Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Side 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Side 35
fyrirmæli um að ná „bara okkar pening til baka …“ Björn Bjarnason vitnar til þess að í myndinni komi fram hversu erfitt hafi verið fyrir erlenda fjölmiðla að fá sannferðugar upplýsingar um íslensku bankana og spyr: „Lýsir þetta því hvernig þetta var? Var af bank- anna hálfu reynt að fegra myndina og fá blaðamenn og aðra til þess að segja söguna öðru vísi heldur en hún var í raun og veru í aðdraganda hrunsins?“ Pétur bendir á að frá einkavæðingu þeirra hafi bankarnir farið úr því að vera einu sinni, tvisvar sinn- um þjóðarframleiðsla landsins, upp í að vera ellefu, tólf sinnum stærri en þjóðarframleiðslan á aðeins fimm árum. „Og þessi aukning, þessi stærð, hún ger- ist svona án þess að við séum kannski búin að hugsa það til enda, bara sem þjóð, bankarnir og við öll sam- an. Allt í lagi, þegar gengur vel þá er þetta ekkert vandamál. En raunverulega þegar fjármálakrísan í heiminum byrjar 2007 og svo dýpkar 2008 að þá verð- ur þessi skammtímafjármögnun sem íslenskir bankar eru að einhverju leyti háðir, hún fer að dragast til baka, og þá allt í einu standa bankarnir einir og auð- vitað er (að) Seðlabankinn eða þjóðin getur alls ekki gert neitt til þess að styðja við bankakerfið.“ Hann bætir við: „Við missum þetta bara úr böndunum og við erum einhvern veginn komin í einhvern vítahring, bankarnir og stjórnvöld, eftirlitsaðilar, Seðlabankinn, allir. Við viljum auðvitað standa okkur og við viljum ekki að bankarnir fari á hausinn, að sjálfsögðu, og hvað gerir maður þá? Auðvitað vona allir bara það besta og við stöndum bara saman. Það fer enginn að tala þetta niður. Það er bara mannlegt og eðlilegt, al- gjörlega. Auðvitað eftir á að hyggja virkar það svolít- ið kjánalegt og auðvitað hefði verið kannski betra að reyna einhvern veginn að bremsa okkur af, eða gera þetta eitthvað öðruvísi. En það er bara, þetta eru orðnir svo miklir hagsmunir og þetta er eins og risa- stórt olíuskip sem þú ert að reyna að stöðva. Við vit- um að það er bara ekki hægt og það endar bara með því að stranda, og það er auðvitað það sem gerðist.“ Á það má benda hér að í Rannsóknarskýrslu Al- þingis kemur fram að einn innlendur aðili, SÍ, leit- aðist við að gera réttum stjórnvöldum grein fyrir því í hvað stefndi. En viðbrögðin við þeim aðvörunum voru nákvæmlega þau sem Pétur Einarsson lýsir, og hann telur í sjálfu sér ekki óeðlileg, eins og komið var. Uppgrip hýena Björn Bjarnason spyr því næst út í tölur: „Það eru nefndar tölur, eins og þú segir, bankarnir urðu svona stórir. Síðan vorum við að tala um vogunarsjóðina og hvað þeir keyptu á. Það er nefnd sú tala að þeir hafi kannski farið héðan með 20 milljarða dollara að lok- um?“ Pétur: „Já, það er svona sú tala sem kemur fram í lokauppgjörinu og þannig að það er tala sem liggur nokkuð fyrir, 2.400, 2.500 milljarðar króna.“ Hann bendir á að ekki hafi allir vogunarsjóðir keypt á sama verði og þeir sjálfir muni segja að uppboð á 1 og 3 eða 6 prósentum endurspegli ekki öll kaupin. En Pétur Einarsson bætir svo við: „En það sýnir hvað þetta er óheilbrigður markaður. Vegna þess að hann er ekki skráður. Hann er algjörlega á bak við tjöldin og það er nefnilega enginn sem almennilega veit þetta.“ Björn: „En þetta er enn þá í gangi? Þrátt fyrir þetta, að þá er þessi markaður, hann dafnar vel.“ Pétur: „Já, algjörlega. Og vogunarsjóðir eru líka annað svona svarthol. Þeir sem sagt gefa engar upp- lýsingar um hverjir fjárfesta í þeim, hverjir eiga þá, meira að segja (ekki) hverjir starfa í þeim.“ Og Pétur bætir við: „Ef þú ferð á heimasíður vog- unarsjóða, eins og kemur fram í myndinni, þarftu sem sagt lykilorð bara til þess að komast inn á heima- síðuna, þú sérð ekki neitt. Þannig að það er annað líka í þessu sem ég er svona að benda á, er það að til þess að eiga banka, þá þarftu að vera viðurkenndur af Fjármálaeftirlitinu. Og við gerum strax eftir hrun stærstu undanþágu sem er hægt að gera varðandi fjármálakerfið, það er það að vita ekki almennilega hverjir eiga bankana. Og það er fyrir mér líka gríð- arleg mistök og ég er bara alls ekki sáttur við sem Ís- lendingur og sem fyrrverandi bankamaður. Vegna þess að það eru ákveðnar reglur sem eru hér og alls staðar í heiminum, varðandi eignarhald á bönkum, og við eigum auðvitað að fylgja þeim.“ Björn: „Þeim var ýtt til hliðar hérna?“ Pétur: „Já.“ Björn Bjarnason bendir á að í myndinni sé sagt að „lögfræðingar hafi tekið hundrað milljarða í þóknun fyrir að sinna þessu öllu saman?“ Pétur staðfestir þessa „ótrúlegu tölu“ sem Hörður Ægisson blaðamaður hafi tekið saman. Í lok þessa athyglisverða viðtals er vikið að mikil- vægum þætti, samspils viðskipta- og fjárfesting- arstarfsemi banka hér og annars staðar. Pétur Einarsson er eindregið þeirrar skoðunar að algjörlega verði að skilja á milli viðskiptastarfsemi bankanna og fjárfestingarstarfsemi þeirra. Hinir venjulegu viðskiptamenn bankanna hafi af því ríka hagsmuni og einstakt tækifæri sé nú til þess að gera slíkan aðskilnað á Íslandi. Ríkið eigi stóran eign- arhlut í bankakerfinu og umgjörð bankakerfisins og hagkerfisins í augnabikinu sé þannig, að óvenjugóðar aðstæður séu til að ná slíkri breytingu fram. Ekkert bendir þó til þess að það verði gert. Af hverju? Morgunblaðið/RAX 8.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.