Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Page 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Page 44
Frá ballarbeltum til Beyoncé: Fimm femínísk poppkorn Á árinu sem leið gáfu Reykja-víkurdætur út sína fyrstuplötu, hlutu glimrandi dóma fyrir framkomu sína á Airwaves, ræddu við fjölmarga af helstu tón- listarmiðlum heims og frelsuðu rím- urnar sem og „geirurnar“ við fögnuð þúsunda gesta á Roskilde Festival. Ekki slæmt það. Stærsta opinbera augnablik þeirra átti sér þó stað í Vikunni með Gísla Marteini, sællar minningar, þar sem þær skóku mjaðmir og beltisböll framan í hrekklausa áhorfendur í setti og sófa. Stórum hluta þjóðarinnar þótti gjörningurinn ósæmilegur en annar hluti sá hann sem valdefl- andi. Í raun varð sú svívirðing sem beindist að dætrunum aðeins til þess að dreifa boðskap þeirra enn frekar og hvetja ungar konur til óþekktar. Ef undirritaðri skjátlast ekki ætla dæturnar að leggja land undir fót á nýju ári og vonandi hneyksla þær heimsbyggðina. Hver á annars að hamra á feðraveldinu ef ekki þrettán íslensk rappkvendi? Límonaði drottningarinnar Það er óhætt að segja að Beyoncé hafi stolið senunni á Ofurskálinni þar sem hún flutti í fyrsta skipti lag- ið „Formation“ opinberlega. Með dönsurum klæddum í stíl við upp- reisnar- og mannréttindahópinn Svörtu pardusana og sterka sósu í töskunni sprengdi hún umræðuna um það hvort „svört líf skipti máli“ upp á gátt. Hún lét þó ekki þar við sitja heldur færði heiminum fljót- lega femíníska (ef eilítið markaðs- vædda) límonaði-gjöf. Lemonade er einstakt listaverk, bæði fyrir eyru, augu og sál. Hver annar en Beyoncé gæti dregið fram persónulega þjáningu innan gull- slegins forrréttindalífsstíls og end- urspeglað í henni undirokun allra þeirra kynslóða svartra kvenna sem á undan komu? Kallað fram marg- laga reiði, sorg, sátt og upphafningu í svo fáum orðum? Enginn hefur hlotið eins margar tilnefningar til Grammy-verð- launanna og drottningin en enn sem komið er hefur hún ekki unnið fyrir plötu ársins. Ef það er ekki komið að því nú hljótum við að klappa Kanye á svið. Beeflugan stingur Þeim sem segjast sækja fréttir til grínista og kvöldþáttastjórnenda fer fjölgandi. Það eru slæmu fréttirnar. Góðu fréttirnar eru þær að frá og með 2016 er Samantha Bee meðal umræddra grínista. Full Frontal with Samantha Bee hefur hlotið verðskuldað lof fyrir að draga ekkert undan í sótsvartri sam- félagsgagnrýni. Hennar var ein há- værasta og beittasta röddin í kórn- um sem reyndi að kæfa Trump og þó það hafi ekki tekist stendur hún enn, sterk sem áður, og grillar hann og alla þá menn og málefni sem mis- bjóða henni, okkur hinum til skemmtunar. Bee er því miður eina brauðið í troðfullu pulsupartíi kvöldþátta- stjórnenda, enn sem komið er. Haldi hún áfram sínu striki munu þó sjón- varpsstöðvarnar vonandi brátt söðla um og finna fleiri sterkar konur í kvöldþáttastöður. Árið hennar Övu Leikstjórinn Ava DuVernay þótti illa svikin þegar hún hlaut ekki til- nefningu fyrir Selmu á sérlega hvít- þvegnum Óskarsverðlaunum árið 2015. DuVernay lét það þó lítið á sig fá og rúllaði þess í stað árinu 2016 upp svo um munaði. Hún framleiddi þáttaröðina „Queen Sugar“ þar sem allir leikstjórarnir eru konur og sló rækilega í gegn með heimildar- myndinni 13th en hún fjallar um hvernig réttar- og fangelsiskerfið í Bandaríkjunum vinnur gegn svörtu fólki. Margir vilja þó meina að eitt mikilvægasta afrek DuVernay á árinu sé hinsvegar það að hún varð fyrsta þeldökka konan til