Fréttablaðið - 13.09.2017, Side 4
Þetta eru tíma-
bundin yfirráð enda
stendur til að endurskipu-
leggja félagið og vonandi fá
inn nýja fjárfesta.
Haraldur Guðni
Eiðsson, for-
stöðumaður sam-
skiptasviðs Arion
banka
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
SLÁANDI SEPTEMBER
AFSLÁTTUR
Með 200.000 kr afslætti.
DÆMI: Pop 2.190.000 kr.
MEÐ AFSLÆTTI: 1.990.000 kr.
*Tilboðið gildir til 30. september 2017
- 200.000 kr.
Allir sem kaupa eða panta nýjan Fiat hjá Ís-Band í september, geta fengið sláandi afslátt.
ÁRA5ÁBYRGÐ
Iðnaður Útlit er fyrir að stjórn United
Silicon muni einungis verða skipuð
fulltrúum Arion banka og þeirra
íslensku lífeyrissjóða sem fjárfestu í
fyrirtækinu. Bankinn hefur gengið
að veðum og tekið yfir hlutabréf
stærsta eiganda verksmiðjunnar sem
voru áður í eigu hollenskra félaga og
stofnenda United Silicon.
Þeir hafa þar með misst nánast
allt sitt hlutafé í kísilverinu. Doron
Beeri Sanders, fyrrverandi stjórnar-
formaður verksmiðjunnar og núver-
andi fulltrúi hollenska hrávöru-
fyrirtækisins Bit Fondel í stjórninni,
sem hefur einkarétt á sölu á kísil-
málmi fyrirtækisins í gegnum Sili-
con Mineral Ventures sem tók þátt
í stofnun kísilversins, mun að öllum
líkindum hverfa úr stjórninni á næstu
dögum þegar boðað verður til hlut-
hafafundar United Silicon.
„Arion banki er nú með 57 prósenta
hlut eftir að hafa gengið að veðum í
Kísil Íslandi, og tekið yfir hlutabréfin
í United Silicon sem voru í eigu þess
félags, en 67 prósenta atkvæðavægi.
Næststærsti eigandinn er Kísill III en
þar inni eru skuldabréfaeigendurnir,
meðal annars Arion banki, og þeir eru
með veð í hlutafé sem þeir hafa ekki
gengið að, hvorki við né aðrir,“ segir
Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðu-
maður samskiptasviðs Arion banka.
Stjórn United Silicon var í byrjun
ágúst skipuð fimm einstaklingum.
Tveir þeirra, Friðbjörn Eiríkur
Garðarsson lögmaður, einn af stofn-
endum United Silicon og hálfbróðir
Magnúsar Garðarssonar, fyrrverandi
forstjóra kísilversins, og Inga Birna
Barkardóttir, hættu í stjórninni um
tveimur vikum síðar. Eftir eru Jakob
Bjarnason stjórnarformaður og Sig-
rún Ragna Ólafsdóttir, sem bæði njóta
stuðnings Arion banka, og Doron
Beeri Sanders, sem var stjórnarfor-
maður félagsins frá stofnun þess og
þangað til í byrjun ágúst.
Upplýsingar um eignarhald Uni-
ted Silicon hafa ekki legið á lausu þar
Stofnendur United Silicon út í kuldann
Driffjaðrirnar í stofnun United Silicon hafa misst stjórnarsæti og þriðjungshlut í verksmiðjunni. Fulltrúi hollenska fyrirtækisins Bit
Fondel fer líklega úr stjórn á næstu dögum. Arion banki gekk að veðum, á nú 57 prósenta hlut og íhugar að kæra Magnús Garðarsson.
Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri og hluthafi kísilversins, segir ekkert hæft í fullyrðingum stjórnar United
Silicon um að hann hafi stundað stórfelld auðgunarbrot og skjalafals. Fréttablaðið/Eyþór
„Kærður fyrir eitthvað meint brot sem ég get ekki ímyndað mér hvað er“
Magnús Garðarsson segir ásakanir
á hendur honum tilhæfulausar.
„Þetta er ekkert annað en mjög
skítugur slagur um eignarhald að
félaginu United Silicon, sem ég
stofnaði árið 2014 og á stóran hlut
í,“ segir í yfirlýsingu sem Magnús
sendi frá sér síðdegis í gær.
Magnús segir Arion Banka hafa
stýrt United Silicon síðan í vor, fé
hafi vantað til að koma rekstrinum
í lag. Bankinn og hluthafar í hópi
með honum hafi að mestu komið
með það fé en krafist valda í félag-
inu í staðinn og sett inn sína eigin
stjórnarmenn. Magnús kveðst þá
hafa gengið úr stjórninni.
