Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Page 29
8.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Nýverið kynnti snyrtivörurisinn
L’oréal til sögunnar svokallaðan snjall-
hárbursta. Burstinn er tengdur við
internet og greinir hárið við notkun
og sendir upplýsingar í smáforrit um
það ástand sem hárið er í og mælir í
leiðinni með vörum sem henta.
Burstann má bæði nota í blautt og
þurrt hárið. Bustinn greinir strok-
urnar þegar hárið er greitt en hann hefur einnig að geyma hljóð-
nema sem skynjar hljóðin sem berast þegar hárið er greitt og
segja mikið til um hvort hárið er úfið, þurrt, slitið eða illa farið.
Burstinn sendir allar upplýsingarnar í gegnum Wi-Fi eða Blue-
tooth í smáforritið sem gefur fólki góð ráð um hvernig eigi að
meðhöndla hárið rétt samanborið við ástand eða ráðleggur not-
andanum hvaða hárvörur henti hárgerðinni best.
Nýtt
Bylting í hárburstun
Essie
1.899 kr.
Liturinn Over the
Knee er efst á óska-
listanum mínum
þessa stundina.
Bianco
12.795 kr.
Flottir skór með 10 cm hæl.
Vila
8.990 kr.
Svartar víðar buxur
eru klassískar.
Geysir
4.290 kr.
Sokkar frá Hansel from Basil.
Í þessari viku...
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum
að útsölurnar eru nú í fullum gangi. Mér
finnst mikilvægt að skipuleggja fataskápinn
örlítið áður en ég fer á útsölur og vera þannig
með ákveðna mynd í hausnum af því hvað
vantar. Útsölurnar eru jafnframt frábær tími
til þess að kíkja eftir ákveðnum grunnflíkum
sem eru klassískar, svo sem yfirpeysum,
einföldum buxum og yfirhöfnum.
Zara
7.995 kr.
Svöl taska úr rúskinni.
Zara
6.995 kr.
Hlý og notaleg peysa
með æðislegum kraga.
Hrím
9.990 kr.
Órói inn á heimilið
frá PlantePlanet.
Brjóstahaldaratoppar voru áberandi á
sumarsýningum margra hönnuða 2017. Þá
þarf ekkert endilega að klæðast þeim einum og
sér heldur er einnig fallegt að klæðast þeim yfir
skyrtur eða rúllukraga líkt og á sýningu Prada.
Belti í mittið er komið aftur. Á sumarsýningum tískuhúsanna mátti
sjá hvernig hönnuðir léku sér að því að setja þröng belti í mittið yfir
flíkur allt frá skyrtum og kjólum og yfir í yfirhafnir.
Tískan
2017
Þrátt fyrir að veturinn
sé ennþá í fullum
skrúða fara vorlínur
tískuhúsanna að detta
inn hvað úr hverju. Þá
er áhugavert að kynn-
ast örlítið nokkrum
tískustraumum sem
voru hvað mest
áberandi á sumar-
línum tískuhúsanna
fyrir sumarið 2017.
Sigurborg Selma Karlsdóttir
sigurborg@mbl.is
Hvítir skyrtukjólar eru skemmtilegt trend sem má leika sér svolítið með að para við
annan fatnað. Bæði eru þeir fallegir til að mynda við sokkabuxur og yfir þröngar buxur.
Gucci
„Kitten“-hælar svokallaðir eru að
koma aftur í tísku. Þeir náðu síðast
gríðarlegum vinsældum 2000 en
voru þó byrjaðir að sjást örlítið síðasta
sumar. Það verður gaman að sjá hvernig
tískuheimurinn tekur í þessa skótísku.