að leik- stýra stórmynd sem hefur yfir 100 Drottningin Beyonce sveik ekki aðdáendur sína á árinu 2016 frekar en fyrri daginn. AFP Þó að margir vilji gleyma því að 2016 hafi nokkru sinni átt sér stað verður að segjast að það hafði í för með sér ýmislegt ágætt. Femínískir popp-hápunktar ársins voru fjölmargir, jafnvel fleiri en hægt er að telja, en það er vel þess virði að draga nokkra fram til að hugga sig við á þessum síðustu og verstu. Anna Marsibil Clausen annamarsy@mbl.is 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.1. 2017 LESBÓK MÁLMUR Þýsku þrassgoðin í Kreator eru enn í fullu fjöri og von er á nýrri breiðskífu, þeirri fjór- tándu í röðinni, undir lok mánaðarins, „Gods of Vio- lence“. Af þessu tilefni setti Mille Petrozza, söngvari og gít- arleikari, sig í heimspekilegar stellingar í samtali við miðilinn LoudTV.net. Þegar spurt var um aldur svaraði hann: „Aldur er hugarástand. Einblíni maður á það sem færir manni gleði heldur maður sér ungum. Um leið og þú ferð að hugsa eins og gamall maður verður þú gamall maður. Þú hugsar með þér: Hér áður þræddi ég þrass- tónleika en hangi nú á sófanum fyrir framan sjónvarpið. Það er til marks um það að þú sért orðinn gamall. Þitt er valið. Það er ekkert mál að verða áttræður, jafnvel ní- ræður án þess að vera gamall.“ Sér við Elli kerlingu SJÓNVARP Frank Gallagher, faðirinn litríki í bandarísku útgáfunni af spédramanu Shameless, er með lífseigustu persónum í sjónvarpssögunni. Í sjö þáttaraðir hefur hann misnotað áfengi og fíkniefni, verið skilinn ítrekað eftir á víðavangi, fleygt í sjóinn, þeg- ið nýja lifur og legið ófáar banalegurnar. Á endanum rís hann alltaf upp aftur; ferskari en nokkru sinni fyrr. Það er jafnvel merki- legra að eftir allt sem á undan er gengið er hann ennþá í sama gamla gallajakkanum – og það sér ekki á honum. Sýrustigið í þættinum er að vísu mjög hátt og skýrir þessi ólíkindi líklega. Samt er klárlega gott í jakkanum. Ódrepandi maður í ennþá betri jakka Frank gamli Gallagher í gallajakkanum góða. Showtime Mótmælt á Austurvelli í janúar 2009. Ránsfengur RÚV Ránsfengur nefnist íslensk heimildarmynd um afleiðingar hrunsins, sem sýnd verður á RÚV í kvöld, sunnudag, kl. 20. Myndin segir frá því hvernig hrun bank- anna hefur áhrif á venjulegan Ís- lending. Þorsteinn missir fyrirtæki sitt og nánast lífið í kjölfar hrunsins 2008 en með hjálp dóttur sinnar fer hann í mál við bankana. Leikstjóri er Pétur Einarsson en þulur Ólafur Darri Ólafsson. Framleiðandi er P/E Production. STÖÐ 2 Satt eða logið? kallast ís- lensk útgáfa af hinum geysi- vinsælu þáttum Would I Lie to You? sem Stöð 2 tekur til sýninga í kvöld, sunnudag, kl. 20. Um er að ræða fyrsta þáttinn af tíu. Þættirnir hafa slegið í gegn á Bretlandi undanfarin ár. Þátt- arstjórnandi er Logi Bergmann og tveir fastir liðsstjórar eru þau Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Auðunn Blöndal. Í hverjum þætti keppa tvö þriggja manna lið. Þátt- urinn skiptist í þrjár umferðir. Satt eða logið? Logi Bergmann RÁS 2 Rokkland er músík-magasín í útvarpi en þátturinn er á dagskrá Rásar 2 á sunnudögum kl. 16:05. Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljóm- sveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heims- þekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust voru 20 ár liðin frá því hann fór fyrst í loftið. Umsjón hefur Ólafur Páll Gunnarsson. Ólafur Páll Gunnarsson. Rokkland Mille Petrozza

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.