Morgunblaðið - 27.11.1963, Page 1
32 síður
Johnson rœddi
við leiðtoga í gœr
— Kann ráðgast við Home,
Erhard og de Gaulle á einka-
fundum síðar
Washington,
26. nóv. - AP - NTB.
LYNDON B. Johnson, forseti
Bandaríkjanna, átti í dag
fundi með mörgum erlendum
þjóðhöfðingjum og ráðamönn
um. Munu alþjóðamál, og
væntanleg samskipti Banda-
ríkjanna við erlend ríki, hafa
verið til umræðu.
Forsetinn ákvað m.a. að
eiga fund með Alec Douglas
Home, forsætisráðherra
Breta, snemma á næsta ári.
Munu þeir þá ræða ítarlega
um alþjóðamál. Þá var í dag
ákveðið, að Johnson og De-
Gaulle, Frakklandsforseti,
muni koma saman til fundar,
síðar í vetur. Þá mun Erhard,
kanzlari V-þýzkalands, halda
til fundar við Johnson á
næstunni.
Johnson ræddi í dag m.a.
við Mikoyan, varautanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, og
stóðu viðræður þeirra í eina
klukkustund. Mikoyan vildi
fátt láta eftir sér hafa, er
hann hélt frá fundinum.
• ALEC DOUGLAS HOME,
utanríkisráðherra Breta, sagði
eftir viðræðurnar við Johnson,
að þeir hefðu komið sér saman
um að hafa nána samvinnu á
alþjóðasviðinu. Samtal þeirra
stóð í hálfa klukkustund. For-
sætisráðherrann sagði, að þeir
hefðu ekki rætt einstök mál að
sinni. Hins vegar skýrði hann
Framhald á bls. 31
Alvariegra alþ|é5aástand
í kjölfar forsetamorðsins?
Fs'éttastofur herma9 að ráðamenn í A-Evrópu
óttist reiði handarísku þjóðarinnar, vegna
sajórnmálaskoðana- og tengsla Lee H. Oswalds
N Ú, þegar ógnarölduna, sem
fylgdi í kjölfar fráfalls Kenn-
edys, Bandaríkjaforseta, læg-
ir, og jarðarför hans er um
garð gengin, fer sú hlið for-
setaskiptanna, sem að al-
þjóðamálum snýr, að koma
fram í dagsljósið. Er það
greinilegt af ummælum blaða
og fréttastofnana.
Mikil gagnrýni hefur víða
komið fram, vegna frammi-
stöðu lögreglunnar í Dallas í
Texas (sjá aðra frétt), og er
sú gagnrýni víðast í sambandi
við ummæli um alþjóðaáhrif.
Fréttastofur, sem fulltrúa
eiga í Sovétríkjunum, og öðr-
um ríkjum A.-Evrópu, hafa af
megni reynt að skýra afstöðu
ráðamanna þar, og hverjar
efleiðingar þeir telja viðburði
síðustu daga munu hafa. —
Greinilegt er, að uggs gætir
í a.m.k. sumum þessara landa,
uggs um, að stjórnmálaskoð-
anir Lee Harvey Oswalds
kunni að verða til þess, að
reiði bandarísku þjóðarinnar
beinist að kommúnistaríkj-
unum, og alþjóðakommúnism
anum verði kennt um að
standa að baki atburðunum
vestra.
Johnson, forseti, hefur lýst
því yfir, að hann muni fylgja
utanríkisstefnu Kennedys. —
Hefur sú yfirlýsing hans þeg-
ar birzt á forsíðu Moskvu-
blaðsins „Pravda“. Stjórn-
málafréttaritarar benda hins
vegar á, að sovézkir ráða-
menn treysti aðeins því, sem
þeir taki á, og tíminn leiði í
ljós.
Hér fer á eftir frásögn
fréttamanns Associated Press,
William L. Ryan, rituð í New
York í gær, þriðjudag. Hún
er á þessa leið:
Ummæði sovézkra blaða og
ráðamanna, í kjölfar morðsins á
Kennedy, forseta, benda til þess,
að nokkur ótti ríki í Sovtéi’íkj-
unum.
