Fréttablaðið - 24.06.2017, Page 66
Þökkum auðsýnda samúð
við andlát og útför fósturföður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Sigurvins Péturssonar
Bröttugötu 2, Borgarnesi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jakobína S. Stefánsdóttir Sverrir Hjaltason
Pétur Valgarð Hannesson María Erla Guðmundsdóttir
Friðþjófur Th. Ruiz Birna Rúna Ingimarsdóttir
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er Er að stinga af til Spánar með allri fjölskyldunni. Svo sjáum við til hvernig stuði ég verð í þegar ég kem heim, hvort ég geri eitthvað sniðugt.“ Þannig svarar Lilja Rafney
Magnúsdóttir spurningu um hvort hún
ætlaði að gera allt vitlaust á Suðureyri í
tilefni sextugsafmælisins sem er í dag.
Viðtalið var tekið áður en hún fór.
Hún bjóst við að verða smá stund að
venjast loftslaginu ytra því svalt hefur
verið á Vestfjörðum að undanförnu.
„Það var eiginlega hlýrra í maí. Hitinn
hefur hangið í sex til tíu gráðum síðan en
það hafa komið góðir dagar með logni
og sól inn á milli,“ lýsir hún.
Fjölskyldan er ekkert að splæsa á sig
löngu fríi. „Við verðum í viku, það er
bara frábært. Við hjónin eigum fjögur
börn og þrjú barnabörn og það var
ekkert sjálfgefið að ná hópnum saman
í ferðalag, það er langt síðan það hefur
gerst.“
Eiginmaður Lilju Rafneyjar, Hilmar
Gunnarsson, er strandveiðimaður og
afmælið hittir á tímabil þar sem hann
má ekki róa á sínu svæði en Lilja segir
hann hafa náð að landa dagskammt-
inum snemma morguns síðasta daginn.
„Hann slapp við hvassviðri með því að
fara á sjóinn upp úr miðnætti eins og
aðrir smábátasjómenn hér. Þeir verða
að stýra eftir veðri og vindum.“
Lilja Rafney fæddist á Stað í Súganda-
firði og kveðst rekja allar ættir sínar
þvers og kruss um svæðið þar í kring. „Ég
er eins mikill Vestfirðingur og hægt er að
vera, þaðan kemur þrjóskan og seiglan
og kannski kaldi húmorinn líka, það er
bæði gott og slæmt. Ég gæti varla verið í
pólitík nema af því að ég hef húmor fyrir
sjálfri mér og get slegið á létta strengi,
annars mundi ég deyja úr áhyggjum yfir
vandamálum heimsins. En auðvitað
verða þingmenn að geta sett sig í spor
annarra og hafa samkennd með náung-
anum, ég reyni eins og ég get að vera
almennileg manneskja í þeim efnum.“
Hún kveðst ekkert endilega hafa verið
með „þingmanninn í maganum“ þegar
hún tók sæti á þingi 2009 þó hún hafi
verið ástríðupólitíkus frá því hún var
ung. „Ég er baráttukerling og stemnings-
manneskja og fór snemma að vasast í
verkalýðs- og sveitarstjórnarmálum,
var formaður verkalýðsfélagsins í Súg-
andafirði í fjölda ára og varð ung odd-
viti Suðureyrarhrepps. Með samstöðu
íbúanna hefur tekist furðanlega að halda
uppi atvinnu í plássinu en fólk hefur
þurft að hafa fyrir hlutunum. Það fylgir
því að búa í litlu sjávarþorpi.“
gun@frettabladid.is
Ekki sjálfgefið að ná
fjölskyldunni saman í frí
Vestfirðingurinn Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður brá sér úr svalanum á Suður-
eyri til að fagna sextugsafmælinu í dag undir suðrænni sól með sínum nánustu.
„Ég er eins mikill Vestfirðingur og hægt er að vera, þaðan kemur þrjóskan og seiglan,“ segir Lilja Rafney.
Þökkum auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts hjartkærrar
eiginkonu minnar,
Arndísar Árnadóttur
Skógarseli 13, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færir fjölskyldan öllum
þeim sem komu að aðhlynningu hennar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arnþór Sigurðsson
Við sendum innilegar þakkir til allra
sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og
stuðning vegna andláts
ástkærs eiginmanns,
Óskars Arnarssonar
Álagranda 22, Reykjavík.
Ragnhildur Elín Garðarsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Kristín Björnsdóttir
ljósmóðir,
lést að hjúkrunarheimilinu Mánateigi,
Hrafnistu, miðvikudaginn 21. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Ólafur G. Sigurðsson
Björn Ólafsson Sigurður Ólafsson
Helga Thors Hildur Hafstein
og barnabörn.
Einar Kári Hilmarsson, Harpa Rún Hilmarsdóttir, Auður Lilja Magnúsdóttir,Lilja Rafney,
Hilmar Daði Magnússon, Jófríður Ósk Hilmarsdóttir, Gunnar Freyr Hilmarsson.
2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R34 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
2
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
C
-A
9
C
0
1
D
2
C
-A
8
8
4
1
D
2
C
-A
7
4
8
1
D
2
C
-A
6
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K