
leikur og Úlfhildur Dagsbörn spá í spilin og ræða
um áhugaverðar kvenhetjur sem eiga skilið að kom-
ast á skjáinn, stórmerkilega sögu Wonder Woman
og þörf mannfólksins til að spegla sig í hetju.
Sérstaða Íkornastelpunn-
ar er að hún er fyndin.
Peningar ráða öllu, segir Hugleikur,
og segir velgengni Wonder Woman
öllu breyta. Nú vilji allir gera stelpu-
ofurhetjumyndir.
She Hulk
þarf nýtt
nafn að
mati Hug-
leiks. Hún
er lög-
fræðingur
sem lemur
byggingar
að utan af
kröftum.
sem eru femínistar yfir því að hún
læsi myndasögur. Af því þær væru
svo kvenfjandsamlegar. Hún ræðir
þessa reiði og hvernig hún
finnur í teiknimyndasögum
ákveðið frelsi. Í teiknimynda-
sögum er fólk í búningum, að
einhverju leyti í felum og á
jaðri samfélagsins. Hún ræðir
þessa tengingu sem hún finnur, sem
kona og samkynhneigð kona. Það
er nefnilega með þessar sögur og
margar aðrar að við leitum að hetju.
Það sem einum finnst ósiðsamlegt
finnst öðrum ekki, það sem einum
finnst andfemíniskt finnst öðrum
þvert á móti,“ segir Úlfhildur. „Það
verða alltaf til nýjar og nýjar hetjur
sem bjóða upp á nýjar tegundir af
samsömun. Hetjan deyr aldrei, segir
Úlfhildur og nefnir nýjustu ofur-
hetjuna sem dæmi. „Ms. Marvel,
þessi íslamska nýja ofurhetja er gott
dæmi um það hvernig ofurhetju-
ímyndin getur tekið breytingum.
Mér finnst alltaf mjög þreytandi
þegar ofurhetjuheimurinn er ein-
faldaður. Hann er þvert á móti
margslunginn,“ segir Úlfhildur.
„Peningar ráða öllu og gott gengi
Wonder Woman breytir öllu. Það er
Úlfhildur
Dagsdóttir
Hugleikur
Dagsson
litið í Wonder Woman bækurnar.
Það er skrautleg saga á bak við það
hvernig Wonder Woman varð til,“
segir Úlfhildur frá. „William Mar-
son vildi skapa kvenhetju sem væri
góð fyrirmynd fyrir stelpur. Honum
þótti stelpur vanta kvenfyrirmyndir
sem höfðu völd. Hann á sér sjálfur
áhugaverðan bakgrunn en hann
bjó með tveimur konum, þeim Oli-
viu Byrne og Elizabeth, sem voru
miklir femínistar. Þetta var á fjórða
áratugnum svo fyrir-
komulagið hefur
verið einstaklega
frjálslegt á þessum
tíma. Í sögum Won-
der Woman eru svo skemmtilegir
BDSM undirtónar. Hún er vopnuð
snörum sem hún notar ýmist sem
svipur eða til að snara. Þá eru miklar
bindingar. Ýmist er hún bundin eða
hún að binda. Það er frjálslegt stuð
í kringum Wonder Woman,“ segir
Úlfhildur og segir skemmtilegt að
sálfræðingur hafi álitið hana góða
fyrirmynd ungra kvenna. „Það
er engin spurning að svo frjáls-
legar fyrirmyndir voru þarfaþing á
þessum tíma. Almennt séð var fólk
á móti myndasögum á þessum tíma
en þær voru þó vinsælar. Mynda-
sögur fyrir konur, rómönsur og ást-
arævintýri nutu mikilla vinsælda.
Þessu var öllu saman mótmælt af
siðapostulum. Því þarna voru
konur að fara gegn ríkjandi
gildum. Konur á framabraut
sem hugsuðu um vinnuna og
ástarævintýri sín. Þetta frelsi
kvenna í sögum þótt ekki
heppilegt,“ segir Úlfhildur.
„Roz Kaveney skrifaði bráð-
skemmtilega bók um ofurhetju-
sögur. Í henni talar hún meðal
annars um reiði vinkvenna sinna
Ég heyri líka sögur um
stelpur sem tárast
yfir bardagaatrið-
unum í myndinni. af því
þær hafa aldrei sÉð
slík atriði áður. það
er magnað.
Hugleikur Dagsson
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R46 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
D
-A
1
5
0
1
D
0
D
-A
0
1
4
1
D
0
D
-9
E
D
8
1
D
0
D
-9
D
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K