Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 108

Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 108
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R62 m e n n i n G ∙ F R É T T A B L A ð i ð Afmælisárgangar MA draga fram dansskóna og mæta í Íþróttahöllina á dansleik aldarinnar ! Glæsilegur matseðill, skemmtiatriði og hin frábæra hljómsveit Í svörtum fötum heldur uppi fjöri fram á nótt. Hljómsveit Hermanns Arasonar leikur fyrir dansi í hliðarsal. Miðaverð á hátíðina er 12.900 kr. Miðar eru seldir og sóttir milli kl. 12 og 17 15. og 16. júní í Íþróttahöllinni. Skráning og miðapöntun stendur út 13. júní á bautinn.is/jubilantar. Júbílantahátíð MA 2017 í Íþróttahöllinni 16. júní www.velasalan.is S. 520 0000, Dugguvogi 4 104 Reykjavík Utanborðsmótorar Fyrirliggjandi á lager, skrúfur á flestar gerðir utanborðsmótora Verkstæði Vélasölunnar hefur á að skipa sérhæfum starfsmönnum til viðgerða og viðhalds á Mercruiser bátavélum og Mercury utanborðsmótorum. höfundar vilja fá að vera með,“ segir Sjón. „Ég efast ekki um að þessi bókmenntaskógur á eftir að vaxa og dafna. Verða eftirsóttur áfanga- staður höfunda á komandi árum. Tilfinningin sem það skilur eftir sig að þessi fallegi skógarstígur á eftir að vera genginn af hundrað höf- undum, öllum í sömu erindagjörð- um, er sterk. Þetta verður okkar pílagrímsganga á einhvern máta,“ segir Sjón en Katie bætir við að hún komist ekki frá hugmyndinni um að hann hafi látið bók vaxa innra með sér eins og tré vex úr jarðvegi. „Allt byrjaði þetta eins og lítill græð- lingur sem náði að festa rætur og svo vex það og dafnar, rætur þess flétt- ast við rætur hinna trjánna, rétt eins og höfundarnir tengjast allir á einn eða annan hátt, eru hluti af eina og sama bókmenntaskóginum.“ Sameiginlegur jarðvegur Sjón tekur undir þetta og segir að vissulega finni hann til sérstakra tengsla við þá höfunda sem tilheyri Framtíðarbókasafninu. „En það sér- staka við okkur þrjú sem njótum þess að vera fyrstu græðlingarnir í skóginum er að við höfum öll hist. Við Margaret Atwood unnum saman að viðburði í Louisiana- safninu í Danmörku og þar hittumst við Katie líka fyrst. Mánasteinn var nýkominn út í Danmörku og Marg- aret var þar að kynna síðasta hluta trílógíunnar sinnar. Við vorum sett saman upp á svið þar sem við áttum í fjörugum samræðum í ríf- lega klukkustund að tala um heims- væðingu og Sci-Fi kvikmyndir og bara allt mögulegt.“ „Og þið sunguð bæði,“ rifjar Katie upp með bros á vör. „Alveg rétt,“ svarar Sjón. „Hún píndi mig til þess að syngja, það er ekkert hægt að neita svona konu,“ segir Sjón og hlær. „En við David höfum líka hist og unnum aðeins saman á bók- menntahátíð fyrir ekki svo löngu og mér finnst það skemmtileg til- hugsun að við skulum tengjast með þessum hætti í þessum stóra heimi. Við erum öll afar ólíkir höfundar en það er engu að síður ákveðinn sam- eiginlegur jarðvegur sem við deilum og nú er hann ekki aðeins hugmynd heldur veruleiki.“ Sjón og Katie kynntust á áður- nefndri ráðstefnu í Louisiana-lista- safninu. „Ég sá þarna þessa ungu, skosku listakonu sem gekk á milli höfunda og rétti þeim lítið kort og svo kom hún til mín og sagði mér frá Framtíðarbókasafninu. Þegar ég kom heim þá fletti ég þessu upp og gerði mér strax grein fyrir því að ég þekkti fyrri verk hennar og var hrifinn af þeim. Ég skrifaði henni því strax og sagði henni að hafa mig endilega í huga. Tveimur eða þremur árum síðar fékk ég svo þennan dásam- lega tölvupóst sem létti af mér byrði afbrýðiseminnar út í aðra höfunda og núna líður mér miklu betur,“ segir Sjón léttur og hlær við tilhugsunina. Vann á Íslandi Katie segir að Sjón hafi snemma verið henni ofarlega í huga enda hafi hún sterk tengsl við Ísland og að sum verka hennar byggi á þeirri reynslu. „Eftir að ég lauk minni fyrstu prófgráðu í Edinborg var ég á höttunum eftir vinnu. Ég fór á vinnumiðlunina og var látin setjast fyrir framan tölvuskjá og byrja að leita en af einhverjum ástæðum leiddi það mig til Íslands. Ég hafði alltaf verið spennt fyrir því að ferðast til Íslands svo tveimur dögum seinna var ég á leiðinni til Íslands þar sem ég vann á Fosshót- eli á Norðausturlandi á pínulitlum stað þar sem var ekkert að finna annað en fiskeldisstöð, bensínstöð og hóp af listnemum sem bráðvant- aði vinnu. Það var bjart allan sólar- hringinn svo við skemmtum okkur ansi vel en í framhaldinu vann ég allmörg verk sem tengjast Íslandi og dvöl minni þar.