Fréttablaðið - 24.06.2017, Síða 32
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Það er hægt að nýta hamborgara-
brauð undir fleira en hefðbundinn
hamborgara. Mjög gott er að setja
vel kryddaðan svínahnakka í
brauðið ásamt grænmeti. Upp-
skriftin miðast við fjóra og hún
hefur yfir sér asískan blæ.
800 g svínahnakki
4 hamborgarabrauð
Salatblöð
Marinering
1 ½ msk. chili-duft
2 msk. sojasósa
2 msk. púðursykur
2 msk. sesamolía
2 msk. fínt skorinn hvítlaukur
4 msk. hrísgrjónaedik
2 msk. olía til steikingar
Dressing
1 ½ dl hoisinsósa
2 msk. sojasósa
Safi úr einni límónu
2 msk. smátt skorið ferskt
kóríander
1 rauður chili, fræhreinsaður og
skorinn smátt
2 tsk. rifinn ferskur engifer
Skerið kjötið niður í þunnar sneiðar.
Leggið kjötið í plastpoka. Blandið
saman efninu í marineringuna
og setjið í pokann. Látið kjötið
marinerast í 30 mínútur. Hrærið
öllu saman sem á að fara í dress-
inguna og látið standa í klukku-
stund. Grillið kjötið í 2-3 mínútur
á hvorri hlið á útigrilli. Má steikja á
pönnu ef ekkert grill er á staðnum.
Hitið hamborgarabrauðin. Setjið
salatblað á hamborgarabrauð, svína-
kjöt og gjarnan grillað grænmeti
ofan á. Dressingin fer þar yfir. Stráið
kóríander yfir.
Asískur hamborgari
Hamborgara er hægt að gera á margvíslegan hátt.
Rafpopp-þríeykið aYia er einn fulltrúi Íslendinga á Hróars-kelduhátíðinni sem hefst í
næstu viku í Danmörku og er jafnan
vel sótt af Íslendingum.
Meðlimir aYia hafa starfað við
tónlist lengi með ólíkum hljóm-
sveitum. Saman hafa þau unnið
að eigin tónlist undir merki aYia
í rúmlega tvö ár. „Núverandi
birtingarmynd aYia er eins konar
samkunda hljóða sem áhorfendur
greina í formi tónlistar. Annars má
segja að aYia líkist meira óskil-
greindu afli sem dregur fólk að til
þess að tilbiðja tómið. Áhöfn þessa
afls kemur úr þremur mismunandi
áttum. Röddin kemur úr augunum,
sá sem límir var alltaf þarna og
skærin koma úr vatninu,“ segir
einn meðlima sveitarinnar sem eru
lítið fyrir að flagga réttum nöfnum
sínum.
Tónlist sveitarinnar hefur verið
lýst sem dökku trip-hopi en hvaðan
koma hljóðin? „Þau koma úr keri
sem geymir hulduefni. Skærin
klippa þau í milljón og límið límir
þau saman. Síðan borða augun þau
ofan í rödd sem er brú úr undir-
vatninu yfir í heim meðvitundar,“
bæta þau við.
Aðspurð hvernig það hafi komið
til að þeim bauðst að koma fram á
Hróarskeldu segjast þau hafa verið
á sveimi um bæinn í skammdeginu
og fengið skeyti frá aðkomumanni.
„Hann sagðist hafa njósnað um
okkur í náttmyrkrinu. Hann sagðist
hafa heyrt hljóð og séð dansa sem
minna á glerkúlu á þilfari á skipi
á rúmsjó og vildi bjóða okkur yfir
hafið.“
Rannsaka svæðið
Nú þegar hafa tvö lög litið dagsins
ljós, Vatnsplanta (waterplant) og
Rústir (ruins). Ef marka má orð
þeirra er meira efni væntanlegt í
nánustu framtíð. „Kannski munum
við næst sýna höf í lófum. Það er alls
konar í aðsigi. Við erum að einbeita
okkur að því að gera lögin sýnileg,
setja kannski saman hreyfingu
lita og forma í tímalínu fyrir glæra
glugga í svörtum kössum. Fólk áttar
sig kannski ekki alltaf á því að það
er með tómið í höndunum hálfan
daginn. Pínulítil tæki sem þjappa
saman sálinni. Það er mjög áhuga-
vert að vinna eitthvað með það.“
Sveitin hefur nær einungis komið
fram á tónlistarhátíðum og „show-
case“ tónleikum en hélt þó sína
fyrstu tónleika á Húrra í Reykja-
vík í upphafi mánaðarins. „Við
höfum meðal annars komið fram á
Airwaves, Lunga, Sónar Reykjavík,
The Great Escape Festival í Brigh-
ton og á JaJaJa kvöldum í Berlín
og London. Einnig spiluðum við á
tónleikum í íshelli Langjökuls um
síðustu helgi en þeir voru liður í
hliðardagskrá Secret Solstice tón-
listarhátíðarinnar.“
aYia kemur fram á Gloria sviðinu
næsta fimmtudag kl. 20. Þau ætla
að nota tækifærið og skoða aðra
listamenn á hátíðinni. „Við ætlum
að skipta liði og rannsaka svæðið.
Það er stormur í loftinu, það er
eins og að Evrópa sé á iði, orkan
er eins og hljóðlátur en nálægur
titringur, lágar bylgjur sem safnast
saman og mynda þungt suð undir
okkur öllum. Tónlistin er svona
eins og tré sem vex upp úr þessu
suði og maður finnur að það er
allt á hreyfingu núna. Þetta verður
spennandi að sjá.“
Nánari fréttir, fróðleik og tón-
dæmi má finna á Facebook síðu
aYia og á Spotify.
Það er stormur í loftinu
Tónlist þríeykisins aYia hefur verið lýst sem dökku trip-hopi. Sveitin kemur fram á Hróarskeldu
tónlistarhátíðinni í Danmörku í næstu viku en meðlimir hennar hafa lengi starfað við tónlist.
aYia kemur fram
á Hróarskeldu
tónlistarhá-
tíðinni í Dan-
mörku í næstu
viku. MYND/JULIE
ROWLAND
STÆRÐIR 14-28
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
NÝ SENDING MEÐ JÓLAKJÓLUM
Mikið úrval í stærðum14-28 eða 42-56
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ OG PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS
OPIÐ FRÁ KL. 11-18 ALLA VIRKA DAGA OG FRÁ KL. 11-16 Á LAUGARDÖGUM
ALLT FYRIR SUMARIÐ!
Verslunin Curvy býður uppá flottan
fatnað í stærðum 14-28 eða 42-56
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
C
-6
E
8
0
1
D
2
C
-6
D
4
4
1
D
2
C
-6
C
0
8
1
D
2
C
-6
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K