Fréttablaðið - 24.06.2017, Page 47
15 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 4 . j ú n í 2 0 1 7 LAUGARDAGUR
Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti
framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Embættið heyrir undir
félags- og jafnréttismálaráðherra og starfar á grundvelli 4. gr.
laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008.
Framkvæmdastjórinn starfar samkvæmt fyrirmælum laga,
reglugerða og erindisbréfi sem ráðherra setur honum. Ráð-
herra skipar stofnuninni framkvæmdastjóra til fimm ára í senn
og stefnt er að því að umsækjandi geti hafið störf í september
2017. Framkvæmdastjóri skal hafa menntun, þekkingu og reynslu
sem nýtist á starfssviði stofnunarinnar og við stjórnun hennar
og rekstur skv. sömu grein laga. Jafnréttisstofa er staðsett í
Rannsóknar- og nýsköpunarhúsi Háskólans á Akureyri.
Jafnréttisstofa annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála og
stuðlar að jafnri stöðu og jöfnum rétti kvenna og karla, m.a.
með fræðslu, upplýsingagjöf og ráðgjöf, auk eftirlits með
framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla,
þ.m.t. innköllun jafnréttisáætlana og framkvæmd jafnlauna-
vottunar. Meðal verkefna er að koma á framfæri ábendingum
og tillögum til að ná fram auknu jafnrétti, fylgjast með þróun
jafnréttismála í þjóðfélaginu og á alþjóðavettvangi, m.a. með
upplýsingaöflun og rannsóknum. Einnig að vinna að forvörnum
gegn kynbundnu ofbeldi í samvinnu við hlutaðeigandi stjórn-
völd og samtök.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli.
• Leiðtogahæfileikar.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Þekking og reynsla á jafnréttismálum.
• Framsýni, metnaður og vilji til að ná árangri.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
• Þekking og reynsla af stefnumótun, stjórnun og rekstri sem nýtist á starfsviði stofnunarinnar.
Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun
meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til félags- og
jafnréttismálaráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum nr.
393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda
um embætti við Stjórnarráð Íslands. Um embættið gilda lög nr.
115/2011 um Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi
og skyldur ríkisstarfsmanna. Kjararáð ákvarðar laun fram-
kvæmdastjóra, sbr. lög nr. 47/2006 um kjararáð.
Upplýsingar um starfið veitir Ellý Alda Þorsteinsdóttir,
skrifstofustjóri, í síma 545 8100. Ráðuneytið hvetur konur
jafnt sem karla til að sækja um embættið. Umsóknir ásamt
kynningarbréfi, ferilskrá og upplýsingum um starfsheiti skulu
berast velferðarráðuneytinu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík,
eða í tölvupósti á póstfangið postur@vel.is eigi síðar en 17.
júlí 2017. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996,
um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í
embættið liggur fyrir.
Velferðarráðuneytinu, 24. júní 2017
Starfatorg.is
Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna
Starf Stofnun Staður Nr. á vef
Sjúkraliðar Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Reykjanesbær 201706/1098
Stuðningsfulltrúi Flensborgarskólinn Hafnarfjörður 201706/1097
Sérfræðingar á skráningarsviði Lyfjastofnun Reykjavík 201706/1096
Sérfræðingur á skráningarsviði Lyfjastofnun Reykjavík 201706/1095
Teymisstjóri á skráningarsviði Lyfjastofnun Reykjavík 201706/1094
Læknar Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Ísafjörður 201706/1093
Sérfræðingur í reikningshaldi Íbúðalánasjóður Reykjavík 201706/1092
Launafulltrúi Lögreglustjórinn á höfuðborgarsv. Reykjavík 201706/1091
Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri 201706/1090
Sviðsstjóri móttöku Útlendingastofnun Reykjavík 201706/1089
Mannauðsstjóri Útlendingastofnun Reykjavík 201706/1088
Bílstjóri Seðlabanki Íslands Reykjavík 201706/1087
Almennt starf í veitingaþjónustu Seðlabanki Íslands Reykjavík 201706/1086
Framhaldsskólakennari Menntaskólinn á Akureyri Akureyri 201706/1085
Aðstoðardeildarstjóri Landspítali, röntgendeild Reykjavík 201706/1084
Heilbrigðisritari/skrifstofumaður Landspítali, Landakot Reykjavík 201706/1083
Hjúkrunarfræðingur Landspítali, dagdeild skurðlækninga Reykjavík 201706/1082
Framhaldsskólakennari Fjölbrautaskóli Suðurlands Selfoss 201706/1081
Svæðisstjóri lækninga Heilsugæslan Grafarvogi Reykjavík 201706/1080
Geislafræðingur Landspítali, röntgendeild Reykjavík 201706/1079
Sálfræðingur Flensborgarskólinn Hafnarfjörður 201706/1078
Hjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Ísafjörður 201706/1077
Hjúkrunarfr., afleysing deildarstj. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Ísafjörður 201706/1076
Gagnagrunnstjóri Háskóli Íslands, Miðstöð í lýðheilsuv. Reykjavík 201706/1075
Sérhæfður starfsmaður Landspítali, blóð- og krabbam.lækn. Reykjavík 201706/1074
Sérfræðingur við Lyfjafræðideild Háskóli Íslands, Heilbrigðisvísindasv. Reykjavík 201706/1073
Deildarlæknir Landpítali, röntgendeild Reykjavík 201706/1072
Embætti prests, Lindaprestakall Biskupsembættið Kópavogur 201706/1071
Iðjuþjálfi Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstaðir 201706/1070
Starfsm. í félagsstarf aldraðra Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduós 201706/1069
Lífeindafræðingur Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstaðir 201706/1068
Hjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnun Austurlands Fjarðabyggð 201706/1067
Sérfræðingur í fjárm. og rekstri Dómsmálaráðuneytið Reykjavík 201706/1066
Embætti skrifstofustjóra Dómsmálaráðuneytið Reykjavík 201706/1065
Lektor í umhverfis- og auðlindafr. Háskóli Íslands Reykjavík 201706/1064
Við mönnum stöðuna
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.
www.talentradning.is
Ertu að leita að talent?
Við finnum starfsmanninn fyrir þig
Umsækjendur, skráið ykkur á
talent@talentradning.is/bryndis@talentradning.is - Sími: 552-1600
2
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
C
-D
6
3
0
1
D
2
C
-D
4
F
4
1
D
2
C
-D
3
B
8
1
D
2
C
-D
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K