“ Katie hefur á orði að það fylgi því sérstök tilfinning að horfa aftur til þessa tíma á Íslandi í ljósi þess að hún hafi verið að taka við verki frá íslenskum höfundi inn í Framtíðar- bókasafnið. Verkefni sem þegar hafi farið langt fram úr hennar björtustu vonum. „Væntingarnar voru reyndar afar litlar fyrir fimm árum þegar ég ætlaði að leggja þetta frá mér eða kannski í mesta lagi leyfa því að vera með í bók um hugmyndir sem ég er að vinna að. Þannig að þetta gleður mig óendanlega mikið. Verkið er hluti af alvöru skógi í alvöru borg sem hefur tekið verkinu fagnandi. Er í höndunum á fólki sem ég treysti til þess að klára verkefnið sem er auð- vitað lykilatriði. Það er ekkert sjálf- gefið. Málið er að ef ég hefði ekki trú á þessu þá gæti ég ekki hugsað mér að biðja höfunda um að taka þátt því það felur í sér svo mikla skuld- bindingu. Skuldbindingu fyrir höf- undana og fyrir borgina inn í fram- tíð sem við vitum ekkert um.“ Sjón tekur undir þetta og segir að það sé í raun magnað að það hafi tekist að finna þessu verki farveg. „Þetta verk fann Anne Beate og það er mikilvægt að það komi fram að hún er manneskja sem hefur djúpan skilning á listrænni hlið verksins og tekur það í fangið á sama tíma og hún býr yfir færni, þekkingu og drifkrafti til þess að láta þetta verða að veruleika. Hún hefur hæfileikann til þess að fá fólk í lið með sér og til að mynda það að í nýja bókasafninu sem er verið að byggja hérna í Ósló verði sérstakt herbergi tileinkað þessu verkefni felur í sér svo mikla framtíðarsýn. Það er hennar verk, þessi framtíðarsýn og óþrjótandi kraftur.“ Hefur dimma sýn Sjón bætir við að það sé líka mikil- vægt að höfundar finni hvaða merk- ingu verkið hefur fyrir þá persónu- lega og í þeirra samtíma. „Margaret Atwood hefur sagt að fyrir henni standi Framtíðarbókasafnið fyrir von. Ég ætla að segja að fyrir mér sé það frábær fyrirmynd að því hvað við getum gert þegar við vinnum saman og í þágu framtíðarinnar.“ Sjón bendir einnig á að fyrir okkar samtíma sé Framtíðarbóka- safnið auðvitað hápólitískt verk- efni. Katie tekur undir þetta og segir það vissulega rétt og að auki þá hafi verkefnið gjörbreytt hugmyndum hennar og væntingum til þess hvað er mögulegt og hvað ómögulegt. „Ég trúi ekki hversu vel þetta hefur gengið. Það er svo oft í þessum geira að það þarf að yfirstíga endalaust margar hindranir en þetta hefur í raun flogið áfram. Það verður líka að hrósa íbúum í Ósló í þessu samhengi,“ segir Sjón og minnir á að í Ósló er mikill skiln- ingur á umhverfismálum og mikill vilji fólks til þess að leggja sitt af mörkum. „Þetta hugarfar hentaði þessari hugmynd, þessu verki, og ég held að fáar þjóðir hefðu tekið þessu svo opnum örmum.“ Þetta jákvæða viðhorf sem Sjón hefur til Óslóarbúa endurspeglar kannski þá jákvæðu sýn sem hann setti fram varðandi framtíðina við afhendingu verksins. „Já, ætli það megi ekki segja það,“ svarar hann. „Almennt séð hef ég samt afar dimma sýn á mannkynið,“ bætir hann við og hlær. „Ég held að okkur sé ekki viðbjargandi að svo ótal mörgu leyti. En velgengni mann- kyns á þessari jörð ætti þó þrátt fyrir allt að veita okkur einhverja von. Svartsýni mun ekki fleyta okkur fram á við í þeirri stöðu sem við erum í varðandi umhverfið. Þann- ig að þó að ég sé níhílisti þá held ég að með því að varpa svona litlum, klikkuðum hugmyndum á borð við Framtíðarbókasafnið út í heiminn þá getum við gert hann betri. Þetta ætti að gefa okkur von þrátt fyrir vonleysi mannkyns.“ Marion Herrera hörpuleikari lék undir söng Ásgerðar Júníusdóttur við afhendingu verksins við mikla hrifningu. Það var létt yfir skáldinu í skóginum við afhendingu verksins. ↣ tveimur eða þremur árum síðar fékk ég svo þennan dásamlega tölvupóst sem létti af mér byrði afbrýðiseminnar út í aðra höfunda og núna líður mér miklu betur. Sjón 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 0 D -5 C 3 0 1 D 0 D -5 A F 4 1 D 0 D -5 9 B 8 1 D 0 D -5 8 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.