„Bankinn stoppaði hins vegar
ekki þar og hefur hann í síðustu
viku reynt að taka hlutabréf okkar
einstaklinga sem hafa fjárfest í
félaginu. Nú í þessari viku hef ég
verið kærður fyrir eitthvað meint
brot, sem ég get ekki ímyndað mér
hvað er, enda hef ég ekki heyrt
neitt um málið fyrr en í gærkvöldi
og þá í gegnum fjölmiðla.
Það er augljóst að Arion Banki er
að reyna að koma mér í eins lélega
stöðu og mögulegt er svo hann
geti eignast allt félagið án þess
að borga fyrir það. Þetta er með
skítugustu brögðum sem ég hef
séð beitt í viðskiptaheiminum.
Ég bíð eftir að heyra hver þessi
meintu brot eru, svo ég geti varið
mig og sannleikurinn komi fram.
Ég er tilbúinn að vinna með stjórn
félagsins og/eða héraðssaksóknara
til að lýsa málinu frá öllu hliðum,“
segir í yfirlýsingu Magnúsar sem
kveður óvægna umfjöllun hafa
skaðað fjölskyldu hans og 24 aðra
einstaklinga á Íslandi, í Danmörku
og Hollandi.
sem hlutur Kísils Íslands hefur verið
skráður á hollensk félög. Kísill Ísland
átti í árslok 2016 um 37 prósenta hlut
í fyrirtækinu sem Arion hefur nú tekið
yfir. Kísill III, sem er í eigu bankans og
íslenskra lífeyrissjóða sem fjárfestu í
verkefninu með kaupum á skulda-
bréfum, átti þá 31 prósent. Arion
banki, stærsti lánveitandi kísilversins,
er eins og komið hefur fram með um
átta milljarða útistandandi við United
Silicon í lánsloforðum og ábyrgðum.
Þar að auki hafði hann fært niður 16,3
prósenta hlut sinn í verksmiðjunni að
fullu, áður en hann gekk að bréfum
Kísils Íslands, sem var bókfærður á
rétt tæpan einn milljarð króna.
„Þetta eru tímabundin yfirráð enda
stendur til að endurskipuleggja félag-
ið og vonandi fá inn nýja fjárfesta,“
segir Haraldur Guðni.
Stjórn United Silicon hefur líkt og
komið hefur fram kært Magnús Garð-
arsson til embættis héraðssaksóknara.
Hann hætti í stjórn kísilversins í mars
og íhuga nú bæði Arion banki og líf-
eyrissjóðir í hluthafahópnum, þar
á meðal Frjálsi lífeyrissjóðurinn og
Festa, að kæra Magnús sem grunaður
er um stórfelld auðgunarbrot.
haraldur@frettabladid.is
SaMFÉLaG Lögfræðingur og tann-
læknir, kennari og íþróttavöru-
framleiðandi kvittuðu undir með-
mælabréf fyrir uppreist æru Róberts
Downey. Gögn sem varða umsókn
hans til innanríkisráðuneytisins
voru birt í gær.
Úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál kvað í gær upp úrskurð þess
efnis að dómsmálaráðuneytinu væri
skylt að afhenda gögnin. Var það
gert á sjötta tímanum í gær. Kom
þar fram að Gautur Elvar Gunnars-
son, lögfræðingur og tannlæknir,
kennarinn Viðar Marel Jóhannsson
og Halldór Einarsson, oft kallaður
Henson, hefðu lagt til meðmæla-
bréf. Þeir eru æskuvinir Róberts.
„Dugnaður, ósérhlífni, hjálpsemi
eru þau orð, sem koma upp í hugann,
þegar lýsa á Róbert,“ segir meðal
annars í bréfi Viðars Marels. – jóe
Æskuvinir Róberts Downey mæltu með uppreist æru hans
„Fyrr í sumar brugðust fjölmargir
ókvæða við þegar kynferðisbrota-
menn fengu uppreist æru eftir af-
plánun dóms. Engu skipti að stuðst
var við lög og ríka hefð um fram-
kvæmdina. Þetta skipti engu vegna
þess að lagahugtakið uppreist æru
þykir úrelt og villandi. Löngu er
tímabært að það heyri sögunni til,“
sagði Guðni Th. Jó-
hannesson forseti við
þingsetningu í gær.
„Við verðum að
læra af biturri reynslu
og bæta um betur. Sá
ásetningur Alþingis og
ríkisstjórnar að breyta
ákvæðum laga um
uppreist æru gefur mér von um
að svo fari. Þá verður heiðurinn
þeirra sem brotið var á og
neituðu að bera harm sinn
í hljóði.“
Guðni th. Jóhannes-
son, forseti Íslands
1 3 . S e p t e M b e r 2 0 1 7 M I ð V I K u D a G u r4 F r É t t I r ∙ F r É t t a b L a ð I ð
1
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
9
-A
4
6
8
1
D
B
9
-A
3
2
C
1
D
B
9
-A
1
F
0
1
D
B
9
-A
0
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K