Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 98

Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 98
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Benóný Benediktsson Borgarhrauni 7, Grindavík, lést þriðjudaginn 6. júní á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík. Útför auglýst síðar. Ása Lóa Einarsdóttir Ellen Björnsdóttir María Benónýsdóttir Hörður Guðbrandsson Edda Benónýsdóttir Jóhann Örn Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir og stjúpmóðir, Ásta Lilja Kristjánsdóttir frá Siglufirði, til heimilis að Vesturgötu 7, andaðist á lungnadeild Landspítalans 2. júní. Jarðarförin verður gerð frá Hallgrímskirkju mánudaginn 12. júní kl. 15. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu láti Samtökin ´78 njóta þess. Reikningsnr. 0513-26-78 Kennitala 450179-0439. Sigurður Jón Ólafsson Melkorka Sigurðardóttir Steinar Logi Sigurðsson Rósa Huld Sigurðardóttir Klara Dögg Sigurðardóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ragnar Hilmar Þorsteinsson múrarameistari, Jötunsölum 2, Kópavogi, lést á hjartadeild Landspítalans 7. júní. Kristín Hrefna Kristjánsdóttir Guðlaug Ragnarsdóttir Birgir Bjarnason Kristján Hjálmar Ragnarsson Kristjana Una Gunnarsd. Sigríður Ragnarsdóttir Trausti Gylfason barnabörn og barnabarnabörn. Hugheilar þakkir fyrir samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, Jóns Helga Hálfdanarsonar Heiðarbrún 16, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflæknisdeildar HSU Selfossi. Jóna Einarsdóttir Inga Jónsdóttir Þorgils Baldursson Hálfdan Jónsson Astrid Wormdal afa- og langafabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhannes Guðmundsson verkfræðingur, Dalbraut 14, Reykjavík, áður til heimilis að Laugalæk 48, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, fimmtudaginn 1. júní. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 13. júní kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Guðrún María Tómasdóttir Tómas Jóhannesson Pálína Héðinsdóttir Helgi Jóhannesson Gunnlaug H. Einarsdóttir Sigríður Jóhannesdóttir Skarphéðinn B. Steinarsson Guðmundur Þ. Jóhannesson Laufey Ása Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigríðar Sigurðardóttur Flögu II, Skaftártungu. Ásta Sigrún Gísladóttir Vigfús Gunnar Gíslason Lydía Pálmarsdóttir Sigurður Ómar Gíslason Þórgunnur María Guðgeirsdóttir Jóna Lísa Gísladóttir Örn Guðmundsson Sigurgeir Bjarni Gíslason Jóhanna Lind Elíasdóttir Sverrir Gíslason Fanney Ólöf Lárusdóttir ömmu- og langömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andát ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Guðmundar Bjarnasonar rafvirkjameistara Klapparstíg 5a. Brynhildur Bjarnarson Sturla R. Guðmundsson Eyrún Ísfold Gísladóttir Ingibjörg Guðmundsdóttir Bergþór Guðjónsson Elín Guðmundsdóttir Páll Þormar Hafsteinn Guðmundsson Soffía Káradóttir Jón Bjarni Guðmundsson Brynhildur Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Mér líður ágætlega en við vorum þreyttar þegar við komum til byggða og með eymsli á fót- unum eftir skóna, því flestar leigðum við skíði og skó hjá Evrest og því voru þeir okkur nýir.“ Þetta segir Svanhvít Helga Jóhannsdóttir nýkomin úr sex daga gönguferð langsum eftir Vatnajökli, ásamt sex öðrum konum. Allar eru þær jöklaleiðsögumenn hjá Íslenskum fjalla- leiðsögumönnum. Hún segir þær hafa verið heldur óheppnar með veður. „Við fengum dálítið mikla austanátt beint á móti okkur, skafrenning og lítið skyggni en einn daginn sáum við til Kverkfjalla og Skaftafellsfjalla.“  Svanhvít á heima í Svínafelli í Öræfum og var ekki þrekaðri en það eftir jökul- gönguna að hún dreif sig á dráttarvél í Ingólfshöfða með ferðamenn morgun- inn eftir. En nú er hún rukkuð um jökla- ferðasögu. „Við vorum keyrðar upp í Jökulheima 2. júní, lögðum á jökulinn upp úr hádegi og drógum farangurinn. Hæsti punktur ferðarinnar var Grímsfjall í um 1600 metrum en hækkunin er aflíðandi. Við vorum með GPS tæki og notuðum áttavitann vel. Í dimmviðri dettur maður næstum í kyrrstöðu því maður veit ekki hvað er himinn og hvað er jörð. Það er því bæði svolítið andlega erfitt og sein- legt að komast áfram en um leið og maður sér, þó ekki sé nema ský á himn- inum, er ekkert mál að rata beint. Þetta var því lærdómsríkt. Við stoppuðum í Grímsvötnum, skálinn var fullbókaður því Jöklarann- sóknarfélagið var þar í árlegri ferð en við fengum góðar viðtökur. Okkur var sagt að skella okkur í gufubað og opna pakka sem beið okkar og í voru bjórar. Við elduðum mat og skíðuðum svo í tvo tíma áður en við tjölduðum. Að kvöldi sjötta dags komum við niður Skálafells- jökul og þar biðu okkar bílar. Við vorum einum sólarhring lengur en áformað var, því við biðum af okkur vont veður. Alvarlegustu kvillarnir voru sólbruni, skorpið nef og nokkur sár og blöðrur á fótum. Við mökuðum á okkur sólarvörn en það er ótrúlegt hvað maður getur sólbrunnið í skafrenningi og þoku.“ gun@frettabladid.is Skorpin nef og nokkur sár Sjö konur fóru í skemmtiferð um endilangan Vatnajökul á skíðum og gekk vel þrátt fyrir mótvind og dimmviðri lengst af. Gufubað og bjór í Grímsvötnum bjargaði miklu. Afrekskonurnar komnar í Jöklasel á Skálafellsjökli. Tinna María Halldórsdóttir, Selma Benediktsdóttir, Elísabet Atladóttir, Elín Lóa Baldursdóttir, Októvía Edda Gunnarsdóttir, Íris Ragnarsdóttir Pedersen og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir skála í kampavíni.  Við mökuðum á okkur sólarvörn en það er ótrúlegt hvað maður getur sólbrunnið í skafrenningi og þoku. Merkisatburðir 1935 AA-samtökin eru stofnuð 1940 Noregur féll í hendur Þjóðverja í seinni heims- styrjöldinni. 1947 Saab framleiddi fyrsta bílinn sinn. 1975 Karl 16. Gústaf Svíakonungur kom í opinbera heim- sókn til Íslands. 1986 Fimm þúsund króna seðill var settur í umferð. 1993 Steinboginn yfir Ófærufoss í Eldgjá, var fallinn þegar komið var að honum. l tkærs 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R52 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 0 D -3 9 A 0 1 D 0 D -3 8 6 4 1 D 0 D -3 7 2 8 1 D 0 D -3 5 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.