Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 39
sig af hæfileikum; ég hef ekki áhuga
á slíku og samstarf okkar Wadada
snýst alls ekki um slíkt. Við leggjum
áherslu á að geta brugðist við því
sem við heyrum meðleikarann vera
að hugsa og gera, á einlægan og
sannan hátt.“
Tónleikar þeirra Iyer og Leo
Smith í Hörpu á mánudag verða þeir
fjórðu í snarpri níu tónleika röð í
jafn mörgum Evrópulöndum. Iyer
segir lögin vissulega breytast tals-
vert frá einu kvöld til annars, þeir
félagar vinni út frá ákveðnum hug-
myndum og efni en hverjir tónleikar
þróast á einstakan
hátt. „Það er ekk-
ert njörvað niður,
efnið breytist í
hvert sinn sem við
leikum það, því í
stað þess að hafa
mótað svítu hefð-
bundinna laga þá
erum við með
þetta safn hug-
mynda sem við
byggjum performansinn á.
Í fyrra lékum við saman á yfir
tuttugu tónleikum sem dúett og því
er ákveðin samstilling til staðar, en á
hverjum tónleikum stígum við inn í
heim hins óþekkta en treystum ferl-
inu sem við höfum mótað. Á leiðinni
gegnum hverja tónleika höfum við
nokkrar vörður sem sýna okkur að
við séum á réttri leið og skilgreina
rammann sem við vinnum innan.“
Kynnt undir rasisma
Foreldrar Iyer eru indverskir inn-
flytjendur í Bandaríkjunum, þar
sem hann fæddist og ólst upp. Hann
er fjölmenntaður í tónlist en hefur á
seinni árum lagt sig eftir því að
skilja og læra tónlist frá Suður-Asíu.
„Maður getur ekki afneitað upp-
runanum, hann talar alltaf á ein-
hvern hátt gegnum mann. Og ég tel
hann hafa áhrif á það hvernig fólk
hlustar á mig. Eftir að ég varð full-
orðinn ákvað ég að læra að skilja
þessa hlið á mér og hef síðan unnið
með fjölda indverskra listamanna.
Hitt sem hefur mótað mig mikið
er að hafa alist upp í Bandaríkjun-
um, ekki bara sem barn innflytjenda
heldur sem hörundsdökkur maður.
Það hefur til að mynda gefið mér
ákveðna samkennd með tónlist og
reynslu svartra. Og að geta skilið
hana út frá því að vera frábrugðinn
meirihlutanum, það verður hluti af
lífssýn manns og starfi. Sumum
löndum mínum finnst að ég eigi ekki
heima hér, ég sé ekki „sannur“
Bandaríkjamaður, ólíkt þeim. Eng-
inn spyr hvíta tónlistarmenn um
uppruna þeirra, jafnvel þegar þeir
leika djass. Og það er vandamál.“
Það er þungi í
rödd Iyer þegar
hann fer að tala um
stjórnmál í Banda-
ríkjunum og hann
segir að á sama tíma
og fólk tali um sam-
runa listgreina og
aukinn skilning á 21.
öldinni, þá sé „einn
háværasti rasisti
jarðar að verða for-
seti Bandaríkjanna! Mér finnst ekki
að nú sé tími frelsis og nýrra mögu-
leika heldur umsáturs og hættu. Nú
er ekki tími vonar heldur til að berj-
ast; það verður byrði okkar litaðra
listamanna.“
Hann bætir við að djasstónlist sé
sprottin af baráttu Bandaríkja-
manna af afrískum uppruna og hún
hafi alltaf haft andspyrnu sem
grunntón. Það sé ekkert nýtt í því.
„Fyrir Wadada, sem til að mynda
samdi gríðarmerkilegt tónverk um
réttindabaráttu svarta, Ten Free-
dom Summers, er þessi barátta óað-
skiljanlegur hluti tilverunnar. Hann
ólst upp í Mississippi á tímum að-
skilnaðar og fjölskylda hans er af-
komendur þræla. Það er veruleikinn
sem við lifum og hrærumst í og nú
hafa kaldlyndir stjórnmálamenn
klofið þjóðina, leikið á rasískar til-
hneigingar almennings og magnað
þær upp, í stað þess að lækna sárin í
samfélaginu: það hefur verið kynt
undir rasískri hegðun, rasísku orð-
færi og hugsun. Þar erum við stödd í
dag,“ segir Iyer dimmum rómi.
’Hann er sannurmeistari! Ekkibara á trompetinnheldur líka hvað varð-
ar allan skilning hans
og túlkun á tónlist; í
tónlistarsköpun og við
hlustun á tónlist.
8.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Valdís Gregory sópran og Eva
Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja
sönglög og aríur eftir Mozart, Wag-
ner, Wolf, Ravel, Barber og Previn í
Hörpuhorni á morgun, sunnudag,
kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
Starship Troopers í leikstjórn Paul
Verhoeven, frá árinu 1997, verður
sýnd í Bíó Paradís á Svörtum sunnu-
degi á morgun kl. 20. Hér er um vís-
indaskáldskap að
ræða þar sem fas-
istasamfélag
framtíðarinnar
berst við geim-
verupöddur
til að lifa
af.
Egill Sæbjörnsson og Andri Snær
Magnason ræða togstreitu og sam-
hljóm bygginga og listar í Hafnarborg á
morgun, sunnudag, kl. 14. Sýning Egils,
Bygging sem vera og borgin sem svið,
stendur til 15. janúar í Hafnarborg.
Bíó Paradís sýnir upptöku frá
Breska þjóðleikhúsinu á Túskild-
ingsóperunni eftir Bertholt
Brecht með tónlist Kurts Weill í
leikstjórn Rufusar Norris. Sýningar
verða í kvöld og á morgun kl. 20.
Dansverkið Fubar eftir Sigríði Soffíu
Níelsdóttur verður sýnt í Hjálmakletti
í Borgarnesi á morgun, sunnudag, kl.
18. Tónlist er í höndum Jónasar Sen,
leikmynd hannaði Helgi Már Krist-
insson og búninga Hildur Yeoman.
MÆLT MEÐ
Sigríður Jónsdóttir, ADHDmarkþjálfi
og fíkniráðgjafi mælir með
Bio-Kult við sína skjólstæðinga.
Mæli með...
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari upplýsingar áwww.icecare.is
Bio-Kult Original Bio-Kult Candéa
● Styrkir þarmaflóruna.
● Bætir meltinguna.
● Bestu gæði af góðgerlum.
● 14 tegundir af gerlastofnum.
● Styrkur í hverju hylki 2 milljarðar.
Innihaldið er öflug blanda af vinveittum gerlum,
7 gerlastofnar og 1milljarður gerla, ásamt hvítlauk
og Grape Seed Extract í hverju hylki.
Öflug vörn gegn Candida í meltingavegi
Bio-Kult Candéa hefur reynst
mér vel, fæ ekki lengur kláða
og pirring eftir blæðingar.
Kolbrún Hlín
Kláðinn farinn
Easy2Clean
Mött veggmálning
sem létt er að þrífa
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Spunameistararnir Vijay Iyer og Wadada Leo Smith taka hljóðfærin til kost-
anna í Hörpu á mánudag. Lykillinn er að hlusta, hvor á annan, segir Iyer.
Ljósmynd/John Rogers