Frá Kreml berast þær raddir,
að hætta sé á því, að bandarísk
alþýða muni skella skuldinni á
kommúnismann, af því að mað-
ur, sem talinn er hafa verið
Castrosinnaður Marxisti, var sak
aður um morðið.
Krúsjeff, forsætisráðherra, og
meðráðamenn hans eiga við mörg
JACK RUBY, (Rubinstein).
maðurinn, sem gekk að Os-
wald og skaut hann, þar sem
hann stóð milli tveggja lög-
regluþjóna.
Sjá frásögn af starfi lögregl-
unnar í Dallas, á bls. 3.
vandamál að glíma innanlands,
auk klofnings í alheimskommún-
ismanum, og þeir munu ekki
telja, að morð forsetans
verði til að draga úr viðsjám í
alþjóðamálum.
„Izvestia“, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, sem alla
jafna er talið tákna skoðanir
Krúsjeffs, segir: „Fráfall Kenn-
edys, forseta, hefur komið róti
á ástandið í Bandaríkjunum. —
Barátta stendur milli þeirra
Bandaríkjamanna, sem aðhyllast
heilbrigðar skoðanir, og æsinga-
manna, sem ekki skirrast við að
nota ástandið til að koma mál-
um sínum fram.“
Stefna Krúsjeffs miðar að frið-
Framhald á bls. 31
Evrépublöð sameinast í
á lögregiuna í Dallas
Kommúnistablöð telja hægrimenn standa
að haki háðum morðunum
London, 26. nóv. — (AP)
Þ A Ð eru ekki aðeins
kommúnistablöðin í Ev-
rópu, sem varpað hafa
fram spurningum um morð
ið á Lee Harvey Oswald,
manninum, sem talinn er
hafa myrt Kennedy, for-
seta.
Mörg andkommúnísk
blöð telja atburðinn mjög
grunsamlegan. Þau vilja þó
ekki kenna hægrisinnuðum
öfgamönnum um drápið,
en mörg kommúnistablöð
telja þá bera ábyrgðina.
Mikillar gagnrýni hefur
gætt á lögregluna í Dallas.
— Hér fara á eftir ummæli
nokkurra blaða í Evrópu:
„NEUES ÖSTERREICH',
óháð blað í Vínarborg, segir:
„Oswald getur ekki lengur
talað, jafnvel þó hann vildi,
jafnvel þó hann væri tilneydd-
ur. Var það tilgangurinn með
dauða hans? Hver stóð að baki
Jack Kuby, mannsins, sem
sagt er, að hafi viljað koma
fram hefndum? Það er ekki
mjög sennilegt, að hann hafi
gert það, sem hann gerði, að-
eins til að hlíía frú Kennedy
við að koma fram í rétti, svo
að hún þyrfti ekki að vitna
mmmmmmm
gagnrýni
gegn morðingja manns síns.“
„DIE PRESSE“, annað óháð
Vinarborgarblað, segir: „Hvað,
ef Oswald var saklaus? Hvað,
ef hann var aðeins fórnardýr
þess ráðléysis og æðis, sem
augljóst er að ríkti í röðum
lögreglumanna, er þeim var
ljóst, að þeim hafði ekki tek-
izt að vernda líf Kennedys.
Lögreglan kann að hafa talið
það nauðsyn að finna morð-
ingja strax, hvað sem það
kostaði, og lýsa hann sekan.
Þegar tekið er tillit til aðstöðu
Dallaslögreglunnar, þá var
Oswald upplagður þorpari."
„DAILY TELE GR APH“,
Lundúnablað og málgagn
íhaldsmanna, segir: „Morðið á
Oswald gefur hvers kyns sögu
sögnum og illmælgi, sem þjón-
að getur tilgangi vondra
Framh. á bls. 11